Frjáls verslun - 01.02.1998, Page 58
SÆNSKIR DAGAR
Dslendingar og Svíar hafa átt í við-
skiptum áratugum saman. „Mikil-
væg viðskipti íslendinga og Svía
liófust eftir seinni heimsstyrjöldina. Þá
keyptu Islendingar eikarbáta af Svíum
fyrir peninga sem þeir höfðu grætt í
stríðinu. Vegna Ureldingarsjóðs er búið
að höggva alla þessa báta eða brenna
þá. En í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi
er hægt að sjá 100 til 200 ára gamla
báta,” segir Par Kettis. Hann getur þess
þó að til sé minnismerki um þessi íyrstu
mikilvægu viðskipti Islendinga og Svía.
Gert hafi verið módel af bátunum og
það sýnt í Norræna húsinu í Reykjavík.
I kjölfar bátaviðskipt-
anna hófst innflutningur
á sænskum iðnaðarvör-
um tíl Islands. „Fyrstvar
það rafbúnaður og þar
næst ýmis farartæki. Og
smátt og smátt var farið
að flytja neysluvörur frá
Svíþjóð tíl Islands,” grein-
ir sendiherrann frá. Þar
má telja kökur, bruður,
sælgæti, kjúklinga auk
fatnaðar, íþróttavarnings
og útilegubúnaðar, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Útflutningur Svía tíl ís-
lands nam í fýrra um 9,5
milljörðum íslenskra króna
eða 6,7 prósentum af heildar-
innflutningi til landsins. Fyr-
irtækið ABB, sem er í eigu
bæði Svía og Svisslendinga,
selur rafbúnað, Volvo og
Scania selja farartæki, Stora selur tré-
vörur, Ericson selur síma, AlfaLaval sel-
ur vélar í mjólkurbú og Tetrapak um-
búðir utan um mjólkurafurðir og ýmsan
annan vökva. Isaga, sem selur gas, er
eina sænska dótturfyrirtækið sem starf-
rækt er á íslandi.
STOR SAMVINNUVERKEFNII GANGI
Pár Kettis tekur það fram að nú séu
stór samvinnuverkefni íslendinga og
Svía í gangi. „Hvalfjarðargöngin eru
byggð af Istak í samvinnu við sænska
fýrirtækið Skanska sem er stærsta
byggingarfyrirtækið í Svíþjóð. Sam-
vinna þessara fyrirtækja hefur staðið
lengi og verið góð og saman eiga þau
fyrirtæki sem heitír Fossvirki. Istak og
Skanska byggðu einnig Vestfjarðagöng-
in. Og núna vinna þessi fyrirtæki að
byggingu orkuversins við Sultartanga.
Fyrirtækið ABB selur rafbúnað tíl ál-
versins á
Ingimar ísaksson er vvrv'ag,t ða íslensk fyrirlíeki
Sdirainu.Hans ^ ^,, „„,k „rir«k,
—*
Grundartanga.”
Útflutningur Islendinga tíl Svíþjóðar
nam í fýrra um 1,5 milljörðum íslenskra
króna eða 1,1 prósenti af heildarútflutn-
ingi Islendinga. Síld er líklega sú ís-
lenska afurð sem Svíar þekkja best. Þeir
hafa keypt hana frá íslandi í marga ára-
tugi. „ Þetta er hágæðavara. Rússar
kaupa jafn mörg tonn af saltsíld frá ís-
landi og við. En við borgum tvöfalt
meira fýrir hana en þeir því við kaupum
meiri gæðavöru,” leggur sænski sendi-
herrann áherslu á. Talsvert er flutt út af
frystri rækju til Svíþjóðar, bæði pillaðri
og ópillaðri, og fer salan vaxandi. Svíar
kaupa einnig hrogn frá íslandi og fryst-
an fisk. Fersk fiskflök eru seld tíl Sví-
þjóðar og eru þau send með flugi.
VILJA MEIRI FISK
„Við viljum gjarnan að viðskiptí með
frystan fisk, tíl dæmis þorsk og ýsu,
aukist. Sjálfur hef ég beitt mér sér-
staklega í því samhengi. Eg vona að
framleiðendur og útflytjendur þess-
ara tegunda komi auga á sænska
markaðinn,” segir Kettis sem telur
helsta vaxtarbroddinn í viðskiptum
milli landanna vera í útflutningi á
frystum fiski og fiskafurðum.
En Islendingar selja ekki bara
fisk til Svíþjóðar. Islenskur vikur
hefúr lengi verið vinsæll tíl vega-
lagningar í Svíþjóð og íslenskir
hestar eiga sífellt vaxandi vinsæld-
um að fagna hjá Svíum. Ferða-
þjónustan hefur einnig notið
góðs af vaxandi samskiptum
landanna. Helgarferðum Svía til
íslands hefur fjölgað verulega að
undanförnu þó að þær hafi
reyndar lengi verið vinsælar.
Mörg sænsk fyrirtæki sameina
ráðstefnuhald og skoðunarferð-
ir um Island og telur Kettís að á
því sviði geti enn orðið aukning.
íslensk ferðaskrifstofa er nú starf-
rækt í Stokkhólmi og selur ferðir til ís-
lands. Nýlega keyptu íslenskir aðilar
fiskdreifingarfyrirtæki í Stokkhólmi tíl
þess að komast inn á þann markað.
Sænski sendiherrann telur að það séu
sóknarfæri fýrir íslendinga í Svíþjóð.
SÆKIÐ HL SVIÞJODAR!
/ /
Pár Kettis, sendiherra Svía á Islandi, segir Islendinga duglega ab adlagast
nýjum mörkuðum - ogpeirþurfi núna að koma auga á sœnska markaðinn
fyrir frystan fisk.
58