Frjáls verslun - 01.02.1999, Qupperneq 53
Barnalækna-
þjónustan
Bætt þjónusta við veik börn og foreldra þeirra utan hefð-
bundins vinnutíma varhvatinn að því að 11 barnalæknar
stofnuðu Barnalæknaþjónustuna ehf. árið 1995.
ætt þjónusta við veik börn og foreldra þeirra var hvatinn
að stofnun Barnalæknaþjónustunnar ehf. árið 1995.
Stofnendur voru 11 barnalæknar, almennir og sérfræð-
ingar í ýmsum undirgreinum barnalækninga. Einn af frumkvöðl-
unum er Kristleifur Kristjánsson, sérfræðingur í erfðasjúkdómum
barna. Hann er framkvæmdastjóri Barnalæknaþjónustunnar ehf.
en aðalstarf hans er hjá íslenskri erfðagreiningu þar sem hann er
einn af stofnendum og aðalhluthöfum.
Barnalæknaþjónustan ehf. er til húsa í Domus Medica. Að
sögn Kristleifs er fyrirtækið rekið með lágmarkskostnaði. Fyrir-
tækið hefur 5-6 almennar læknastofur og móttöku til umráða á
fyrstu hæð. Domus Medica á húsnæðið sem læknarnir leigja og
starfsmaður f móttöku er í vinnu hjá Domus Medica.
Virka daga eru í húsnæðinu almennar stofur barnalækna en
starfsemi Barnalæknaþjónustunnar er á kvöldin og um helgar. A
vaktinni eru barnalæknar í Domus Medica svo og aðrir barna-
læknar sem hafa annars aðstöðu víðs vegar um borgina.
„Það var mikill áhugi hjá barnalæknum á því að bæta þjónust-
una við börn og gefa fólki kost á að leita til sérfræðings utan hefð-
bundins stofutíma," segir Kristleifur um aðdragandann að stofnun
Barnalæknaþjónustunnar.
„Fram til þess höfðu foreldrar aðeins kost á að leita til Lækna-
vaktarinnar og á bráðavaktir sjúkrahúsanna. Með tilkomu Barna-
læknaþjónustunnar gafst fólki tækifæri á að leita álits sérfræðings
í barnalækningum utan sjúkrahúsanna þegar um bráðaveikindi
var að ræða.“
Alltaf er starfandi einn sérfræðingur á hverri vakt og annar á
bakvakt. Að sögn Kristleifs er markmiðið að sjúklingar þurfi aldrei
að bíða nema í fimmtán mínútur að hámarki. Ef biðtími lengist er
annar læknir kallaður út. Sjúklingur greiðir sérfræðingsgjald en
ekkert aukagjald þótt heimsókn sé utan hefðbundins stofutfma og
Tryggingastofnun niðurgreiðir heimsóknina samkvæmt hefö-
bundnum reglum.
„Barnalæknaþjónustan hefur sannað gildi sitt því þeim fjölgar
sem leita til okkar. Fyrst og fremst trúi ég að það sé vegna þess að
fólki líki þjónustan og að á henni sé full þörf. T.d. gefst tækfæri til
þess að sami læknir geti fylgt sjúklingi eftir ef með þarf.
Þar sem svo margir læknar sinna starfi sínu þarna er bókhald-
ið f eðli sínu flókið. Haldið er utan um sjúklingabókhald, komu-
nótur, greiðslumáta og aðstöðugjöld læknis með tölvuhugbúnaði.
Barnalæknaþjónustan kaupir aðstöðu af Domus Medica og endur-
selur hana til lækna Barnalæknaþjónustunnar.
Ritarar í móttöku sjá um að bókfæra í tölvu og síðan fer endur-
skoðandi yfir bókhaldið í heild. Annar skrifstofukostnaður er ekki
hjá fyrirtækinu.
Kristleifur Kristjánsson, sérfrœðingur í erfðasjúkdómum barna, er
framkvœmdastjóri Barnalœknaþjónustunnar en aðalstarf hans erhjá
Islenskri erfðagreiningu.
ÁN OPINBERRA STYRKJA
„Barnalæknalijónustan er rekin sem elnkafyrirtæki þeirra iækna sem
bar starfa án opinberra styrkja annarra en mótframlags
Tryggingastotnunar í komugjaldi en Læknavaktin og sjúkrahúsin eru
fjármögnuð með tugmllljóna framlagi úr rikissjóði á ári til að veita f
mörgum tilfellum sambærilega bjónustu."
- Krlstlelfur Kristjánsson
ENGIN VERKFÖLL
„Þegar verkfali heimilislækna vofði yfir fengum við bréf frá borgarlækni
um að búast mætti við auknu álagi á Barnalæknabjónustunni. Það var út
af fyrír sig mlkil viðurkenning á börfinni fyrir biónustu okkar."
MEGA EKKI AUGLÝSA ÞJÓNUSTU
„Læknar mega ekki auglýsa starfsemi sína nema með tilkynningum um
opnun stofu, breyttan stofutíma og flutning stofu. Híns vegar ættu beir
að geta auglýst meira i formi tilkynninga um bjðnustu."
AUKIN SAMKEPPNI LÆKNAFYRIRTÆKJA
„Það er tómt mál að tala eingöngu um ríkisfyrirtæki í lækningum. Þótt
islendingar séu fáir er grundvöllur fyrir einkarekstri og aukinni
samkeppni læknafyrirtækja. Það gefur sjúklingum melra val og
læknispjónustan batnar."
53