Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Qupperneq 44

Frjáls verslun - 01.02.1999, Qupperneq 44
arkmiðið með rekstri Útflutnings- ráðs er að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að selja vörur og þjónustu erlendis. Til þess að svo megi verða stundar Útflutningsráð umfangs- mikla upplýsingagjöf, fræðslu í formi út- gáfustarfsemi og námskeiðahalds og skipuleggur þátttöku íslenskra fyrirtækja í sýningum um allan heim. Upplýsingagjöf Útflutningsráð tekur þátt í starfsemi sem fjármögnuð er af Evrópusam- bandinu og felst í rekstri 250 upplýsingaskrif- stofa, Euro Info Centre. „í gegnum þessar skrif- stofur og okkar eigin upplýsingagjöf vinnum við árlega úr um eitt þúsund fyrirspurnum erlendis frá um vörur og þjónustu íslenskra fyrirtækja. Við sendum fyrirspurnirnar áfram til fyrirtækj- anna eða svörum þeim beint. Á sama hátt öfl- um við svara við fyrirspurnum íslenskra fyrir- tækja, t. d. varðandi tollamál eða annað sem þau óska upplýsinga um varðandi erlendan markað," segir Jón Ásbergsson, framkvæmda- stjóri Útflutningsráðs. Jón Ásbergsson, framkvœmdastjóri Útflutn- Frá sýningu íslenskra hönnuða í Bella Center ingsráðs. í febrúar síðastliðnum. komnir tíu bæklingar sem hafa ekki einungis nýst íslenskum fyrirtækjum heldur einnig náms- mönnum sem eru að vinna að margvíslegum verkefnum á sviði erlendrar markaðssetningar. Einn liður í fræðslu og upplýsingamiðlun Út- flutningsráðs undanfarin níu ár byggir á kennsluverkefninu „Útflutningsaukning og hag- vöxtur", kennslu í markaðssókn erlendis. Verk- ustu og áætlun um hvernig komast skuli inn á markaðinn. Hátt í 70 fyrirtæki hafa tekið þátt I námskeiðunum. Sum þeirra voru lítil verkstæði í byrjun en eru orðin stórfyrirtæki. Því má segja að árangurinn hafi verið mjög góður." Venture lcelander verkefni sem hefur svip- að markmið og „Útflutningsaukning og hag- vöxtur". Markmiðið er að kenna fyrirtækjum i Útflutningsráð stuðlar að markað mnar voru eða þjón- Útgáfumál Með útgáfu fréttablaðsins Útherja kynnir Útflutningsráð starfsemi sína og þau verkefni sem unnið er að hverju sinni. Einnig ergefin út útflytjendaskrá Export Direct- oryí samvinnu við Miðlun og tímaritið lceland Business í samvinnu við lceland fíeview. Við þetta bætist útgáfa bæklinga sem kallast Holl- ráð fyrir útflytjendur. í þeim geta fyrirtæki áttað sig á auðveldan hátt á flestu því sem snýr að útflutningi Út eru efnið byggir á írskri fyrirmynd. Sambærileg kennslustarfsemi fer fram í 20 löndum og þessi aðferðarfræði hefur alls staðar reynst mjög vel að sögn Jóns. „Útflutningsráð leggur til mark- aðsráðgjafa og viðskiptadeild Háskólans starfsmann á haustönn sem vinnur talnalegt efni fyrir fyrirtækin. í lokin eru fyrirtækin komin með í hendur skýrslur um markaðs- setningu ákveð- upplýsingaiðnaði að kynna sig fyrir hugsanleg- um fjárfestum. í lok verkefnisins er haldið þing og fjárfestunum er boðið hlusta á kynningu fyr- irtækjanna. í framhaldi af þinginu hafa margir, bæði innlendir og erlendir fjárfestar, fjárfest f fyrirtækjunum. Þátttaka í sýningum „Árlega skipuleggur Útflutningsráð þátttöku íslenskra fyrirtækja í 5- 7 alþjóðlegum sýningum. Við sjáum um allan undirbúning og nauðsynlegt er að skipuleggja sýningarnar mjög langt fram í tímann. Megin- áhersla hefurverið lögð á sjávarútvegssýningar en undanfarið hafa menn verið að fikra sig yfir í aðrar atvinnugreinar, m.a. á sviði hugbúnaðar, og íslensk fyrirtæki hafa þrívegis tekið þátt í stærstu upplýsingatæknisýningu heims, í Hannover. Nýlega stóð ráðið fyrir þátttöku níu fatahönnuða í sýningu í Bella Center. Þótti hún takast vel. í bígerð er að skipuleggja vörusýn- ingu í sumar í tengslum við heimsmót íslenskra hesta í Þýskalandi og taka þátt í sýningu á vist- vænum vörum. Þorgeir Pálsson, sjávarútvegssvið, Katrín Björnsdóttir, sýningarsvið, Vilhjálmur Guð- mundsson, iðnaðar- og þjónustusvið, og Berg- lind Steindórsdóttir, sýningarsvið. 44

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.