Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 51

Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 51
STJÓRNUN Nokkrir afkunnustu bœklunarlœknum landsins tóku sig tilfyrir rúmu ári og stofnuðu Stoðkerfi ehf sem rekur Læknastöðina íAlftamýri. Fyrir rúmu ári stofnuðu þeir Stoðkerfi ehf. sem rekur Lœknastöðina í Alftamýri. Hér eru þeir á fyrsta aðalfundi þess á Hótel Borg á dögunum. Fremri röð frá vinstri: Agúst Kárason bæklunarlœknir og Stefán Carlsson bæklunarlœknir. Aftari röð frá vinstri: Sighvatur Snœ- björnsson svœfingarlæknir, Sigurður Asgeir Kristinsson, bæklunarlæknir og framkvœmda- stjóri, og Brynjólfur Jónsson bœklunarlœknir. Þeir eru ekki bara kunnir læknar - heldur líka hluthafar, sem verða nú að tileinka sér viðskiþtalegan þankagang, eins og að halda aðalfund, leggja fram ársskýrslu, fylgjast með tækninýjungum, marka fyrirtæki stefnu í Ijósi framtíðarsýnar - en umfram allt veita viðskiptavinum sínum, sjúklingum, þjónustu sem stenst alla samkeppni - og helst rúmlega það. Læknastöðin toðkerfi ehf., sem rekur Læknastöðina í Álftamýri 5, var stofnað fyrir rúmu ári af þremur bæklunarlæknum; Ágústi Kárasyni, Brynjólfi Jónssyni og Stefáni Carls- syni og svæfingarlækninum Sighvati Snæbjörnssyni. Um áramótin bættist Sig- urður Ásgeir Kristinsson í hópinn en hann hefur tekið að sér starf framkvæmdastjóra. Alls starfa sautján læknar á stöðinni, tveir hjúkrunarfræðingar, einn sjúkraliði og tveir læknaritarar annast móttöku og skrásetningu. Flestir læknanna starfa einnig sem sjúkra- húslæknar á höfuðborgarsvæðinu. Stoðkerfi ehf. er einkahlutafélag sem rekur Læknastöðina og á húsnæðið í Alftamýr- inni enda segja þeir ekki mögulegt að reka svona viðamikla starfsemi í leiguhúsnæði. Móttaka og skrifstofur læknanna eru á götuhæðinni en niðri eru tvær skurðstofur, vökn- unarherbergi, lager, áhaldaherbergi og fleira sem tengist slíkri starfsemi. Læknarnir höfðu sjálfir umsjón með breytingum á húsnæðinu þvi þeir vissu best hvað hentaði. Verð- mæti tækja og áhalda hleypur á tugum milljóna þegar allt er talið. Nýtt tölvukerfi með svokölluðu Gagnalindaforriti var tekið í notkun en það er sama kerfið og heilsugæslu- stöðvar og sjúkrahús nota. í tengslum við aðgerðir er hægt að taka ljósmyndir af líkams- hlutanum sem unnið er við fyrir og eftir aðgerð. Þær myndir munu síðan vera settar inn í tölvu með sjúkraskrá viðkomandi. „Þetta er mikil ijárfesting; húsnæði sem afskrifast á fjörtíu árum en tæki á þremur til tíu árum,“ segja þeir um fyrirtækið. En af hverju að leggja út í einkarekstur með svona miklum tilkostnaði? „Aðallega til að þekking okkar komi sjúklingum að gagni. Okkur hefur verið kastað til og frá innan Sjúkrahúss Reykjavikur og jafnvel á milli sjúkrahúsa. Við höfum sjaldnast nokkuð um það að segja hvernig, hvenær og við hvaða aðstæður gera á hlutina. Alltaf fjölgar þeim sem stjórna á meðan þeim fækkar sem vinna verkin. Oft er lítið tillit tekið til þarfa sjúklinga og biðlistar lengjast. Með einkareknum skurðstofum má létta á sjúkrahús- unum en eftir sem áður eru þau nauðsynleg þegar um áhættumeiri aðgerðir er að ræða Verðmæti tækja og áhalda hlaupa á tugum milljóna króna. Brynjólfur Jónsson bæklunarlæknir. eða sjúklingar þurfa meira eftiriit og lengri legu,“ segir Agúst. „Ríkið sér um velferðakerfið og síðan er það ákvörðun ríkisvaldsins hver hlutur sjúklings er i kostnaðinum. Við erum verksali en ríkið verkkaupi. I þessum til- fellum er þjónustan viðskipti og það má spyrja hvort ríkið eigi bæði að vera verk- 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.