Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1998, Page 29

Frjáls verslun - 01.02.1998, Page 29
MARKAÐSMAL ir þekkja í dag. Sömuleiðis einstak- lega vel heppnaða herferð sænska áfengisframleiðandans Absolut Vodka. Hoare útskrifaðist frá Oxford há- skóla í Bretlandi árið 1977 og starfaði fyrstu árin að loknu námi hjá hinu virta blaði „The Economist”. Þremur árum síðar var Hoare orðinn deildar- stjóri auglýsingamála Evrópuálfu fyrir blaðið. Árið 1983 venti Hoare kvæði sínu í kross og gekk til liðs við auglýs- ingastofuna Valin Pollen sem sér- hæfði sig á fyrirtækjamarkaði. VP jók mjög umsvif sín í tíð Hoare hjá fyrir- tækinu, en 1985 setti hann eigin aug- lýsingastofu á stofn, BMP Business, sem starfaði undir merkjum Omni- com samsteypunnar, stærsta mark- aðsfýrirtækis heims. Árið 1994 sameinaðist BMP Business neti auglýsingastofa í tengsl- um við Omnicom, TBWA, en síðar var TBWA skipt upp í deildir sem annars vegar leggja áherslu á vörumerki og hins vegar árangur. Jonathan Hoare og auglýsingastofa hans hafa komið nálægt ýmsum auglýsingaherferðum og fengið fjölda viðurkenninga í því sambandi, meðal annars fýrir Nissan, Miller Beer, NBC Super Channel og Sony PlayStation. BREYTTAR MARKAÐSAÐSTÆÐUR Jonathan Hoare lagði áherslu á það í fyrirlestri sínum að allt aðrar mark- aðsaðstæður ríktu í dag en fýrir nokkrum árum síðan. Meðal helstu breytinga eru þær, að neytendur í vestrænum löndum vilja helst gera innkaup sín um helgar, því þá er eini tími fjölskvldunnar til að gera það saman. Einnig lagði Hoare áherslu á aukið mikilvægi fjarlægðar og þæg- inda fyrir neytandann. Upplýs- ingabyltingin hefur einnig haft gífurleg áhrif á markaðinn og í heimi nútíma upplýsingamiðl- unar, getur HALLO STRÁKAR! Flennistórum plakötum af fyrirsætunni Evru Herzigovu (sem þá var óþekkt fyrirsæta), íklæddri Wonderbra brjóstahöldum, var komið fyrir á áberandi stöðum í Lundúnum. Á plakötunum voru ýmsir grípandi textar, eins og „Hello boys” og „Look me in the eyes ■ I said the eyes”. Og viti menn; umferð- aröngþveiti skapaðist við skiltin. sterk staða vörumerkis ráðið úrslit- um. Fyrirtæki eru í auknum mæli farin að laga sig að (sér)þörfum viðskipta- vina sinna. I því sambandi benti Hoare á Levi’s gallabuxnafyrirtækið, sem er farið að bjóða upp á klæðskerasaum- aðar buxur. Einnig bifreiðaframleið- endur sem taka í auknum mæli á móti sérpöntunum fyrir sína viðskiptavini. Hoare minntist á mikilvægi tíma- setningar til að ná í neytendurna. Neytendur kaupa mismikið eftir því hvernig umhverfisaðstæðurnar eru. Til dæmis væri það þekkt staðreynd að neytendur eru mjög líklegir til að seilast í veskið, ef þeir eru staddir í frí- höfnum flugvalla. Gerðværi r aukin krafa til JL markaðs- stjóra um að þeir hefðu markvissari markaðs- setningu og orku þeirra væri fyrst og fremst beint að þeim sem væru lík- legastir til að kaupa framleiðslu fýrir- tækisins á þeim tíma sem markaðs- setningin fer fram. I fyrirlestrinum var minnst á sér- stöðu ýmissa vörumerkja. Fjölmargar nýjar vörur hafa til dæmis orðið vöru- merki og má þar minnast á Swatch úrin og Hoover ryksugurnar, einnig ýmiss konar einnota vörur, eins og rakvélar og barnableiur, svo dæmi séu nefnd. Einnig hafa mörg þekkt vörumerki útvíkkast og Hoare minnt- ist á nokkur fræg dæmi þess. Mars súkkulaðið er eitt dæmið; í dag eru ekki einungis framleidd súkkulaði- stykki undir vörumerkinu, heldur einnig ís og drykkir með Mars-bragði. Einna frægasta dæmið um útvíkk- un vörumerkis er þróun Virgin, fyrir- tækis Richards Bransons. Virgin byrj- aði í tónlistinni, en hefur síðan komið víða við. Á vegum vörumerkisins eru nú starfrækt flugfélag og hótel og framleidd sjónvörp, myndbönd og gallabuxur. Veitingastaðir og kvik- myndasalir eru reknir undir merkjum þess og Virgin járnbrautir eru farnar að ganga á Bretlandseyjum. Virgin vörumerkið er orðið mjög áberandi í bresku þjóðlífi. Hins vegar telja margir að Branson hafi teygt sig of langt með Virgin og sé að reisa sér hurðarás um öxl. Hermt er að fjölmörg fyrirtækja hans skili ekki hagnaði, eða séu jafnvel rek- in með miklu tapi. Arðsamari deildir Virgin fyrirtækisins dæli fjármagni inn í þær, sem reknar eru með tapi, en Vín og víf. Jonathan Hoare auglýsti Absolut Vodka og Wonderbra brjósta- haldarana með góðum árangri. Hann segir galdurinn á bak við Absolut hafa verið notkun orðaleikja í auglýsingum. 29

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.