Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Síða 34

Frjáls verslun - 01.02.1999, Síða 34
STJÓRNUN Reynsla í viðskiptum tryggir meiri aga Jafet Olafsson, framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar, er formaður Badmintonsambands Islands. nafet Olafsson, forstjóri Verð- bréfastofunnar, hefur gegnt formennsku í Badminton- sambandi Islands írá árinu 1996 og miklar framfarir hafa átt sér stað í hreyfingunni undir hans formennsku. „Það er enginn vafi á því að við- skiptareynslan nýtist mér vel í for- mennsku sérsambands eins og Bad- mintonsambandi íslands, en þar hef ég gegnt formennsku í rúm 3 ár. Markmiðið í því eins og í öðrum rekstri er að reka sambandið nokkurn veginn hallalaust. Við erum ekki að streða í því eins og í daglegum rekstri fyrirtækja að skila góðum hagnaði til hluthaf- anna, heldur fyrst og fremst að hafa gott skipulag á rekstrinum og reisa okkur ekki hurðarás um öxl,“ segir Jafet. „Badmintonsambandið stendur reyndar mjög vel Ijárhagslega, skuldar nánast ekki neitt og meginmarkmiðið er að eyða ekki meira en aflað er. Viðskiptareynslan nýtist mér vel að því leyti að ég þekki mjög vel til í íslensku viðskiptalífi og það er auðveldara fyrir mig að afla peninga fyrir þetta sérsamband heldur en annan aðila. Eg lít þannig á málin að ég hafi ekki leyfi til þess að reka Bad- mintonsambandið öðru vísi en svo að reksturinn sé nálægt núlli. Við erum ekki að tala um að reka BÍ með hagnaði, þó að við vild- um gjarnan gera það, en við eigum að verja öllum þeim tekjum sem við náum inn eins skynsamlega og hægt er. Það er sama markmið og menn hafa í við- skiptarekstri í dag. Það er mjög ánægjulegt að menn úr viðskiptalífinu taki að sér rekst- ur hjá sérsamböndum. Þeir koma inn með nýja vídd, sýna þekkingu og hafa yfirleitt góð viðskiptasambönd. Eg vil fullyrða að það verður meiri agi í rekstri þessara sérsambanda því verið er að glíma við svipuð mál og í venjulegum fyrirtækjarekstri. Það er SKIPULEGGJA ÞARF TIMA SINN VEL Það getur oft verið erfitt að finna tima tll að sinna formennskunni. En bað er með það eins og ýmislegt annað; mikilvægt er að skipuleggja tima sinn vel. - Jafet Úlalsson peninga frá þeim tíma. Ég skrepp í dag í öldungamót einstaka sinnum, enda hef ég afskaplega gaman af því. Það eru margir klúbbar starfandi innan félaganna. I badmin- tonheiminum er það eitt félag sem ber ægishjálm yfir önnur félög, TBR en þar er ég félagi. Innan TBR eru margir klúbbar starfandi eins og „Trukkar”, „Lurkar” og „Gammelmands holdet”. Ég er búinn að vera meðlimur í síðastnefnda klúbbnum í yfir 20 ár. Það sem er skemmtilegt og jákvætt við badminton er að hægt er að stunda það frá 7 ára aldri nánast fram á grafarbakkann. Sá elsti sem er að spila badminton í dag og er við hliðina á mér í hverri viku er 84 ára gamall. Vinsæl íþrott Badmintoníþróttin hefur vaxið gífurlega á síðustu árum. Hún er sennilega í þriðja eða fjórða sæti yfir fjölmennustu íþróttagreinar landsins í dag. Sérstaklega hefur orðið ánægjuleg þróun í þessum málum úti á landi því með tilkomu nýrra íþrótta- húsa er alls staðar gert ráð fyrir að menn getí stundað badminton. Við hjá Bamdintonsambandinu höfúm gert okkar til að auka á út- breiðsluna gefið spaða og kúlur til íþróttahúsa. Við vorum að taka það saman um daginn að á síðustu 4 árum höfum við gefið um 600 spaða og með því að deila í þá tölu með fjórum er hægt að finna út hve margir nýir badmintonvellir hafa verið teknir í notkun á þess- um tíma.“ Skipuleggja tímann „Það getur oft verið erfitt að finna tíma tíl að sinna formennskunni í Badmintonsambandinu. Það er með það eins og ýmislegt annað, mikilvægt er að skipuleggja tíma sinn vel. Ég er með önnum kafna framkvæmdastjóra, slökkviliðsstjóra og alþingismann með mér í stjórn BÍ og allir eru í tímapressu. Við fundum yfirleitt hálfsmánaðarlega og stundum vikulega ef mikið stendur tíl. Við reynum að nýta eitt hádegi í viku tíl þess og skipt- um þar með okkur verkum. Þó að við séum með framkvæmda- stjóra í hlutastarfi getur hann ekki annað öllum verkefnum og við þurfum oft að skipta niður tímafrekum verkum á stjórnina. Það hefur vakið ánægju okkar að sjá árangur erfiðis okkar en gott dæmi um það er góður árangur í Belfast þar sem ísland sigr- aði, en þar kepptu 20 Evrópuþjóðir. Það staðfestir þá trú okkar að við séum á réttri leið, miklar framfarir eru í greininni. Það er eins með það starf eins og venjulegan viðskiptarekstur, að þegar vel gengur, verða störfin léttari. mjög auðvelt að kafsigla eitt sérsamband Ijárhagslega, setja sér mjög háleit markmið sem nást ekki og sitja eftir með skuldabagg- ann. Sem betur fer hefur íþróttahreyfingin tekið sig verulega á með sín flármál. Það er keppikefli allra sérsambanda að hafa sín fjármál í lagi í dag.” Efnilegur í badminton „Formennska hjá Badmintonsambandinu er skemmtileg reynsla sem gefur mér tækifæri til þess að vera í sambandi við annað fólk en ég er dags daglega í þessum fjármála- heimi. Ég hef alla tíð haft áhuga á badminton og hef löngum gant- ast með það að ég sé ennþá efnilegur í íþróttínni. Ég var Reykja- víkurmeistari á aldrinum milli 10-15 ára og á nokkra verðlauna- Atvinnumennska Atvinnumennska er ekki tíl staðar á Islandi í badminton. Hálfatvinnu- mennska er hins vegar til staðar á Norður- löndunum. í dag eru 4 íslendingar sem stunda badminton í útlöndum og eru að reyna að komast í at- vinnumennsku. Einn þeirra má segja að sé orðinn hálfatvinnu- maður, Tómas Viborg. Til þess að ná árangri í badminton þarf að sinna því, ferðast mikið og fara á mót erlendis. Mestu framfarirnar eru hjá þeim sem eru erlendis núna að æfa og keppa, en þeir stefna flestír á þátttöku í Olympíuleikunum í Sid- ney. Við höfum reyndar um langt árabil haft tvo mjög góða bad- mintonleikara sem hafa verið í nokkrum sérflokki, Brodda Krist- jánsson og Arna Þór Hallgrímsson. Þeir hafa sýnt yfirburði á sínu sviði hérlendis í liðlega 20 ár og sýnt mjög gott fordæmi. Að vísu er nú Islandsmót framundan og blikur á lofti, yngri menn eiga nú ef tíl vill möguleika vegna þeirra framfara sem orðið hafa,“ segir Jafet. 53 34

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.