Frjáls verslun - 01.02.1999, Blaðsíða 48
Auglýsingakostnaður íslenskra fyrirtækja
5 milljónireða minna 23% |
6-10 milljónir 25% |
11-30 milljónir 32% |
31 milljón eða meira 21 % |
Meðaltal 22,9 milljónir kr.
Auglýsingakostnaður hjá á þriðja hundrað íslenskra fyrirtœkja, þeirra
sem auglýsa mest, var að jafnaði um 23 milljónir kr. á síðasta ári.
Hvaða þjónusta er keypt?
Hönnun 98% |
Auglýsingagerð 95% |
~
Birtingaþjónusta 77% |
Markaösráðgjöf 43% |
Fyrirtœki á Islandi kauþa fyrst ogfremst hönnun og auglýsingagerð af
auglýsingstofum - en ekki mikla markaðsráðgjöf
verkefninu lyki. í Svíþjóð vinna menn ekki
eftírkl. 17.00.
Nokia í tíSkU Á ráðstefnunni voru tveir
erlendir fyrirlesarar. Annar var Finninn
Timo Suokko frá auglýsingastofunni SEK
& GREY, sem sér um markaðssetningu
fyrir Nokia. Hann lýsti fyrir ráðstefnugest-
um hvernig vörumerkjastefna Nokia hefur
verið byggð upp og hvernig samskiptum
æðstu stjórnenda Nokia og auglýsingastof-
unnar væri háttað.
„Stjórnendur Nokia koma að auglýs-
inga- og kynningarmálum fyrirtækisins í
miklum mæli. Þeir hafa náð
þessum árangri á heims-
markaði með mjög mark-
vissri uppbyggingu á sínu
vörumerki. Timo bentí á aðra
japanska símategund sem
enginn kaupir þrátt fyrir að
hún sé jafngóð og Nokia sím-
inn. Til marks um árangur
markaðsstarfs Nokia benti
Timo jafnframt á að fyrir 7
árum þekktu einungis 3-4%
fúllorðinna Evrópubúa vöru-
merkið Nokia en núna er hlut-
fallið komið í 73%. Nokia var
áður í pappírsiðnaði og öðru
slíku. Fyrirtækið hefur breyst
gífurlega og er nú fyrst og
fremst á fjarskiptamarkaðnum.
Reyndar segjast þeir ekki vera á
fjarskiptamarkaði heldur á
tískumarkaði því það sé komið í
tí'sku að nota GSM síma.“
Hinn erlendi fyrirlesarinn var
Daninn Lars Kruse Thomsen frá
House of Prince, sem er stærsta
dótturfyrirtæki Scandinavisk
Tobakskompani. Hann sagði frá
því að þrátt fyrir að fyrirtæki hans
væri einn stærstí auglýsandi á
Norðurlöndum væru einungis
þrír menn starfandi í markaðs-
deildinni. I staðinn nýtir fyrirtækið þrjár
stórar auglýsingastofur í umtalsvert fleiri
verkelhi heldur en menn gera hér á landi.
Sumar stofurnar hafa starfað fyrir þá í ára-
tugi. Stofurnar koma að öllu ferlinu og
vinna auk þess að ráðgjöf.
Hallaði á auglýsíngastofur Að matí for
svarsmanna auglýsingastofanna eru að-
stæður talsvert sérstakar hér og ræður
smæð markaðarins þar mestu um. Við
gætum ekki reiknað með að allt væri sam-
bærilegt við það sem gerist erlendis.
Margir voru sammála um að það hallaði á
auglýsingastofurnar í umræðunni. Því hún
snerist kannski meira um að auglýsendur
væru að gagnrýna auglýsingastofurnar.
Könnunin er talsvert í þá áttína líka. „Báð-
ir þurfa auðvitað að bæta sig ef samskiptín
eiga að batna,“ segir Ingólfur.
Menn vilja að auglýsingastofurnar setji
sig betur inn í aðstæður fyrirtækjanna og
markaðinn sem þau starfa á. Einnig þurfi
þær að skilja fjárhagslcg atriði í starfsemi
fyritækjanna. Að hvaða markmiðum vinn-
ur fyrirtækið tíl lengri tíma, hvaða fjármun-
ir eru tíl ráðstöfunar í markaðssetningu og
hvernig er skynsamlegast að
veija þeim. Það er ekki nóg að
auglýsingastofurnar hugsi ein-
göngu um að framleiða auglýs-
ingar fyrir ákveðna miðla held-
ur þurfa þær einnig að skil-
greina markhópa. Þær þurfa
auk þess að fá upplýsingar um
hvaða árangri viðkomandi að-
gerðir hafa skilað.
„Margir hafa kvartað yfir
háum reikningum frá auglýs-
ingastofum. Upphæðirnar
hafa í sumum tilfellum komið
viðskiptavininum á óvart.
Það er greinilegt að menn
átta sig ekki alveg á því hvað
auglýsingafólkið leggur í
vinnuna. Auglýsendur fá
reikning og verða hinir
verstu. Sumir bentu á að
auglýsingastofurnar þyrftu
að útskýra betur hvað lægi
að baki vinnunni. Eg held
að í mjög mörgum tílfellum
sé það vegna þess að menn
hafi ekki talað nægilega vel
saman tíl þess að átta sig á
því hvað þeir eru að biðja
um og hvaða vinna liggur
að baki viðkomandi
verki.“ S3
Skiptu um auglýsingastofu á árinu 1998
Um 13% fyrirtœkja á íslandi skiptu um auglýsingastofu á síðasta an
en um 17% í Danmörku.
Atriði sem skinta tvrirtæki miklu máli
: 97 %J
9B"/J
96°/oJ
91“/oj
Mikil hugmyntJaauðQÍ
Hætni markabs & kynningarm. 84°/o|
79%J
Aö stofan vinni verölaun 21%1
Aö stofa sé stór Jio%
Alþjóöleg tengsl j_j8%
þeirra vinfii til vcrðlaufia.
48