Frjáls verslun - 01.02.1998, Page 62
Bergþór Konráðsson, forstjóri Sindrastáls. Fyrirtækið er á meðal stærstu heiidsölufyrirtækja
á Islandi og stærsti stálinnflytjandi landsins. Það flytur inn sænskt gæðastál.
Mynd: Jóhannes Long.
STÆRSTIRISTALINU
Bergþór Konráðsson, forstjóri Sindrastáls,
segir Islendinga geta lært margt afsœnskum stórjyrirtœkjum i
markaóssetningu á heimsvisu.
□ ið flytjum inn marg-
víslegar vörur frá Sví-
þjóð en stálið er eitt
það mikilvægasta," sagði
Bergþór Konráðsson, forstjóri
Sindrastáls. Sindrastál er
stærsti stálinnflytjandi lands-
ins og flytur allt ryðfrítt stál
inn frá fyrirtækinu Avesta
Sheffield.
„Stálið frá Svíþjóð er fýrst
og fremst þekkt fyrir gæði.
Ryðfrítt stál, sem við leggjum
mikla áherslu á, þarf að upp-
fylla ströngustu gæðastaðla og
Avesta fyrirtækið er með vott-
un samkvæmt ISO 9002.“
Sindrastál er meðal stærstu
heildsölufyrirtækja landsins
með veltu á sl. ári upp á rúm-
lega 1 milljarð króna og stór
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
hluti innflutnings
þeirra kemur frá
Svíþjóð eða
sænskum alþjóða-
fyrirtækjum.
Sindrastál hefur
lengi haft umboð
fyrir Alfa-Laval
sem framleiðir
einkum skil-
vindur og marg-
víslegan annan
tæknibúnað.
Skilvindur og
tæki frá Alfa-
Laval er að
finna í nær öllum
mjölsverksmiðjum landsins
og mjólkurbúum, um borð í
skipum og víðar. Sænska fyrir-
tækið Tetra, sem er heims-
Sindrastál er til húso „
viðskipti við nokkur sænskTtóftl"' Fyrirtekíð á
Avesta Sheffield, Tetra píl ^fnr‘æki’ ein* og
Copco. e<ra Pak, Alfa-Lavaj og AaJ
fiski-
frægt fyrir framleiðslu sína á
umbúðum, fernum af öllum
stærðum og gerðum, er einnig
í samstarfi við Sindrastál.
Af öðrum sænskum fyrir-
tækjum sem Sindrastál hefur
umboð fyrir, má nefna Atlas-
Copco sem framleiðir loft-
pressur og margvíslegan bún-
að þar sem loft sem aflgjafi
kemur við sögu. Aðrar vörur,
sem Sindrastál flytur inn frá
Svíþjóð, eru t.a.m. Wilo dælur
og ristarefni og hringstigar úr
stáli frá Weland.
„Samskipti okkar við þessi
fyrirtæki byggjast á því að
veita sem besta þjónustu og
styrkja tengslin. Það má segja
að þessi alþjóðlegu stórfyrir-
tæki séu yfirleitt með sín eigin
fyrirtæki í hverju landi og
koma fram við okkur með
sama hætti.
Þar sem við erum að selja
tæknivörur er mikil áhersla
lögð á símenntun og þjálfun.
Tæknimenn okkar eru
stöðugt í þjálf-
un og á nám-
skeiðum hjá
móðurfyrir-
tækjunum úti og
samskiptin eru
mjög góð. Það
er, að mínu áliti,
gefandi á mörg-
um sviðum að
vera í viðskiptum
af þessu tagi. Við
getum margt lært
í markaðssetningu
af þessum stóru
sænsku fyrirtækj-
um sem hafa borið
hróður sænskrar
þekkingar og við-
skipta um allan heim í stað
þess að láta heimamarkaðinn
duga.“ BS
Tetra Pak keypti Alfa-Laval
fyrir nokkrum árum. Tilheyra
fyrirtækin nú sömu samsteyp-
unni og heitir móðurfélagið
Tetra-Laval.
Að sögn Bergþórs koma
Tetra Pak og umbúðir þeirra
eða búnaður við sögu mjög
víða í framleiðslu á fljótandi
matvælum, hvort sem um er
að ræða mjólk, ávaxtasafa eða
vín svo dæmi séu tekin.
62