Frjáls verslun - 01.02.2000, Blaðsíða 60
MENNINGARBORG
Japönsk menning
Við erum mjög stoltir af því að hafa
fengið tækifæri til að vera einn af
máttarstólpum menningarborgar-
innar,“ segir Hugi Hreiðarsson, kynning-
arfulltrúi Sjóvá-Almennra. ,AHt frá stofn-
un félagsins íyrir tíu árum hefur þátttaka
í menningar- og listalifi landsmanna verið
hluti af starfseminni og því passar menn-
ingarhátíðin vel inn í það sem við erum að
gera. Við viljum gjarnan skilgreina okkur
í víðara samhengi og þar kemur menn-
ingin svo sannarlega inn í.“
Menningarsjóður fyrirtækisins tekur á
ýmsu, svo sem listum og forvörnum og
raunar flestu því sem til heilla er í ís-
lensku samfélagi. Hann var stofnaður árið
1997 og hefur umsóknum í hann farið
stöðugt fjölgandi en veitt er úr sjóðnum einu sinni á ári. Það seg-
ir okkur einfaldlega að menningin er að verða stærri hluti af
daglegu lífi fólks.
Styrkja einstök verkefni Sjóvá-Almennar koma að menningar-
borginni á tvo vegu. Annars vegar með beinum fjárstyrk sem
máttarstólpi og hins vegar með beinum ijárstuðningi við ein-
stök verkefni. Hugi segir nokkuð hafa verið leitað til fyrirtækis-
ins eftir styrkjum af hálfu þátttakenda. „í stað þess að þurfa að
vega og meta fjöldann allan af þeim
verkefnum sem
tengjast menn-
ingarhátíðinni
þá ákváðum
við að velja úr
fjögur sem
við styrkjum
beint.“
Fyrsta verkefriið sem fyrirtækið styrk-
ir heitir Stjörnur himinsins og er verkeihi
sem tengist þroskaheftum. Yerið er að
gera 45 mínútna langa kvikmynd þar sem
ýmsir frægir leikarar leika hlutverk eftir
handriti sem hópurinn hefur sett saman.
Hugi segir þetta verkefhi mjög spennandi
og í bígerð sé að víkka það enn frekar út
með því að styrkja einn einstakan leik-
hóp.
Börn og menning Næsta verkefni er svo
2000 börn sem er samvinna Reykjavíkur
og Kramhússins. I verkeíhinu fá sex ára
börn á höfuðborgarsvæðinu að svala list-
sköpun sinni en haldin verður sýning á
verkum barnanna í endaðan maí.
„Eitt af því sem mér finnst sérstaklega spennandi er þriðja
verkefnið okkar,“ segir Hugi. Olafur B. Thors, framkvæmda-
stjóri félagsins, er aðalræðismaður Japans á Islandi og þvi
fannst okkur tilvalið að styrkja verkefni sem tengst gæti menn-
ingu þess lands. Japanski listamaðurinn Keizo Ushio mun í
sumar verða með myndlistar- og skúlptúrsýningu en verk hans
eru eins konar stærðfræðilíkön, eða tákn, sem hann vinnur í
stein með meitli og bor. Mörg verka hans eru gríðarstór og
geta vegið nokkur tonn. Eitt af hans smærri verkum verður
sýnt hér í anddyrinu í Kringlunni 5 allan júlímánuð og erum við
mjög spenntir fyrir því. Við vonumst að með þessu getum við
fært listina til fólksins því auðvitað kemur tjöldinn allur af fólki
hingað til okkar daglega."
Fyrsta píanókeppnin hér á landi? Síðasta verkið sem Sjóvá-Al-
mennar styrkja er alveg nýtt af nálinni. Það er píanókeppni
ungra píanóleikara sem Unnur Vilhelmsdóttir er í forsvari fyrir
sem fulltrúi Islandsdeildar EPTA Þessi keppni verður
haldin í nóvember og verður keppt í
fimm flokkum sem skiptast niður
eftir þemum og aldri, en enginn
keppandi er eldri en 25 ára. „Mér
skilst að þetta sé fyrsta keppni sinnar
tegundar á Islandi og því er mjög
spennandi að eiga þátt henni,“ segir Hugi
að lokum. ŒJ
Hugi Hreiðarsson
hjá Sjóvá Almenn-
um segir jyrirtœkið
hafa tekið um það
ákvörðun að styrkja beint
jjögur verkefni ásamt því að
styrkja menningarborgina með
fjárframlögum.
Sjóvá-Almennar eru einn af
máttarstólpum menningarborg-
arinnar auk pess sem félagið
styrkirýmis verkefni á hátíð-
inni, eins og sýningu japanska
listamannsins Keizo Ushio.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Mynd: Geir Ólafsson
n»n í