Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Side 25

Frjáls verslun - 01.02.1999, Side 25
eóðíir hugftiyndir eru t j| ■nismunandi útfærslum Pósthólf 50 Tölvupóstur: «ae auglýsingu iyrir hjálpartæki eins og gervifót, sem hefur á sér fremur neikvæða ímynd í hugum margra. Auglýsingin er sett upp í þremur hlutum í tímaritum. í íýrsta hlutan- um er yfirskriftin: „My hands, a perfect part of me“. Síðan kemur: „My shoulder, a perfect part of me“ og síðast sést stúlkan horfa fótinn á sér, íklæddan hulsu, og yfir myndinni stendur: „My Iceross Comfort, a per- fect part of me“. Áhersla á fallegan líkama „Það má segja að lýrst hafi komið „orðið“ og svo allt hitt. Þessi setning: „A perfect part of me“, kom upp í hug- myndavinnu með texta lýrir aðra Össurar auglýsingu. Verðlaunaauglýs- ingin var því hvorki pöntuð né umbeðin, en setningin fór á flug og end- aði sem fullsköpuð herferð. Reyndar er þetta ekki fyrsta Össurar verk- efnið sem verður til á þennan hátt og eitt af því sem hefur gert vinnuna með þeim svo gefandi og skemmtilega er vissulega það að við höfum fengið talsvert svigrúm í hugmyndavinnunni. Við höfum unnið með þeim lengi, þekkjum vinnubrögðin og ffamleiðsluna, þekkjum inn á ólíka markaði sem Össur er á erlendis og höfum nokkuð góða yfirsýn yfir samkeppnisaðila þeirra. Þessi hópur íslensks auglýsingafólks ,sem Össur hefiir valið til samstarfs, er skipaður einvalaliði og af samstarfi hafa oft komið mjög spennandi hlutir,“ sagði Vilborg Einarsdóttir hjá Location Greenland Iceland, sem átti hugmyndina. Yfir hröskuldinn „Með því að búa til svona auglýsingu, þar sem lögð er áhersla á fallegan líkama og stoðtæki, er verið að stíga yfir ákveðinn þröskuld sem framleiðendur hafa verið feimnir við. Flestír hafa lagt áherslu á tæknihliðina og haft notendur stoðtækjanna í bakgrunni. Fyrirtæki eins og Össur getur leyft sér að vera með frakkari auglýs- ingar en aðrir því orðspor fyrirtækisins er svo traust og virt. Það eru ekki margir íslendingar sem gera sér grein fýrir því hvílíkt of- urmenni Össur Kristinsson er í stoðtækjaheiminum þar sem hann hefur komið fram með byltingar hvað eftír annað.“ Þessi byltingarkennda auglýsing birtist fyrst í tímaritinu O&P Business World, einu víðlesnasta stoðtækjariti í heimi, og vakti þegar í stað mikil viðbrögð meðal þeirra sem framleiða og selja stoðtæki, ekki síður en meðal notendanna. Fjöldi fyrirspurna hefur borist bæði varð- andi kaup á því sem auglýst er en ekki síður til þess að spyrjast fyrir um fyrirsæturnar og þá sem gerðu auglýsingarnar. Árni Alvar Arason er markaðsstjóri Össurar. Verðlaunaauglýs- ing fyrirtœkisins hefur aldrei birst í íslensku tímariti en hún vakti mikla athygli innan atvinnugreinarinnar. FV-myndir: Geir Ólafyson. Þekktum fyrirsætuna „Það sem fyrir okkur vakti var að fá fallegan lík ama til þess að auglýsa stoðtækin og eitt af því sem gerði það mögu- legt var að við vissum um réttu fyrirsæturnar. Það voru tvö módel sem tóku þátt í þessu. Annað er karlmaður, Gottftíed Muller, sem keppir í hjólreiðum fatlaðra fyrir hönd Þýskalands og á nokkra heimsmeist- aratitla. Hitt er islensk stúlka sem heitir Alma Ýr Ingólfsdóttir. Hún er áreiðanlega glæsilegasta módelið sem völ er á og hefur áður komið fram í auglýsingum fyrir Össur. Hún missti báða fætur fyrir neðan hné og fimm fingur að auki. Þessi stúlka er sannkölluð hetja því það er stórt skref að sitja fyrir í þessum auglýsingum. Án hennar hefði þetta aldrei tekist," sagði Vilborg Markaðsdeild Össurar velti talsvert lengi vöngum yfir þessari hugmynd en lét svo til skarar skríða og afraksturinn varð verð- launaauglýsing. „Okkur hefur oft tekist að setja saman mjög góðan hóp til að vinna að auglýsingum Össurar. I þessu tilviki vissum við strax Þessi auglýsing fékk einnig tilnefningu í flokki tima- ritaauglýsinga á árlegri auglýsingahátíð l'MARKS. ---------- utfœrslum. “myndir eru til { mismuna Auglýsandi: Sœfilast Framleiðandi: Einn tveir og Þrir 25

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.