Fregnir - 01.06.2005, Blaðsíða 38
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
að taka málið upp við Landskerfí bóka-
safna.
Notendaráðstefna Aleflis 2005
Notendaráðstefna Aleflis var haldin í
beinu framhaldi af aðalfundi Aleflis og
sóttu hana um 60 manns. Gögn frá not-
endaráðstefnunni er að fínna á vefsíðu Al-
eflis, www.alefli.is.
Að þessu sinni var ákveðið að bjóða
nokkrum fyrirtækjum að vera með kynn-
ingu á vörum sínum og þjónustu á ráð-
stefnunni gegn gjaldi. Er þetta vísir að því
að félagið hafí ljárráð í framtíðinni því
ekki er stefnt að því að taka félagsgjöld af
notendum Fyrirtækin sem kynntu sig voru:
Gagnastýring, Skólavörðubúðin, Skrín,
Strikamerki og Penninn.
A ráðstefnunni kynnti Sigrún Hauks-
dóttir nýja útgáfu af kerfinu sem er vænt-
anleg síðla hausts 2005. Helstu breytingar
eru þær að kerfíð verður einfaldara, fímm
verkþættir í stað tíu. Sameiginlegur leitar-
þáttur verður aðgengilegur í öllum verk-
þáttum í stað sérstaks leitarþáttar. Bylting
verður í prentun og uppsetningu bréfa og
hægt verður að senda tilkynningar með
tölvupósti. Að lokum skýrði Sigrún frá
þarfagreiningarteymi um SFX og MetaLib
sem hefur hafíð störf. Stefnt er að SFX
verði tilbúið til notkunar í haust en áætlað
er landsgátt verði opnuð haustið 2006 því
uppsetning MetaLib tekur lengri tíma.
Hildur Gunnlaugsdóttir gæðastjóri
skráningar fjallaði um skráningu í Gegni í
nútið og framtíð en skráningarmálin hafa
verið í brennidepli á árinu. í máli Hildar
kom fram að nú eru 116 einstaklingar með
skráningarheimildir í Gegni. Þörf er á að
móta reglur og koma á kerfisbundnu gæða-
eftirliti en ekki hefúr verið nægjanlegt eft-
irlit hingað til. Lagði hún áherslu á að auð-
legðin, sem felst í þekkingu og fæmi á
sviði skráningar, verði metin að verðleik-
um.
Ragna Steinarsdóttir fjallaði um efnis-
orðamál en efnisorðaráð var skipað af
skráningarráði í janúar 2004. Hlutverk
ráðsins er m.a. að móta stefnu um efnis-
orðagjöf og efnisorðalyklun, skera úr um
álitamál og sjá um viðhald og þróun efnis-
orðalykils.
I lok ráðstefnunnar var kynnt starfsemi
eftirfarandi vinnu- og faghópa um starf-
semi Gegnis: 856 hópurinn, vinnuhópur
um forðaupplýsingar og útlánahópur.
Notendaráðstefnunni lauk með léttum
veitingum í boði Landskerfis bókasafna hf.
Þórhildur S. Sigurðardóttir
Skráningarheimildir í Gegni
A góðum fundi sem skráningarráð hélt
með forstöðumönnum bókasafna nú í maí
kom fram að um 140 manns hafa skrán-
ingarheimild í Gegni og að mati ráðsins
eru það u.þ.b. 100 of margir! Það kom
einnig fram á fundinum að það er almennt
vanmetið hve mikil sérfræðivinna rétt bók-
fræðileg skráning er og vart á færi annarra
en þeirra sem hafa hana að fullu starfí.
I dag fer allt of mikill tími starfsmanna
Landsbókasafns Islands - Háskólabóka-
safns og Borgarbókasafns í að leiðrétta vit-
leysur sem gerðar eru daglega í kerfínu.
Það er því bráðnauðsynlegt að taka þessi
mál fastari tökum. Ekki verður mikil fram-
þróun eða lagfæringar- og samræmingar-
vinna á gagnagrunninum eftir að Gegnir
og Fengur voru sameinaðir ef mikill tími
starfsmanna fer í að laga nýjar vitleysur,
nóg var nú fyrir af ósamræmi.
Það eru sennilega ekki mörg bókasöfn
á íslandi sem geta hafa heilt stöðugildi
bókasafnsfræðings sem sinnir eingöngu
bókfræðilegri skráningu á viðkomandi
safni.
Varla er því hægt að búast við að
starfsfólk minni safna nái þeirri færni sem
til þarf til að halda skráningarheimild. Þau
söfn þurfa þá væntanlega að leita annað.
En hvað er til ráða?
Þegar hugmyndin um sameiginlegan bóka-
safnsgrunn kom fram þá hugsuðu margir
sér gott til glóðarinnar og sáu fyrir sér að
nú gætu söfnin hætt að skrá að mestu og
einbeitt sér að öðrum störfum því öflug
skráningarmiðstöð sæi um skráningu safn-
kostsins. Landsbókasafn íslands - Há-
skólabókasafn hefur skyldur bæði hvað
varðar skráningu á íslensku efni og eins
hvað varðar samræmingu starfshátta í ís-
lenskum bókasöfúm. Ætla má að þar sé
mesta kunnáttan í skráningu því safnið
hefur skyldur hvað varðar þjóðbókaskrán-
ingu. En starfsfólk þess byggir sína skrán-
ingarvinnu á skylduskilum sem berast allt
of seint til safnsins miðað við þarfír al-
menningsbókasafna sem vilja koma bók-
um sem fyrst í útlán.
30. árg. - 2. tbi. 2005 - bls. 38