Frjáls verslun - 01.02.2000, Síða 74
Starfsmenn í markaðsdeild Þróunar, Kristinn Olafsson, sem er markaðsstjóri, Edda Friðgeirsdóttir og Einar Sörli Einarsson.
Fv-myndir: Geir Ólfsson
Þróun hf. er ört vaxandi fyrirtæki:
Heildarlausnir og góð þjónusta
Þróun hf. er er eitt elsta starfandi hugbúnaðarfyr-
irtæki á íslandi. Það var stofnað sem Verk
fræðistofa Halldórs Friðgeirssonar í byrj-
un árs 1976. Síðan þá hefur fyrirtækið nær ein-
göngu starfað á sviði heildarlausna með við-
skiptahugbúnað fyrir meðalstór og stór fyrir-
tæki og stofnanir, fyrst með staðlaða viðskipta-
kerfið Birki, sem var hannað af Þróun, en seinni
ár hefur fyrirtækið selt og þjónustað stjórnunar-
og viðskiptahugbúnaðinn Concorde XAL og
Axapta frá danska fyrirtækinu Damgaard. Með til-
komu Axapta eru orðin kynslóðaskipti á sviði við-
skiptahugbúnaðar þar sem kerfið byggist á nýjustu
tækni sem völ er á.
Á síðasta ári sameinaðist Úrlausn Aðgengi Þróun.
Með þeim komu ný kerfi, Innheimtukerfi lögfræð-
inga IL+, fasteignasölukerfið Húsið, hlutafé-
lagakerfið Hlutvís og Réttarríkið sem er
gagnabanki á Internetinu með upplýs-
ingum fyrir lögfræðinga og stofnanir.
Starfsemi Þróunar byggir á gæða-
kerfi samkvæmt TicklT staðli, sem er
sérsniðinn að hugbúnaðarfyrirtækjum
og byggður á ISO 9001. Þróun stefnir
að vottun gæðakerfisins á þessu ári.
Ragnar Þór Ragnarsson, nýr forstjóri Þróunar.
Þróun er ört vaxandi fyrirtæki og hjá því starfa nú á
fimmta tug starfsmanna, en stefnt er að enn frekari
stækkun á komandi misserum. Fyrirtækið státar af
vel menntuðu starfsfólki sem leggur metnað í að
veita viðskiptavinum sínum fyrsta flokks lausnir
og þjónustu.
Ragnar Þór Ragnarsson, nýr forstjóri
Þróunar
Um miðjan mars tekur til starfa nýr for-
stjóri hjá Þróun hf. Hann heitir Ragnar Þór
Ragnarsson og er tölvunarfræðingur frá HÍ.
Ragnar er 29 ára, kvæntur Hólmfríði Einarsdótt-
ur og eiga þau eitt barn. Undan-
farin sjö ár hefur Ragnar starf-
að hjá Samskipum. Síðast
sem forstöðumaður upplýs-
inga og þróunarmála, en þar
áður sem deildarstjóri tölvu-
deildar Samskipa. í þessum
störfum hefur hann öðlast
mikla þekkingu á uppbygg-
ingu viðskiptakerfa hjá stóru,
alþjóðlegu fyrirtæki.
Ragnar hefur einnig mikla
74
HIIHlf'Hlíltfilli'IÍIÍIIÍIHÍ