Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 28
VIDTAL
□ essi niðurstaða réttarins hefur vakið talsverða athygli
vegna þess að í Héraðsdómi var talið að bannið við
áfengisauglýsingum bryti í bága við lög um tjáninga-
frelsi og gengi þvert gegn ákvæðum stjórn-
arskrár. Taldi Héraðsdómur rétt að láta
ákærða njóta vafans og sýknaði hann af
öllum ákæruatriðum.
Allur þessi málarekstur á sér talsverða
forsögu á markaðnum þar sem innlendir
bjórframleiðendur og heildsalar sem
flytja inn
bjór hölðu alllengi stigið línudans við mörkin sem liggja milli
þess sem má og ekki má í þessum efnum.
Ohætt mun að segja að dulbúnar bjórauglýs-
ingar hafi vervið orðnar svo algeng-
að þurfa að kæra ein-
hvern. Þegar héraðsdómur felldi
sinn dóm fylgdi mikil skriða opinskárra
bjórauglýsinga í kjölfarið. Ef marka má yfirlýsingar lögreglu-
stjóra verða allir sem auglýstu bjór kærðir á sömu forsendum
og Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Jón Snorri.
Engín stefna til í áfengismálum Fijáis versiun hitti Jón
Snorra að máli og spurði hann hvort hann væri sáttur við
dóminn?
„Eg er það í rauninni ekki. Hæstiréttur vitnar til ályktunar
Alþingis frá mars 1991 þar sem sett er fram áætlun í 32 liðum
um heilbrigðismál. 9. liður ijallar um að draga þurfi úr neyslu
áfengis. Hæstiréttur kýs að nýta sér þetta sem stefnu ríkis-
stjórnarinnar í áfengismálum. Það er engin stefiia til í áfengis-
málum. Með því að vísa til undanþágu laga um tjáningarfrelsi
þar sem það varði heilsu manna og tengja þetta tvennt við
órökstuddar fullyrðingar um að auglýsingar hvetji til áfengis-
kaupa komast þeir að sinni niðurstöðu," sagði Jón Snorri.
„Þessi dómur Hæstaréttar er ekki í takt við tímann. í dag
eru erlendar áfengisauglýsingar í sjónvarpsstöðvum inni á
nánast hverju heimili, bæði beinar auglýsingar og óbeinar. Er-
lendir bjór- og áfengisframleiðendur eru orðnir stærstu
kostendur margra íþróttaviðburða sem íslensku sjónvarps-
stöðvarnar sýna. Með þessu er staðreynd að íslenskirframleið-
Dómur Hæstaréflar
Jón Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Ölgeröar Egils Skallagrimssonar,
gerst brotlegur viö lög sem banna áfengisauglýsingar og dæmdi
Reglur Evróputiíngsins um áfengisauglýsingar; 15. grein:
S
Sjónvarpsauglýsingar og fiarkaupainnskot um áfengi skulu
hlíta eftirfarandi viðmiðunarreglum:
a) Þau mega ekki beinast sérstaklega að ólögráða börnum eða
ungmennum né sérstaklega sýna þau drekka áfenga drykki.
b) Þau mega ekki tengja neyslu áfengis aukinni líkamlegri
færni né heldur akstri.
c) Þau mega ekki skapa þá ímynd að neysla áfengis eigi þátt í
félagslegri eða kynferðislegri velgengni.
d) Þau mega ekki ekki halda því fram að áfengi hafi lækninga-
mátt eða að það sé örvandi, sefjandi eða leið til að leysa per-
sónuleg vandamál.
e) Þau mega ekki hvetja til óhóflegrar neyslu áfengis eða sýna
bindindi eða hófdrykkju í neikvæðu ljósi.
f) Þau mega ekki leggja áherslu á hátt áfengismagn drykkj-
anna sem jákvæðan eiginleika.
-v
28