Fregnir - 01.06.2005, Side 22
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Upplýsingasamfélagi (InfoSoc) á hinum
Norðurlöndunum.
Þann 26. júní 2004 var gengið á fund
fulltrúa Höfundarréttamefndar Mennta-
málaráðuneytisins til að kynna þeim
sjónarmið bókavarða og áhrif tilskipunar-
innar á bókasöfnum. Fréttir af þeim fundi
hafa birst í Fregnum. I haust ítrekuðum við
ósk okkar til nefndarinnar að fá að gefa
umsögn um fyrirhugaðar breytingar á höf-
undarréttarlögunum.
I framhaldi af bréfasambandi hópsins
við Rán Tryggvadóttur, lögfræðing Fjölís,
samdi hún ýtarlega greinargerð „Fjölís og
eintakagerð vemdaðra verka í söfnum".
Hana má lesa á vefsetri Fjölís. Rán kemst
m.a. að þeirri niðurstöðu að vegna þess að
reglugerð hafí aldrei verið sett til að fram-
fylgja því ákvæði að söfnum sé heimilt að
ljósmynda verk til eigin nota, þá skorti á
að þau geti framfýlgt þeirri upplýsinga-
skyldu sem þeim er sett í lögum. Hún telur
að í Noregi og Danmörku sé aðstaða bóka-
safna betri til að framfylgja hlutverki sínu
og tekur dæmi um reglugerðir sem þar em
í gildi.
Hún telur skýr ákvæði vanta í íslenska
löggjöf og mikilvægt að við endurskoðun
höfundalaganna verði tekið á þeim málum.
Fulltrúum Samstarfshópsins var í mars
boðið að sitja fund með forstöðumönnum
Háskólabókasafna til að hlýða á mál
Sigrúnar Magnúsdóttur um Hlöðuna (staf-
rænt bókasafn Háskólans á Akureyri). Á
þeim fundi var samstaða um að ríki og
sveitarfélög þyrftu að gera rammasamning
við Fjölís um notkun og dreifingu stafræns
efnis á bókasöfnum, líkt og samið hefur
verið um ljósritun í skólum. Slíkir samn-
ingar myndu að öllum líkindum verða hag-
stæðari fyrir bókasöfnin en þegar einstök
söfn eru að semja fyrir sig. Sigrún fór fram
á að fulltrúar hópsins gengju með henni á
fund í Menntamálaráðuneytinu til að ræða
málin og var það samþykkt.
Þann 2. apríl síðastliðinn hélt sam-
starfshópurinn svo fund með fulltrúum
Fjölís í Þjóðarbókhlöðunni. Hann sátu frá
Fjölís Rán Tryggvadóttir, Elín Helgadóttir
og Hörður Bergmann. Fundurinn var mjög
gagnlegur fyrir báða aðila og tóku Fjölís-
menn undir þá skoðun að best væri að
Menntamálaráðuneyti f.h. ríkisstofnana og
sveitarfélög gerðu rammasamninga við
Fjölís um stafræna efnið fyrir söfnin. Því
stærri sem slíkur samningur er því
hagstæðara fyrir söfnin. Nauðsynlegt er að
gera sér grein fyrir notkuninni áður en
samið verður.
f.h. Samstarfshóps um höfundarrétt,
Olöf Benediktsdóttir
Tilnefning til verðlauna úr
minningarsjóði Astrid Lindgren
2004
Á síðasta ári tilnefndi Upplýsing - félag
bókasafns- og upplýsingafræða Guðrúnu
Helgadóttur til verðlauna úr minningar-
sjóði Astrid Lindgren. Hún var einnig til-
nefnd árið 2003.
Tilnefningunni fýlgdi eftirfarandi rök-
stuðningur: „Guðrún hefur auðgað líf ísl-
enskra bama í tvær kynslóðir, en íýrsta
bókin hennar kom út 1974. Aðalefni verka
hennar em tengsl bama og fullorðinna
ásamt skynjun bama á umhverfínu og sam-
félaginu. Bækur Guðrúnar eru uppfullar af
gleði, tilfínningum og samúð með bæði
börnum og fullorðnum. Auk frábærrar frá-
sagnartækni liggur styrkur hennar í að sjá
skemmtilegar hliðar lífsins og virðingu
hennar fyrir persónum sem hún skrifar
um.“
Þorbjörg Karlsdóttir verkefnisstjóri,
Borgarbókasafni - Aðalsafni
Faghópur um millisafnalán
Faghópur um millisafnalán var stofnaður
að frumkvæði Sigrúnar Klöm Hannesdótt-
ur landsbókavarðar í apríl 2004. Þómý
Hlynsdóttir þjónustustjóri millisafnalána
Landsbókasafns íslands - Háskólabóka-
safns leiddi vinnu hópsins. Við skipun
fulltrúa í faghópinn var reynt að fá sjónar-
mið flestra safnategunda. Fulltúar:
Ema G. Ámadóttir, Landspítali - Háskóla-
sjúkrahús
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir, Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi
Halldóra Kristbergsdóttir, Fjánnálaráðu-
neyti
Kristín Björgvinsdóttir, Fjölbrautaskólanum
við Ármúla
Margrét G. Björnsdóttir, Skólasafnamiðstöð
Reykjavíkur
Óskar Guðjónsson, Borgarbókasafni - Ár-
safn
Pálína Héðinsdóttir, Náttúmfræðistofnun
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, Háskólanum á
Akureyri
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 22