Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 35
STJÓRNUN
Snýsl um stjórnun
og íjármál
Guðmundur Ingvarsson, framkvæmdastjóri hjá
/
Ingvari Helgasyni, er formaður HSI.
uðmundur Ingvarsson, einn þriggja framkvæmdastjóra
hjá bílaumboðinu Ingvari Helgasyni hf, hefur gegnt starfi
formanns Handknattleikssambands Islands í liðlega 3 ár.
í stjórnartíð hans hefur verið mikill uppgangur og Ijármál HSÍ,
sem löngum hafa verið vandamál, hafa tekið stakkaskiptum til
hins betra.
„Eg tel að viðskiptareynsla mín nýtist mér á margan hátt í for-
mannsstarfi hjá Handknattleikssambandi ís-
lands. Formennska í sambandi eins og HSÍ
er eins og að stjórna fyrirtæki. Eg kom inn í
stjórn HSI árið 1993, en tók við formanns-
starfinu árið 1996,“ segir Guðmundur.
„Samband eins og HSI snýst fyrst og
fremst um stjórnun og tjármál. Sérsamband
eins og HSI verður aldrei rekið með neinum
stórum hagnaði eins og gæti gerst í fyrir-
tækjum, en markmiðið hlýtur að vera að
halda rekstrinum réttum megin við núllið.
Helst þyrfti að ná einhveijum afgangi til að skapa svigrúm. Þegar
ég kom að þessu sá ég að það væri sambandinu mjög í hag að fá
vana viðskiptaaðila inn í stjórnina.
Stjórn HSI er í dag eingöngu skipuð viðskiptaaðilum sem eru í
stjórnunarstöðum hjá góðum fyrirtækjum. Allir eru þeir tilbúnir
að leggja á sig vinnu fyrir HSÍ. Það er ekki beinlínis stefna HSÍ að
málum sé þannig háttað, en þau hafa einhvern veginn þróast
þannig og hefur gefist vel. Þessir aðilar eru Siguijón Pétursson í
SKYRR, Jóhanna Agústa Sigurðardóttir úr VÍB, Bjarni Ásgeir Jó-
hannsson úr Reykjagarði, Goði Sveinsson úr Úrval/Útsýn, Hall-
gunnur Skaptason úr Fosshótelum og Baldur Guðnason úr Sam-
skipum. Allt er þetta fólk úr stjórnarstörfum og mjög samhentur
hópur.“
Breiðfylking góðra manna „Það hefur gengið bara nokkuð vel að
finna tíma fyrir starf mitt hjá HSÍ, en þvt er ekki að neita að það fer
drjúgur tími í þetta. Við erum þrír bræðurnir framkvæmdastjórar
hjá Ingvari Helgasyni hf og Bílheimum ehf og við ræddum það
auðvitað okkar á milli þegar ég tók að mér formennskuna hjá HSÍ.
Ég verð að segja að sá tími sem farið
hefur í starfið hjá HSI hefúr miklu
fremur komið niður á konu og börnum
heldur en fyrirtækinu Ingvari Helga-
syni. Hins vegar er mikilvægt að benda
á að starfið hjá HSÍ byggist íjarri því á
starfi eins manns, heldur miklu fremur
á breiðri fylkingu góðs fólks.
Við í HSI höfúm ekkert að gera við
fólk sem nennir ekki að leggja eitthvað
á sig, en allir í stjórn HSÍ eru tilbúnir
að fórna tíma sínum. Við erum ekki aðeins með gott fólk í stjórn
HSI, heldur erum við einnig svo lánsöm að vera með úrvalsmenn
í öllum nefndum sérsambandsins. Það leggur drjúga vinnu á sig
þrátt fyrir að vera allt önnum kafið í sinni eigin vinnu.
Vandamál HSI voru hér fyrir nokkrum árum íjárhagsmálin, en
þau hafa hins vegar færst til betri vegar. Við erum jafnvel að sjá
fyrir endann á tjárhagsvandræðum HSÍ og
það er aðallega að þakka breiðfylkingu fólks
sem hefur áhuga á handbolta og hefur lagt
hönd á plóginn. Fjármálin verða hins vegar
alltaf þáttur sem sambandið verður að huga
að. Miklar kröfur eru gerðar til HSÍ og það er
verkefni hverrar stjórnar að halda vel utan
um budduna og eyða handbæru fé á skyn-
samlegan hátt,“ segir Guðmundur.
Útbreidd íþrótt „Ég tel að við hjá stjórn HSÍ
þurfum að gera gangskör að því að upplýsa fólk betur um það
hvað handbolti er. Handbolti er ákveðin menning hér á landi og
eina flokkaíþróttin á landinu þar sem við íslendingar höfum kom-
ist á blað á alþjóðavísu. Margar gagnrýnisraddir segja sem svo að
það sé enginn vandi af því að handbolti sé ekki útbreidd íþrótt Það
er hins vegar tómt kjaftæði því handbolti er spilaður i 165 þjóð-
löndum heims. Lartgflest þeirra, eða 139, eru aðilar að IHF
(International Handball Federation). Allt tal um annað, eða þegar
menn eru að reyna að hífa sjálfan sig upp á kostnað handboltans,
er tómt bull.
Ef við hins vegar tölum um vandamál allra sérsambanda innan
iþróttahreyfingarinnar, þá er brotthvarf ungra íþróttamanna eitt af
þeim. Mikið er um að íþróttamenn hætti í sinni grein, telji sig ekki
fá nægi tækifæri og telji ekki svara kostnaði að standa í þessu.
Annað vandamál, sem blasir við sérsamböndunum, er fækkandi
áhorfendaíjöldi á kappleikjum. Ég held að það eigi við um flestar
íþróttagreinar innan ISI. Við verðum einnig að koma því að hjá
fólki að íþróttir eru stór hluti menningar íslendinga og stórksot-
legt uppeldisatriði," segir Guðmundur. 33
BÆTTUR FJÁRHAGUR
Við erum jafnvel að sjá fyrir endann á fjár-
hagsvandræðum HSÍ og hað er aðallega
að bakka breiðfylkingu fólks sem hefur
áhuga á handbolta og hefur lagt hönd á
plóginn. Það er vekefni hverrar stjórnar að
halda vel utan um budduna.
- Guðmundur Ingvarsson
Hvíld frá viðsMptunum
Eggert Magnússon, framkæmdastjóri kexverksmiðj-
unnar Fróns, er forseti KSI.
ú er liðinn nær áratugur síðan Eggert Magnússon tók að
sér forsetastarf hjá Knattspyrnusambandi íslands, einu
stærsta sérsambandi íþróttahreyfingar landsins. A hans
stjórnartíma hafa umsvif KSÍ vaxið
umtalsvert og Eggert verið talinn far-
sæll í starfi. Eggert hefur miklu lengur
verið forstjóri kexverskmiðjunnar
Fróns, en ekki látið það starf aftra sér
frá því að gegna forsetastarfinu hjá
KSÍ af myndarbrag. Það kom blaða-
manni á óvart að Eggert sinnirýmsum
öðrum störíúm fyrir utan þau sem hér
á undan eru talin.
■■■■■■■■■■■■■■■■■
35