Fregnir - 01.06.2005, Side 32
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
á IFLA ráðstefnunni og ákveðið var að
kanna afstöðu til þess á fundinum Osló.
Um kvöldið buðu Danir fundargestum
til hátíðarkvöldverðar ásamt landsbóka-
verði Færeyja og framámönnum Bóka-
varðafélags Færeyja.
Daginn eftir var fundinum svo haldið
áfram og hófst á kynningu á bókasafns-
málum í Færeyjum og á Bókavarðafélagi
Færeyja sem stofnað var árið 1986 og hef-
ur um 25 félagsmenn en skilyrði er að þeir
séu bókasafnsfræðingar. Fyrir dyrum
stendur skipulagsbreyting og stefnt er að
meiri virkni, meðal annars að taka meiri
þátt í norrænu samstarfi. Einnig kynntu
aðrir fundarmenn það helsta sem er á
döfinni í hverju félagi um sig. I Noregi var
nýbúið að samþykkja ný lög um höfúnda-
rétt og lét norska félagið mjög til sín taka í
sambandi við það og barðist hart fyrir
hagsmunum bókasafnanna til að miðla
efni. í Danmörku hafa sveitarfélög samein-
ast sem fækkar félögum í danska félaginu
þar sem sveitarfélög greiða til þess. I Finn-
landi er í deiglunni að sameina félög og er
vinnuhópur að fjalla um sameiningarmál.
Næst á dagskrá voru umræður um mál-
efni IFLA við Gunnar Sahlin og hvemig
mætti efla starf IFLA að málefnum bóka-
safna og upplýsingamála. Fram kom að
mikilvægt er að IFLA vinni að stefnu-
mótun og hafi aðgerðaáætlun þar sem sett
er fram forgangsröð. Drepið var á „Three
Pillars“ IFLA (sjá www.ifla.org ) en í
reynd væri um tvo máttarstólpa að ræða,
þ.e. „society" og „profession“ en IFLA tel-
ur „members" vera þann þriðja. Rætt að
mikill tími fari í skipulagningu ráðstefn-
unnar sem sé jafnframt aðaltekjulindin
ásamt aðildargjöldunum. Fram kom að tíð
framkvæmdastjóraskipti upp á síðkastið
hafa staðið starfinu fyrir þrifum. Einnig
kom fram að breyting á greiðslu aðildar-
gjalda mun breyta valdahlutföllunum í
samtökunum en mörg félög þurfa nú að
greiða mun hærra mun gjald en áður.
Akveðið var að auka samráð við norræna
fulltrúann í stjóminni og samráð norrænu
félaganna til að hafa aukin áhrif innan
IFLA. Þá var rætt frekar um dagskrá Nor-
dic Caucus á IFLA þinginu í Ósló og IFLA
þingið í Osló almennt en skráning gengur
mjög vel. Fram kom að vinnsla samnor-
ræna bæklingsins (Nordic Libraries - and
their Organisations - in the 21 st Century)
sem dreifa á IFLA-ráðstefnunni er á eftir
áætlun en síðustu greinamar bámst um
miðjan maí (áætluð skil vom um miðjan
febrúar). Danir, sem sjá um vinnsluna,
fullvissuðu fúndannenn að hann yrði til-
búinn í tæka tíð.
Síðast á dagskránni vom frásagnir og
ýmsar fréttir frá norrænu bókavarðafélög-
unum, t.d. var sagt frá því að eitt ríkasta
sveitarfélagið í Noregi, Bæmm rétt utan
við Ósló, hefði sagt upp bókasafnsfræð-
ingum og ætlaði að manna safnið með
sjálfboðaliðum!
Við frá Upplýsingu lögðum fram
skýrslu um starfsemi félagsins, dreifðum
Fregmtm í nýjum búningi, Bókasafninu og
afhentum Landsbókasafni Færeyja og
Bókavarðafélagi Færeyja eintak af ritinu A
LEIÐ TIL UPPLÝSINGAR en hin félögin
fengu bókina afhenta á fundi í Kaup-
mannahöfn í nóvember 2004.
Eftir fúndinn var boðið í gönguferð um
elsta hluta Þórshafnar, sem var mikil upp-
lifun að skoða, gömul smáhús sem stóðu
þétt saman eins og til að standa af sér stór-
viðri.
Styrki til að sækja fundinn veitti Nor-
ræna ráðherranefndin, Norræna húsið sér
um úthlutun, og menntamálaráðuneytið.
Kann stjóm Upplýsingar styrkveitendum
bestu þakkir fyrir stuðninginn. Stjómin
telur enn sem fýrr afar mikilvægt að taka
þátt í norrænu samstarfi eftir föngum þar
sem það auðveldar félaginu að fylgjast
með og taka þátt í því sem er á döfinni hjá
öðmm bókavarðafélögum og í bókasafna-
samfélaginu almennt.
Stefnt er að því að næsti fundur nor-
rænu bókavarðafélaganna verði haldinn í
Reykjavík 5. til 6. október 2006.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Fréttir af NORDBOK
Vorfundur Nordbok var haldinn 30. og 31.
maí síðastliðinn í Vilnius höfðuborg Lit-
háen. Astæða þess að fundurinn var hald-
inn þar var sú að nefndinni gafst þannig
kostur á að kynna sér starf norrænu upp-
lýsingamiðstöðvanna í Eystrasaltslöndun-
um og Norðvestur-Rússlandi en aðsetur
þeirrar skrifstofu er í Sankti Pétursborg.
Aðalefni vorfundarins var að venju að
úthluta styrkjum, annarsvegar til þýðinga
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 32