Frjáls verslun - 01.02.1998, Page 10
Haraldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðn-
aðarins, heldur rœðu á Iðnþingi.
FV-mynd: Geir Olajsson.
Olafur Helgi Olafsson, framkvæmdastjóri Lýs-
ingar, lætur sig gossa niður í bjargsigi við
Flúðir á dögunum.
Dr. Pétur Guðjónsson ráðgjafi annast fyrir-
lestrana á námskeiðinu en þaulvanir jjalla-
menn sjá um líkamlegu þrautirnar.
Líkamlegu þrautirnar taka um þriðj-
ung af námskeiðinu. Þær eiga að sýna
fólki að mörg mál er ekki hægt að leysa
nema fólk vinni saman. Þær þjappa fólki
betur saman. Loks verða þær til þess að
fólk yfirstígur hræðslu við hindranir; þ.e.
þetta var þá ekkert mál þegar upp var
staðið. Pétur hefur haldið þetta námskeið
í yfir tuttugu ár; meðal annars í Bandaríkj-
unum og á Spáni.
SifJóns■
dóttir,
starjsmað-
ur Lýsing-
ar, hvergi
bangin á
bjargbrún.
Starjsmenn Lysingar
á námskeiði á Flúðum,
Auk þrauta, eins og
bjargsigs, byggist nám- I
skeiðið á fyrirlestrum, Hp
stjórnunarverkefnum og ,,
œfingum í stjórnun. £
tarfsmenn Lýsingar voru nýlega á at-
hyglisverðu námskeiði á Flúðum hjá
Pétri Guðjónssyni stjórnunarráð-
gjafa. Námskeiðið ber yfirskriftina Samstarf
og samvinna meðal stjórnenda. Auk fyrirlestra
og verkefna voru starfsmennirnir látnir „kom-
ast í hann krappann” og leysa ýmiss konar lík-
amlegar þrautir, meðal annars þurftu þeir að
síga niður björg. Þaulvanir fjallamenn aðstoða
á námskeiðinu og sjá til þess að fýllsta öryggis
sé gætt. Ekki var annað að sjá en Lýsingarfólk-
ið hefði gaman af bjargsiginu þótt sumir tækju
auðvitað andköf eins og vera ber.
Markmið námskeiðsins er að skapa meiri
skilning og samheldni á meðal stjórnenda og
starfsmanna íyrirtækisins. Að stjórnendur og
starfsmenn skilji betur eigin vinnuaðferðir,
styrkleika og veikleika. Að þeir skilji betur
starfsemina eins og hún kemur viðskiptavin-
um íyrir sjónir og samræmi betur forgangsröð
og áherslur.
Dðnþing er árlegur fundur
á vegum Samtaka iðnað-
arins. Þá setjast fulltrúar
atvinnulífsins á rökstóla og meta
stöðuna. Það var mikið rætt um
þenslu og þensluáhrif á þessu
iðnþingi en menntunarmál iðn-
aðarins komu talsvert til um-
ræðu einnig og nauðsyn þess að
auka útflutning iðnararvara.
VERÐBREFASTOFAN
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 533-2060
10