Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 48
Starfsmenn Staðlaráðs sem er til húsa hjá Iðntæknistofnun á Keldnaholti,
I — 'Æe&í , ' '6** ~ i |ia\ f‘\ '\A \ 1 1 . ! |
■ •f-"'!!”' - ji medfrb J Æ)
, r öönvaldar dottir,
Guðrun Kogn ðlaráðs
framkvæmdastjon
íslands.
egja má að stöðlun snúist fyrst og
fremst um að tryggja samhæfingu og
samræmingu ólíkra athafna og efnis-
þátta. í reynd hafa staðlar verið til frá upphafi
mannlegs samfélags. Nefna má mál og vog,
myntkerfi og tímatal sem dæmi um slíkt. Þótt
stöðlun sé því ekki upprunnin í tæknivæddum
iðnaðarsamfélögum nútímans þá hefur þörfin
fyrir samhæfingu og samræmingu aukist jafnt
og þétt samhliða aukinni fjöldaframleiðslu, sér-
hæfingu og upplýsingamiðlun og þeim auknu
samskiptum sem nú eru milli þjóða, bæði á
sviði menningar og viðskipta.
HAGRÆÐI ■ GAGNSEMI - ARÐSEMI
Á hverjum einasta degi njótum við góðs af
stöðlun í starfi og leik, án þess að verða beinlínis vör við
það. Ýmsir byggingarhlutar eru staðlaðir og íhlutir í bíla,
flugvélar og skip. Rafmagnstæki eru að einhverju leyti
stöðluð, pappírsvörur, greiðslukort, fjarskiptatæki, rann-
sóknaraðferðir og prófanir á matvælum, kröfur um öryggi,
stjórnunaraðferðir og svona mætti lengi telja. Vinna við
stöðlun miðar að samræmingu, sparnaði, öryggi og
snurðulausum samskiptum.Staðlaráð íslands er sá aðili
sem fer með staðlamál hér á landi. Ráðið, sem starfar
samkvæmt lögum um staðla, er sjálfstætt ráð hagsmuna-
aðila og á aðild að evrópskum og alþjóðlegum staðlasam-
tökum. Hjá Staðlaráði vinna 10-11 manns en viðamesta
verkefni ráðsins snýr að vinnu við Evrópustaðla.
Aðild íslands að evrópsku staðlasamtökunum felur í
sér að ísland verður að taka upp alla samevrópska staðla
og gera þá að íslenskum stöðlum, en sömu staðlar gilda á
LEITID TIL STAÐLARAÐS!
Vegna þátttöku íslands í evrópsku samstarfi verum við að taka upp samevrópska staðla.
Mikilvægt er að við stöndum öll saman á verði um að peir henti íslenskum aðstæðum.
■ - "N.HIHAUIMUJJIJIira..........................■
48