Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1999, Side 58

Frjáls verslun - 01.02.1999, Side 58
Helga Rut Baldvinsdóttir er yfirmaður þróunardeildar Euroþay-íslandi. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. Helga Rut Baldvinsdótlir, Europay-islandi kipuriti fyrirtækisins var breytt nýlega og búin til þijú sölusvið og þijár stofn- deildir. Þróunardeild er ein þeirra og ég veiti henni forstöðu,“ segir Helga Rut Baldvinsdóttir hjá Euro- pay-íslandi. „Verksvið þróunardeildar er að annast gæðastjórnun, starfsmanna- mál og uppbyggingu vörumerkjavit- FÓLK undar, eða branding, eins og það heitír erlendis. Við breyttum markaðsstarfinu þannig að við höfum skilið að markaðsstarf vegna sölu á vörum annars vegar og hins vegar markaðsstarf þar sem merki félagsins og ímynd kemur við sögu. Þannig eru .ímyndarmál fyrir- tækisins markvissari og sömu aðilar sem ljalla um þau, hvort sem um er að ræða notkun merkis okkar, auglýs- ingar eða húsakynni fyrirtækisins." Starfsmannamálin taka umtalsverðan tíma Helgu Rutar en alls starfa um 60 manns hjá Europay-íslandi og starfa þeir allir á sama stað, við Ármúla 28-30. Nokk- ur samkeppni er á kortamarkaði en þar hefur Eurocard um 28% hlutdeild í kreditkortum og um 32% í debet- kortum. „Notkun korta fer vaxandi og talið að 75% af einka- neyslu landsmanna fari í gegnum kortreikninga. Er- lendur samanburður sýnir að íslendingar eru ein korta- væddasta þjóð í Evrópu en hérlendis eru að meðaltali tvö erlend greiðslukort á hvern fullorðinn einstakling. Við erum í samkeppni og lítum á það sem okkar hlutverk að halda utan um kortastofninn og annast korthafana okkar eins vel og hægt er.“ Helga Rut mun á næstunni taka þátt í starfshópi á vegum Evrópusambandsins sem Ijallar um ýmis ný- mæli í Ijármálum og kortaviðskiptum sem hún segist vænta sér mikils af. „Það er mikilvægt að kynnast nýjungum áður en þær hasla sér völl á Islandi. Þær breytíngar sem við munum sjá á næstu árum verða einkum svokölluð snjallkort, sem geta fólgið í sér ijölþættari upplýsingar en hefðbundin kort og svokölluð buddukort þar sem inneignin er skráð á kortíð sjálft. Það er svolítill misskilningur í gangi varðandi þessi snjallkort en þau geta nýst á mjög margan hátt. I þeim er tölvukubbur sem getur geymt mikið af upplýsingum og því getur sama kortíð nýst sem debertkort og kreditkort en jafnframt verið ökuskírteini eða að- gangskort og tryggðakort og gegnt þannig fjölþættu hlutverki. Við munum áreiðanlega sjá einhver skref í þessa átt á næsta ári og þróunin hefur verið ör.“ Helga Rut varð stúdent frá MR 1988 og lauk námi í viðskiptafræði, markaðssviði viðskiptaskorar frá HÍ 1995. Hún segist vera alin upp í bankakerfinu en hún starfaði í Sparisjóði vélstjóra frá 16 ára aldri og öll sum- ur með skóla. Hún byrjaði að vinna hjá Eurocard 1993 en vann einnig hjá embættí lögreglustjórans í Reykjavík sem einkaritari lögreglustjóra og við skráningu skot- vopna. Helga er I sambúð með Mána Radmanesh sem starfar sem sérfræðingur hjá Ríkisbókhaldi. Hún á tvö börn, Daníel, átta ára, og Elísu Rut, sex ára. „Eg eyði flestum mínum frístundum með ijölskyld- unni. Börnin eru á þeim aldri að þau þurfa mikinn tíma. A sumrin fer ég stundum út að skokka mér til heilsubót- ar og í gönguferðir. Yfir veturinn er helsta hreyfingin að fara út að leika mér í snjónum með börnunum." B3 TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON 58

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.