Frjáls verslun - 01.02.2000, Blaðsíða 73
AUGLYSINGAR
nýrra landsvæða. Þeir komu hingað til að fá aðstoð og þessi
kuðungur er árangurinn. Kuðungurinn, ásamt fjallinu Keili,
er í merki Voganna en það sem við gerðum til að ná athygli
fjölmiðlafólks, verktaka og annarra þeirra sem að málinu
sneru, var að við settum lítið útvarp inn i hvern kuðung. Tók-
um svo á leigu útvarpsstöð og sendum út allan daginn skila-
boð í útvarpið litla. Strax um morguninn var kassinn með
kuðungnum keyrður út og ef menn báru kuðunginn upp að
eyranu, eins og menn gera nú gjarnan, þá heyrðu þeir skýrt
og greinilega hversu fysilegt það væri að ganga til samstarfs
við Voga á Vatnsleysuströnd. Þetta skilaði þeim góða árangri
að á aðeins þremur mánuðum tókst að ná fimm ára áætlun-
inni varðandi uppbyggingu á svæðinu."
Erfitt að mæla árangur Mikið af auglýsingum er unnið til
lengri tíma og oft erfitt að mæla beinlínis árangur þeirra. Sér-
staklega þar sem verið er að byggja upp ímynd og styrkleika
vörumerkis, eins og verið er að gera með Mastercard her-
ferðinni. „í upphafi vinnunnar þar kom upp sú hugsun að
vinna inn í hringformið, þ.e. innan í vörumerkið sjálft, og
tengja hringformið við daglegt líf manna, bæði tengt korta-
notkun og með öðrum hætti. Þetta er mjög ögrandi og sníð-
ur mönnum þröngan stakk til að vinna úr en er skemmtilegra
ef vel tekst til. Eurocard hefur verið þekktara vörumerki hér
en Mastercard, en á næstu árum er Mastercard ætlað stærra
hlutverk þannig að með þessari herferð erum við í raun að
leggja grunn að vörumerkjaþekkingu hjá Mastercard.
Europay International hefur leitað eftir kaupum á þessu efni
af okkur og þessa dagana erum við að senda þeim efni til að
nota í bækling sem á að gefa út í sambandi við Evrópukeppn-
ina í knattspyrnu sem fer fram í sumar. Þessum bæklingi
verður dreift um Evrópu þannig að þeir hafa þegar hafið notk-
un á efninu."
Hvíta húsið hefur einnig unnið til verðlauna erlendis fyrir
Mastercard herferðina því 21. janúar sl. fengu þeir verðlaun í
flokki fjármála á Epica auglýsingahátíðinni. Þar kepptu þeir
m.a. við risa eins og American Express svo árangurinn má
heita góður. „Þessi auglýsingaherferð fyrir Mastercard bygg-
ist að stærstum hluta á blaðaauglýsingum, en jafnframt hent-
ar herferðin vel til nota utanhúss, t.d. á veltiskilti, vegna hins
einfalda og sterka myndmáls. Við höfum unnið 30-40 auglýs-
ingar inn í þennan farveg og eigum annan eins fjölda á hug-
myndastigi."
Nog komið? Hvað snertir að mæla árangur ffekar segir Hall-
dór að stundum sjáist árangurinn skýrt og greinilega og megi
til að mynda nefna auglýsingar fýrir Osta- og smjörsöluna og
Mjólkursamsöluna þar sem verið sé að auglýsa vörur og salan
sýni sig um leið. Það sama gildi varðandi ímyndarauglýsingar,
þar sjáist oft árangur vel og nefnir Halldór Islandsbanka sem
dæmi. „Homeblest auglýsingaherferðin fyrir Danól skilaði til
að mynda 30% söluaukningu á einu ári og þann árangur er
auðvelt að mæla. Hinsvegar skiptir áreitið, skilaboðin sem
hinn venjulegi neytandi verður fyrir, hundruðum á hverjum
degi og talsvert þarf til að hafa áhrif en kannski ekki alltaf gott
að vita hvenær nóg er komið eða hversu mikið þarf til að hafa
áhrif. Það þarf líka einhver mótttakari að vera opinn hjá neyt-
andanum því ekki gengur að reyna að haía áhrif til dæmis á
mann sem er á nýjum dekkjum og reyna að selja honum dekk.
Hann einfaldlega hefur ekki áhuga eða þörf.“ H3
Auglýsingarfrá Hvíta húsinu sem unnu:
Útvarpsauglýsing: Minnumst barnanna, framleitt
fyrir Bylgjuna og Jöfur.
/
Kvikmynduð auglýsing: International Homeblest
framleidd fyrir Danól.
/
Dagblaðsauglýsing: Örugg samskipti, framleidd
fyrir Europay ísland.
Tímaritaauglýsing: Peningar, af sama stofni, fyrir
Europay ísland.
Auglýsingaherferð: MasterCard herferðin, fyrir
Europay ísland.
Veggspjald: Logsuða, framleidd fyrir Orkustofnun.
Markpóstur og óvenjulegasta auglýsingin: Vogar
- færast í vöxt, framleidd fyrir Voga á Vatnsleysuströnd.
Aðrar auglýsingar sem unnu lúður:
Vefir fyrirtækja: Vefur Íslandssíma, framleiddur af
Gæðamiðlun.
Vöru- og firmamerki: Merki Prestafélags íslands,
hannað af GSP.
Umhverfisgrafík: Eldhúsið, ytra útlit, hannað af
Mættinum og dýrðinni.
................................................ I
Kynningarefni annað en markpóstur: Platinium
askja SPRON, hönnuð af Birtingi.
X
73