Frjáls verslun - 01.02.1998, Síða 56
Örn Árnason er næstvinsælasti skemmtikraftur landsins, samkvæmt
skoðanakönnun Frjálsrar verslunar. Samkvæmt skattskrá er Örn tekjuhæsti
skemmtikrafturinn - og reyndar tekjuhæstur allra listamanna.
listarmann til að raula fyrir kráargesti í
úthverfi í miðri viku.
Þegar rætt er um taxta af þessu tagi
er auðvitað rétt að hafa í huga að þó að
mínúturnar séu ef til vill ekki mjög
margar í hvert sinn er hvert númer lista-
mannsins afrakstur margra ára vinnu,
þjálfunar og ögunar þeirra hæfileika
sem hann fékk í vöggugjöf. Algengt er
að listamenn séu fengnir til að gefa
vinnu sína til styrktar góðum málefnum
og sæta því einir stétta að vera beðnir
um slíkt. Þeir taka því oftast vel.
Sé gjald skemmtikrafta umreiknað f
gjald á hvern samkomugest verður nið-
urstaðan sú að sá, sem treður upp eina
kvöldstund á 300 manna árshátíð og tek-
ur fyrir 35 þúsund krónur, er að fá sem
svarar 116 krónum frá hverjum gesti.
Auk þessa er rétt að að hafa í huga að
þó að taxtar fyrir skemmtiatriði á árshá-
tíðum og þorrablótum séu dálítið á reiki
eru þeir í föstum skorðum á sumum
öðrum sviðum og lítil frávik frá því. Kór-
söngur við jarðarfarir kostar 30 þúsund
fyrir lítinn 8 - 12 manna kór og svipað
mun vera greitt þekktum einsöngvur-
um meðan lítt þekktir fara niður í 13 -15
þúsund. Olærður einsöngvari í af-
skekktri sveitakirkju fæst á 10 þúsund
með undirleik. Einsöngvari með kórfær
greiddar um 15 þúsund krónur fyrir að
syngja 2 - 3 lög á 3 - 4 tónleikum. Félag
íslenskra hljómlistarmanna gefur út
skrá yfir taxta fyrir sína félagsmenn og
gengur eftir því að farið sé eftir honum.
Sá taxti mun vera sá grunnur sem samn-
ingar við einstaka listamenn standa á.
ORN ÞENAR MEST
Samkvæmt
tekjublaði Fijálsr-
ar verslunar sl.
sumar voru tekj-
ur listamanna
mjög mismun-
andi. Efstur á
þeim lista var
Örn Árnason
leikari með 611
þúsund krónur
á mánuði. Sig-
urður Sigur-
jónsson var
skráður með
475 þúsund á
mánuði. Með-
al þeirra, sem
hér hafa verið
nefndir, kom
B u b b i
Morthens
næstur þeim
Spaugstofu-
ÞóttUþetr ÖrnnAUr "^113 V,nsæ,<Ia
Sfyunónsson ? SfÍgUrðUr
Þeim SpaugsÍ^1;^ af
FrJaIsrar versjínar UnUn
uppahaldsskemmtikraftana Um
431
mönnum með
þúsund í mánaðarlaun og Þórhallur Sig-
urðsson leikari (Laddi) var með 287
þúsund á mánuði. Af því má ráða að þótt
einhverjir búi við þröngan kost eru aðr-
ir sem missa varla úr máltíð.
IFOTSPOR AMUNDA
Ólafur Þórðarson tónlistarmaður,
sem lengi hefur sungið og spilað með
Ríó trióinu hefur nýlega vent sínu kvæði
í kross og sett á stofn umboðsskrifstofu
fyrir listamenn af mörgu tagi. Heitir sú:
Þúsund þjalir.
Ólafur útvegar alla þá listamenn sem
viðskiptavinum dettur í hug að biðja um,
leigir hús, semur við veitingamenn, bók-
ar hljómsveitir,
skemmtikrafta og
klassíska tónlistar-
menn, gefur út söng-
skrár og efniskrár og
auglýsingar og veitir
bæði viðskiptavinum
og listamönnum ráð-
gjöf af ýmsu tagi.
Þúsund þjalir hafa
tekið að sér alhliða
umsjón árshátíða fyrir
stór fyrirtæki og
mælist sú þjónusta vel
fyrir.
Ólafur sagði í sam-
tali við Frjálsa verslun
að hann hefði fyrst feng-
ið hugmynd að stofnun
Þúsund þjala fyrir tæpum
10 árum en ekki látið
verða af því fyrr en nú.
„Við getum losað fólk
við endalausa fyrirhöfn og
tryggt að það fái hnökra-
lausa skemmtun fyrir þá peninga sem
það er tilbúið til að leggja í hana. Þetta
er ekki stór markaður en við gjörþekkj-
um hann og gerum okkar besta.“ 35
STARFSMANNAMÁL
Það er ekki mikil hefð fyrir því á Is-
landi að umboðsskrifstofur ráði lista-
menn og gæti hagsmuna þeirra.
Nokkrir menn hafa gegnum árin getið
sér nokkurt orð sem umboðsmenn ein-
stakra hljómsveita, einnar eða fleiri, og
hafa jafnvel ráðskast með nokkrar í
einu en þeir hafa sjaldan fengist við aðr-
ar listgreinar en tónlist og þá yfirleitt
dægurtónlist. Pétur nokkur rakari var
þekktur á þessu sviði nokkuð fram á
bítlaárin og það sama má segja um Pét-
ur Pétursson útvarpsþul sem tók að sér
verkefni af þessu tagi. Af hinum stærri
umboðsmönnum seinni tíma er
Amundi Amundason eflaust kunnastur
en hann tók að sér umboðsmennsku
fýrir hljómsveitir og skemmtikrafta og
starfaði einnig í stjórnmálum.
56