Frjáls verslun - 01.02.1998, Qupperneq 80
FERÐALOG
að velja um 16 leiki þessara Lundúnaliða
innan borgarmarkanna. Þeir, sem vilja
bregða sér á úrvalsdeildarleiki annarra
liða i Englandi, eiga t.d. völ á hagstæðum
kjörum á bílaleigubílum. Sumir eru e.tv.
ragir við að keyra i vinstri umferð eða „öf-
ugu megin“ eins og við gjarnan segjum, en
þeir, sem slá til og reyna að keyra, eru fljót-
ir að venjast því og breskir bílstjórar eru yf-
irleitt mjög tillitssamir.
ENSK SVEITARÓMANTÍK
Tilboð Flugleiða á Flug og bil eru óvíða
hagstæðari í Evrópu en einmitt i Lund-
únapakkanum og auðvelt að gera saman-
burð í því dæmi í nýútkomnum bæklingi
Flugleiða, „Ut í heim - Sumarijör ’98”. I því
sambandi má geta þess að Flugleiðir bjóða
Lundúnaflug Flugleiða:
NIU FERDIR A VI
w
Dslendingar hafa, samkvæmt nýjustu
fréttum, aldrei verið ferðaþyrstari en
í ár og ferðaskrifstofur státa flestar
af meira en helmingsaukningu bókana,
miðað við síðasta ár. Lundúnir hafa alla tíð
verið meðal vinsælustu áfangastaða land-
ans og sennilega munu fleiri íslendingar
fara þangað í ár en nokkru sinni fýrr. Enda
er líklega hvergi betra að vera ef þú vilt
upplifa sem mest og skemmta þér sem
best á einum og sama staðnum á fáum
dögum. Fáar borgir bjóða upp á eins fjöl-
breytt menningarlíf.
Flugleiðir bjóða
upp á daglegt
morgunflug til
Lundúna og
því til viðbót-
ar er flogið
síðdegisflug
til borgarinnar
á fimmtudög-
um og sunnudög-
um. I London bjóða
Flugleiðir viðskiptavin-
um sínum að velja um
fjölda góðra hótela í
mismunandi verð-
flokkum og sem staðsett eru víða um borg-
ina. Meðal þeirra hótela, sem Flugleiðir
hafa gert samninga við nýverið, má t.d.
Enginn ferðamaður sækir
London heim án þess að
skoða Piccadillu Circus.
nefna Strand Palace Hotel sem er til-
valið fyrir þá að dvelja á sem vilja vera ná-
lægt leikhúsunum og leikhúslífinu. Strand
Palace Hotel er staðsett stutt frá Covent
Garden sem alltaf er gaman að heimsækja.
LONDON MARAÞON OG ENSKI BOLTINN
Meðal helstu viðburða á hverju ári í
borginni er London maraþonið sem að
þessu sinni verður haldið þann 26. apríl.
London maraþonið hefur um árabil verið
ljölmennasta maraþonhlaup heims með
hátt í 40.000 þátttakendur.
Heyrst hefur að eitthvað á
annan tug Islendinga
muni taka þátt í
hlaupinu í ár.
Fjölmargir
þeirra Islendinga,
sem sækja, Lond-
on heim hafa mik-
inn áhuga á að kom-
ast á íþróttaviðburði,
leiki Lundúnaliðanna í
knattspyrnu. I London
eru heimavellir úrvals-
deildarliðanna Arsenal,
Tottenham, Chelsea,
Crystal Palace, West Ham og Wimbledon.
I aprílmánuði einum, þegar lokasprettur-
inn er að heijast í úrvalsdeildinni, er hægt
LL0ND0N
W
7.000 króna
afslátt á Flug og bíl fargjöldum ef farið er á
tímabilinu 1. apríl -10. júní eða 1,- 30. sept-
ember.
I nágrenni Lundúna er margt að skoða,
meðal annars Legoland garðurinn frægi
sem opnaði fýrir nokkrum árum í ná-
grenni Windsor kastala, eða Chessington
World of Adventure í nágrenni Lundúna
sem er einn af bestu tívolí- og skemmti-
görðum á Bretlandseyjum.
Sumarleyfisstaðirnir Brighton, Bour-
nemouth eða Torqauy á suðurströndinni
eru í aðeins nokkurra klukkustunda öku-
færi frá Lundúnum.
Þeir, sem vilja fara örlítið lengra og
prófa eitthvað nýtt og spennandi, ættu að
bregða sér með bílferju yfir til eyjarinnar
Jersey sem er skammt undan strönd
Frakklands en telst þó bresk eyja. Þar er
að finna gullnar baðstrendur, veðursæld
og mikla náttúrufegurð, snotur smáþorp
með tollfrjálsum verslunum, golfvelli, dýra-
garð, tignarlega kastala, góða veitingastaði
og ótalmargt fleira; enska sveitarómantík
eins og hún gerist best. Nánari upplýsing-
ar um gististaði og annað á Jersey er að
finna í sumarbæklingi Flugleiða og hjá
sölufólki félagsins. 33
80