Frjáls verslun - 01.02.1998, Qupperneq 36
ljós. Fyrst þegar tilbúnir réttir
voru settir á markað, í þvi formi
sem nú er algengast, var það
mat flestra að réttirnir myndu
fyrst og fremst höfða til ungs
fólks sem ekki hefði mikinn
tima eða jafnvel kunnáttu til að
sinna eldamennsku.
Víst er að sá hópur fólks er
og verður áfram stór en reynsla
undanfarinna ára hefur sýnt að
eldra fólk kýs í ríkari mæli
þessa rétti. Fyrirtæki eins og
Sláturfélagið hefur m.a. brugð-
ist við þessu með því að setja á markað vör-
ur sem höfða til eldri neytenda, eins og t.d.
kjötbollur, bjúgu, kjötsúpu og grjónagraut.
Urval þessara rétta hjá fýrirtækinu er
einnig að verða stærra hlutfall af vörufram-
boðinu sem bendir til að þeir njóti sífellt
meiri vinsælda.
Tilbúnir réttir og skyndibitar hafa lengi
haft þá ímynd að vera frekar óhollir og
komið hefur í ljós að almenningur hefúr
vissar efasemdir um að þeir innihaldi mik-
ilvæg næringarefni. Þessi ímynd er eflaust
að hluta til komin vegna þess að fólk teng-
ir orðið „skyndi” við skyndibitastaði og
sjoppufæði.
Ef val tilbúinna rétta er skoðað kemur í
ljós að framleiðendur hafa lagt sitt af mörk-
um til að breyta þessari ímynd með þvi að
auka úrval léttari og hollari rétta. I mörg-
um tilvikum vísar nafn réttanna beint til
hollustugildis þeirra eins og á „Grænmet-
is-lasagne” eða „1944-Kjötsúpa”. Ef það
kemur hins vegar ekki beint fram í nafninu
er lögð áhersla á það með öðrum hætti á
umbúðum.
Greinarhöfúndur, Steingrímur Ægisson, er nýútskrifaður
viðskiptalræðingur frá Háskóla Islands. I lokaritgerð sinni
fjallaði hann um sölu tilbúinna rétta í matvöruverslunum.
Áhrif framandi menningar eru mjög
sterk í mörgum vörutegundum. Dæmi
um þetta er að nýlega hefúr verið settur á
markað vöruflokkur rétta sem eru tilbún-
ir til eldunar undir nafninu ,/tskur víð-
förli”. Allar tegundir innan vöruflokksins
heita framandi nöfnum og visar hráefnis-
innihaldið til mismunandi eldunarað-
ferða. Til að mynda heitir einn rétturinn
kínversku nafni og fylgir með súrsæt
sósa og grænmeti sem er einkennandi
fyrir kínverska matargerð. A þennan hátt
hefur rétturinn fyrirfram ákveðna eldun-
araðferð sem vísar tíl matarhefðar Kín-
verja.
Annað dæmi er vöruval Öndvegisrétta,
en flestar vörur þess fýrirtækis eru sam-
kvæmt fýrirmynd framandi menningar-
heima og bera nöfh í samræmi við það,
eins og t.d. Mexíkó-burrito, Mexíkó-bökur
eða Italskar bökur. Það er því óhætt að
segja að áhrif framandi menningarheima
komi skýrt fram í vöruframboði íslenskra
fyrirtækja sem framleiða tilbúna rétti.
Þetta gætí einnig geíið vísbendingu um að
ýmis séreinkenni í matarvenj-
um Islendinga séu að minnka.
Áhrif smásala á framleiðend-
ur tílbúinna rétta eru mjög mik-
il. Það er nánast sama hvaða
þættir framleiðslunnar eru
skoðaðir, alls staðar koma áhrif
þeirra skýrt fram. Hvað snertír
vöruþróun réð t.d. ákveðin
verslunarkeðja miklu um sam-
setningu hráefnis í réttí sem fyr-
irtæki settí á markað hérlendis.
í gæðamálum eru áhrif þeirra
einnig að aukast, t.d. er algengt
að fulltrúar verslana taki prufúr á fram-
leiðslustígi og sendi í rannsóknir.
Sú þróun að verslanir láti sérmerkja
vörur sínar, svipað og Bónus og Hagkaup
hafa verið að gera með ýmsa vöruflokka,
hefur ekki náð útbreiðslu í tilbúnum rétt-
um, a.m.k. ekki með sama hættí og er-
lendis. Reyndar kemur það ekki mikið á
óvart vegna þess að sérmerktar vörur
hérlendis hafa verið ódýrari og ef tíl vill
ekki haft á sér þá gæðaímynd sem fram-
leiðendur réttanna hafa viljað.
Loks hafa framleiðendur aukið þjón-
ustu sína við smásala mikið hin síðari ár,
t.d. með því að veita þeim styttri pöntunar-
tíma, fara með vörur sínar inn í verslanir
og jafnvel raða í hillur. Á þetta sérstaklega
við framleiðendur ferskra rétta en þeir
þurfa mun oftar að koma vörum sínum í
verslanir en framleiðendur frosinna rétta.
I auglýsingum þar sem tilbúnir réttír
eru kynntír hefur fyrst og fremst verið
lögð áhersla á gæði, þægindi og stuttan
matreiðslutíma. Stærri fýrirtækin, sem
bjóða upp á ferska réttí, hafa auglýst mik-
Atvinnuþátttaka kvenna á íslandi
þróun frá árinu 1960 til 1995.
•70,n 79.20 79 20 80,20 81,80
1960 1971 1981 1991 1992 1993 1994 1995
Atvinnuþátttaka kvenna. Yfir 80% kvenna vinna úti,
eins og það er kallaö. Þetta hlutfall hefur mjakast
upp á við á siðustu árum.
Hlutfall 70 ára og eldri af heildarmannfjölda. Þessi aldurshópur
stækkar hlutfallslega meira en aðrir hópar á næstu áratugum.
36