Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 37
HHHH SKYNDIBITAMARKAÐURINN
í MIKILLISÓKN!
Sala tilbúinna rétta í matvöruverslunum mun halda áfram aö aukast. Fólk yfir sjötugt
neytir þessara rétta í auknum mæli, atvinnuþátttaka kvenna er enn aö aukast og
ekkert lát er á sölu örbylgjuofna á íslandi. Þessir þrír þættir orsaka meöal annars
aukna eftirspurn eftir tilbúnum réttum.
ið, sérstaklega í sjónvarpi. Og nýlega hafa
innflytjendur tilbúinna rétta frá Findus og
ýmissa kínarúlla bæst í þann hóp.
Minni framleiðendur hérlendis hafa
ekki fjárhagslegt bolmagn til að auglýsa
mikið, a.m.k. ekki í sjónvarpi en hafa þess
í stað lagt meiri áherslu á kynningar í stór-
mörkuðum. Almennt virðist markhópur-
inn í auglýsingum vera yngra fólk sem
hefur lítinn tíma til að sinna eldamennsku.
Auglýsingum hefúr hins vegar ekki verið
beint til þeirra, að sama skapi sem kjósa
hollari rétti og þeirra sem kaupa rétti,
sem samanstanda af máltíðum sem voru
algengari áður iýrr. Það vekur að vissu
leyti nokkra fúrðu vegna þess að framleið-
endur hafa lagt mikla áherslu á þessa
þætti í breiðu vöruvali og á umbúðum.
Samkeppnin á markaðnum er mikil en
misjafnt hvernig hún snertir einstök fyrir-
tæki. Fyrirtæki, sem framleiða frosna
rétti, selja vörur sínar aðeins í frystiborð-
um matvöruverslana. Beinir samkeppn-
issaðilar þeirra eru því fyrirtæki sem
bjóða sambærilega rétti eða vörur sem
einnig eru seldar í matvöruverslunum.
Þau fyrirtæki, sem hinsvegar einbeita sér
að framleiðslu á ferskum fullbúnum rétt-
um, eins og t.d. Sláturfélagið, finna fyrir
samkeppni á annan hátt vegna þess að
þeirra vörur er hægt að bjóða til sölu mun
víðar. Núna eru t.d. 1944 réttirnir fáanleg-
ir á mörgum bensínstöðvum, í söluturn-
um og jafnvel í mötuneytum. Því er ljóst
að samkeppnin er einnig við hefðbundið
skyndifæði eins og pylsur og samlokur og
einnig tilbúnar máltíðir framreiddar af
mötuneytum.
Þó að samkeppnin sé mikil eru flestir
framleiðendur sammála um að hún sé
hörðust í baráttunni við að ná í og halda
hilluplássi verslana. Þar þurfa vörur að
sýna ákveðna hreyfingu til að vera ekki
teknar úr sölu. Samkeppni um hillupláss í
matvörumörkuðum hérlendis er þó ekki
eins mikil og víða erlendis en þar eru
dæmi um að framleiðendur greiði versl-
unum sektir ef vörur þeirra seljast ekki í
ákveðnu magni.
Ljóst er að markaður fyrir tilþúna rétti
hefur verið að vaxa og flest bendir til að sú
þróun vari næstu ár eða jafnvel áratugi.
Þjóðfélagsbreytingar, sem almennt eru
taldar auka neyslu á tilbúnum réttum og
sýndar eru á myndinni, staðfesta það.
Vöruframboð hefur aukist mikið á örfá-
um árum og nýjungar í vöruvali sýna að
framleiðendur eru meðvitaðir um breyt-
ingar á neytendamörkuðum.
Hollari réttum, þar sem lögð er áhersla
á gæði og ferskleika, hefur fjölgað. Þá
gætir mjög áhrifa framandi menningar í
flestum nýjum réttum.
Óhætt er að segja að framtíðarhorfur í
þessari atvinnugrein séu góðar. Hins veg-
ar er ljóst að markaðurinn getur verið fyr-
Þróun á örbylgjuofna- og
frystikistueign íslendinga
1985 1990 1995
Örbylgjuofnar eru á 64% heimila á
Islandi - og sala þeirra eykst sífellt.
Þess má geta að frystikistur eru á hlut-
fallslega færri heimilum núna en árið
1990.
irtækjum erfiður, sérstaklega þeini minni,
en samkeppnin er hörð og kostnaður
samfara vöruþróun og markaðssetningu
hár. Tækifærin eru þó fjölmörg og mögu-
leikar miklir ef rétt er að málum staðið. S3
Öryggisskápamir frá Rosengrens
eru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem em í hæsta
gæðaflokki fáist í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
Bedco & Mathiesen ehf
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
37