Frjáls verslun - 01.02.1998, Side 38
Kristín Stefánsdóttír, heildsali, forðunarmeistari og kennari, er dæmigerð nútímakona sem vílar ekkert fyrir sér 14-
16 tíma vinnudag. FV-myndir: Geir Ólafsson.
KRISTÍN í NO NAME
Hún er oftast kennd við No Name en þaö heita snyrtivörurnar sem hún flytur
inn. Auk þess rekur hún fórðunarstúdíó, förðunarskóla og kennir snyrtifræði.
ristín Stefánsdóttir er fædd 4.
júní 1964 og ólst upp í Vestur-
bænum í Reykjavík. Hún á sama
afmælisdag og finnski marskálkurinn
Mannerheim og dr. Ruth Westheimer
sem er þekktur amerískur kynlífsráð-
gjafi. Þessi dagur er ennfremur þjóðhá-
tíðardagur smáríkisins Tonga og dánar-
dægur Khomeinis, erkiklerks í Iran.
Kristín er fædd í merki Tvíburans.
Samkvæmt þeim fornu fræðum ætti
hún að vera kraftmikil,
eirðarlaus, forvitin og fé-
lagslynd. Hún getur gert
margt í einu og fellur það
vel en nær þá fýrst ár-
TEXTI
Páll Ásgeir Ásgeirsson
angri þegar hún beinir orku sinni í einn
farveg.
ALIN UPP í MÚLAKAFFI
Foreldrar Kristínar voru Stefán
Olafsson, veitingamaður í Múlakaffi,
sem nú er látinn og Jóhanna R. Jóhann-
esdóttir, kona hans. Stefán var ættaður
vestan úr Dýrafirði, en Jóhanna er fædd
í Reykjavík.
Stefán rak og byggði upp veitinga-
_____ staði eins og Vogakaffi
og síðar Múlakaffi og sá
um mötuneyti hér og þar
í bænum á sínum ferli
meðal annars í Isbirnin-
um. Hann og Jóhanna eignuðust þrjú
börn. Elstur er Jóhannes veitingamaður,
sem rekur Múlakaffi í dag, þá kemur
Ingvar sem lærði kvikmyndagerð og
kvikmyndatöku og starfar um þessar
mundir með Hrafrii Gunnlaugssyni að
gerð Myrkrahöfðingjans og snyrtifræð-
ingurinn Kristín er svo yngst systkin-
anna.
Þeir eru til sem halda því fram að
persónuleiki manna geti mótast af því
hvar í systkinahópnum þeir eru stað-
settir. Þeir myndu segja að vegna þess
að Kristín er yngst þá hafi hún alist upp
við mest eftirlæti af systkinunum og hafi
verið barnalegust lengst af þeim. Þeir
38