Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Page 47

Frjáls verslun - 01.02.1999, Page 47
MARKAÐSMAL niðurstöðurnar við dönsku könnunina. í ljós kom til dæmis að á Islandi er meira um útvarps-, sjónvarps- og dagblaðaauglýsing- ar heldur en hjá íyrirtækjum í Danmörku. Danir nota meira markpóst, útiskilti, tíma- rit, strætisvagna og kostun. „Það urðu þó talsvert miklar umræður og meiri hiti í þeim en maður er vanur. Könnunin hjálpaði mönnum til þess að opna umræðuna. Það er auðvitað tilfinn- ingalegt, oft á tíðum, hvernig fólk upplifir samskiptin. Þetta er auðvitað eins og í sam- skiptum hjóna eða sambúðarfólks. Ef tek- ið er tillit til könnunarinnar og umræðunn- ar sem fylgdi í kjölfarið er margt sem bet- ur mætti fara í samskiptum þessara aðila. Menn voru sammála um að það væri mjög mikilvægt að trúnarðartraust og gott sam- band væri þar á milli. Auglýsingastofan er í raun oft hluti af markaðsdeild fyrirtækis- ins. Hún þarf að styðja við fyrirtækið og starfsfólk markaðsdeilda. Meira um skyndikynni Þegar farið var að huga að samskiptamálunum kom í ljós að 47% fyrirtækjanna sem svöruðu í könnun- inni skipta við eina auglýsingastofu, 18% við tvær, 6% við þrjár eða fleiri og 29% skipta ekki við auglýsingastofu. Könnunin leiddi í ljós að 13% fyrirtækja skiptu um auglýsingastofu í fyrra og þar að auki íhug- uðu 22% fyrirtækja að skipta. Til saman- burðar má geta þess að 17% fyrirtækja skiptu um auglýsingastofu í Danmörku í fyrra.“ Að sögn Ingólfs eru helstu ástæður þess að menn skipta um auglýsingastofu á Islandi léleg samvinna eða í 28% tilvika. Eingöngu 13% í Danmörku kvarta yfir lé- legri samvinnu. A Islandi kvörtuðu 17% að- spurðra yfir því að þjónustan væri dýr en aðeins 11% í Danmörku. Menn bera því einnig við að þeir vilji endurnýjun og nýjar hugmyndir eða 28%, bæði hér og í Dan- mörku. „Fyrirtæki á íslandi kaupa fyrst og fremst hönnun og auglýsingagerð af aug- lýsingastofunum ásamt birtingarþjónustu en ekki mikla markaðsráðgjöf. Því er öðru- vísi farið í Danmörku. Þar er hlutfallið mun hærra í annarri þjónustu. Af því má draga þá ályktun að sambandið á milli auglýs- ingastofa og auglýsenda sé nánara í Dan- mörku. Auk þess kemur í ljós að meðal- samband á Islandi er 3 1/2 ár en hátt í sjö ár í Danmörku. Það virðist vera meira um skyndikynni hjá okkur en hjá Dönum. All- ir voru sammála um það að til þess að góð- ur árangur náist þurfi sambandið að vera gott á milli þessara aðila. Þótt ekki sé verið að tala um ævilangt samband er þó æski- legt að það standi í a.m.k. einhver ár.“ Ingólfur segir að vinnubrögð auglýs- ingastofa á Islandi miði nær eingöngu að framleiðslu en ekki að nánu markaðssam- starfi. Þar sem markaðssamstarf er fyrir hendi þarf auglýsingastofan að setja sig inn í málin hjá fyrirtækinu; hvaða markað þurfi að vinna og hvaða markhópi þurfi að þjóna? Fleiri og fjölbreyttari verkefni Að sögn Ingólfs ætla menn að verja meira fé til aug- lýsinga á þessu ári en áður hefur verið gert. Fjórir af hveijum tíu auglýsendum ætla að auka vægi auglýsinga og áætluð hækkun er að meðaltali 22%. í könnuninni var spurt hvort menn reiknuðu með því að fjölga verkefnum sem auglýsingastofa ætti að sjá um á næstu árum. Tæplega helm- ingur aðspurðra, eða 44%, svöruðu því til að það myndi gerast og 38% reiknuðu með því að fela auglýsingastofunum fleiri verk- efni. Þróunin virðist ætla að vera í þá átt á Islandi líkt og í nágrannalöndunum. Aug- lýsingastofurnar munu í framtíðinni koma meira inn í markaðssetningu og undirbún- ing markaðsráðgjafar. „Það er greinilegt að auglýsingastof- urnar munu í framtíðinni fá fleiri og tjöl- breyttari verkefni og koma fyrr inn í um- ræðuna. Auglýsingastofan kemur væntan- lega strax að í vöruþróunarferlinu og verð- ur með alla leið. Hún mun að mörgu leyti sinna sömu störfum og ráðgjafarfyrirtæk- in gera núna og munurinn verður minni á milli auglýsingastofa og ráðgjafarfyrir- tækja. Nafnið auglýsingastofa er varla orð- ið réttnefni lengur. Þetta er faglegur aðili sem sinnir miklu víðtækara hlutverki en eingöngu auglýsingagerð." Að mati sumra á ráðstefnunni eru aug- lýsingastofurnar ekki nægilega duglegar í að markaðssetja sig. Auk þess ganga þær að þeirra mati ekki nægilega langt í því að fá fleiri verkefni frá viðskiptavinum sínum. Stofurnar eru litlar á íslandi og telja sumir það há þeim. Aftur á móti voru menn á því að þær kæmu vel út, faglega séð. Menn hafa kvartað mikið yfir hárri verðlagningu frá auglýsingastofunum. Þrátt fyrir það koma stofurnar hér á landi mjög vel út í samanburði við auglýsingastofúr á Norður- löndunum. Hér er einungis greitt innan við 40% af því verði sem greitt er á Norður- löndunum fyrir sambærilega vinnu. Auk þess var minnst á að hér væri hægt að vinna hraðar þar sem unnið væri þar til Auglýsingakostnaður - væntingar Markaðsstjórarnir telja að þeir eyði meiru í auglýsingar á þessu ári. Um 39% telja að auglýsingakostnaður aukist, um 48% að hann verði sá sami og um 13% að hann verði lœgri. Vegið meðaltal af þessu er 22% aukning á árinu. Fyrirtæki í samstarfi við auglýs- Um helmingur stærstu auglýsenda á Islandi er í samskiþtum við eina auglýsingastofu, eða um 47%. Um 29% auglýsenda eru ekki hjá neinni stofu. Skiptu eða íhuguðu skipti á auglýsingastofu 1998 65% . íhuguðu \ " skipti \\ 22% / Sambúðin er þokkalega trygg. Um 65% aug- lýsenda skiþtu ekki um auglýsingastofu á síð- asta ári. Um 22% íhuguðu það og 13% skiþtu um stofu 47

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.