Fregnir - 01.06.2005, Page 2

Fregnir - 01.06.2005, Page 2
Fregnir. Fréttabréf JJppIýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Fylgt úr hlaði Forsíðumyndin í sumarblaði Fregna að þessu sinni er frá Bókasafni Reykjanes- bæjar sem kynnir starfsemi sína í blaðinu. Safnið er starfrækt í glæsilegu húsnæði og er starfsemin ijölbreytt og öflug. Annars ber að vanda mikið á hefð- bundnu efni frá aðalfundi og skýrslum nefnda og fulltrúa Upplýsingar í ýmsum stjómum og nefndum. Fjallað er um veit- ingu viðurkenninga fyrir bestu fræðibæk- umar. Að þessu sinn hlaut ritið lslensk spendýr viðurkenningu sem besta fræði- bókin fyrir fullorðna árið 2004. Því miður stóðst, eins og svo oft áður, engin fræði- bók fyrir böm lágmarkskröfur. Stjóm Upp- lýsingar ítrekar áskomn á útgefendur um að leggja aukna áherslu á gerð fmmsamdra íslenskra fræðibóka fyrir böm og unglinga. í blaðinu er ennfremur meðal annars birt umsögn um höfundaréttarfmmvarpið, sagt frá GATS og WTO, þátttöku í erlendu samstarfi og ráðstefnum og framvindu fag- legs starfs við innleiðingu Gegnis, sameig- inlegs kerfis bókasafna landsins. Enn sem fyrr hafa félagsmenn verið ötulir við að senda efni til blaðsins og kann stjórn Upplýsingar þeim bestu þakkir fyrir áhugavert efni í gegnum tíðina. fh. ritstjórnar Fregna Þórdís T. Þórarinsdóttir Húsnæðismál Upplýsingar í höfn Upplýsing, Stóreign ehf. og Gnógur ehf. skrifuðu þann 9. júní síðastliðinn undir kaupsamning við BHM vegna hluta (71,7 m2) af 2. hæð Lágmúla 7. Eignarhluti hvers aðila um sig er 1/3. Kaupverðið var alls kr. 7.887.000. Afhending er eigi síðar en 1. maí 2006. Gert er ráð fyrir að ráðist verði í endurbætur á húsnæðinu eftir af- hendingu. Kaupin tryggja Upplýsingu áframhald- andi húsnæði í Lágmúla 7 með svipuðu sniði og verið hefur en eins og kunnugt er átti félagið þess ekki kost að taka þátt í kaupum á nýju húsnæði með BHM. Stjórn Upplýsingar Samráðshópur um fram- kvæmd stefnu ríkisstjómar- innar um upplýsingasam- félagið Stjórn Upplýsingar barst bréf frá Forsætis- ráðuneytinu, dags. 6. júní 2005, þar sem óskað var eftir að félagið tilnefndi fúlltrúa í samráðshóp urn framkvæmd stefnu ríkis- stjómarinnar um upplýsingasamfélagið. Tilnefndar vom þær: Þórdís T. Þórarins- dóttir og Hulda Björk Þorkelsdóttir (vara- fulltrúi). I bréfinu segir ennfremur meðal annars: „Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsinga- samfélagið, Auðlindir í allra þágu, var mótuð og samþykkt á árinu 2004. Stefnan nær til áranna 2004-2007. Forsætisráðu- neyti hefur falið Verkefnisstjóm um upp- lýsingasamfélagið umsjón með og ábyrgð á framkvæmd stefnunnar í samráði við ýmsa lykilaðila í samfélaginu. Nauðsyn- legt er talið að koma á samstarfsvettvangi þar sem saman koma fulltrúar stjómsýsl- unnar og fulltrúar atvinnurekenda, laun- þega, sveitarfélaga og fleiri aðila sem hagsmuna eiga að gæta við þróun íslenska upplýsingasamfélagsins.“ Stjóm Upplýsingar fagnar því að hafa boðist tækifæri til að tilnefna fulltnia í samráðshópinn en reiknað er með að hann hittist nokkmm sinnum á ári, sjá http:// www.forsaetisradunevti.is/upplvsingasam felagid. Stjórn Upplýsingar Vefsetur Bókasafnsins - www.bokasafnid.is Greinar úr árgöngum 22 til og með 26 em aðgengilegar í heild sinni á vefsetrinu en frá og með 27. árgangi 2003 em aðeins að- gengilegir útdrættir. Breyting þessi á rætur sínar að rekja til verklagsreglna um útgáfu Bókasafnsins sem samþykktar voru á vor- mánuðum 2005. Eva Sóley Sigurðardóttir ritstjóri 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 2

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.