Fregnir - 01.06.2005, Blaðsíða 15
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
myndum um íslensk spendýr og fær hver
tegund sinn kafla. Flestum tegundaköflum
fylgja útbreiðslukort, stundum tvö, út-
breiðslan í öllum heiminum er þá sýnd svo
og útbreiðslan á íslandi. Hverjum kafla um
sig fylgja aftanmálsgreinar. Heildarheim-
ildaskrá er aftan við meginmál og ítarleg
atriðisorðaskrá aftast.
Notagildi ritsins er mikið, sérstaklega
þar sem hér er gefið heildstætt yfírlit yfír
íslensk spendýr og sögu þeirra hér á landi,
auk þess sem fjallað er um þróun og alm-
enn einkenni spendýra en meira en 70 ár
eru síðan sambærilegt rit var gefið út hér á
landi. Bókin er snilldarlega myndskreytt
og myndum og texta er fléttað saman í
eina órofa heild. Ritið er aðgengileg hand-
bók um efnið sem stenst jafnframt fræði-
legar kröfur þannig að mikill fengur er að
því. Við gerð þess og frágang allan er fag-
mennska og vandvirkni í fyrirrúmi.
A aðalfundi Upplýsingar 9. maí síðast-
liðinn var aðalhöfundi og ritstjóra svo og
útgefanda ofangreinds ritverks aflient
viðurkenningarskjöl og blómvendir af til-
efninu.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Val á frumsaminni frœðibók fyrir
börn og unglinga - greinargerð
í valnefndinni eru: Þorbjörg Karlsdóttir,
Borgarbókasafni aðalsafni, Hólmfríður
Gunnlaugsdóttir, Borgarbókasafni Gerðu-
bergi, og Inga Kristjánsdóttir Bókasafni
Kópavogs.
Eftir athugun á þeim bama- og ung-
lingabókum sem út komu á árinu 2004 er
það niðurstaða nefndarinnar að enga bók
er þar að fínna sem fellur að viðmiðunar-
reglum Upplýsingar við val á frumsaminni
fræðibók fyrir börn og unglinga.
Þessi niðurstaða er næstum árleg og
afar dapurt að þurfa alltaf að birta sömu
fréttimar. En af hverju tekur enginn sig til
og gerir nú fallega og skemmtilega fræði-
bók fyrir böm og unglinga? Við eigum
úrvals fræðimenn og myndasmiði og
prenttæknin er á heimsmælikvarða. Hvað
er þá að? Jú, það er dýrt! En er það ekki
þess virði?
Vonandi eigum við eftir að sjá ein-
hverja góða, fmmsamda fræðibók á næstu
ámm.
Inga Kristjánsdóttir Bókasafni Kópavogs.
r
Uthlutun styrkja úr
Ferðasjóði Upplýsingar 2005
Sjóðnum bámst að þessu sinni 11 umsókn-
ir. Fjómm varð að hafna vegna þess að
umsækjandi var ekki búinn að vera fimm
ár samfellt í Upplýsingu. Ein umsókn var
dregin til baka.
Sex umsækjendum var úthlutað styrkj-
um, fímm vegna ferða til útlanda og einum
vegna ferðar innanlands, samtals 110 þús.
kr. Þeir em:
Guðríður Einarsdóttir vegna kynnisferðar
til Kaupmannahafnar og Malmö 6.-10.
apríl 2005
Asdís Hafstað vegna IFLA þings í Osló
14.-18. ágúst 2005
Guðrún Hannesdóttir vegna heimsóknar í
bókasöfn listaháskóla í Glasgow og
Edinborg í maí 2005
Helga Thorlacius vegna ráðstefnu á Bifröst
í Borgarfírði 29. júní - 3. júlí 2005
Hólmfríður Tómasdóttir vegna ferðar til
Kanada 7.-31. október 2005
Sigríður Matthíasdóttir vegna fundar
norrænna fulltrúa í stjóm IBBY á
íslandi í Osló 22.-24. apríl 2005
f.h. Stjórnarferðasjóðs Upplýsingar
Fanney Sigurgeirsdótir formaður
Skýrslur fastanefnda
Upplýsingar
Húsfélagið Ásbrú sf. 2004-2005
Á starfsárinu vom húsnæðismál Upplýs-
ingar í uppnámi því félagið átti þess ekki
kost að taka þátt í kaupum á hluta af
Borgartúni 6 eins og sagt var frá í 3. tbl.
Fregna 2004, sjá bls. 3.
Stjóm Upplýsingar hefur á starfsárinu
kannað kaup á öðm húsnæði fyrir félagið
og stefnir að því að kaupa aukinn hlut í
Lágmúla 7.
Eignarhluti Upplýsingar í Ásbrú er
3,76%. Heildareignarhlutur Upplýsingar í
árslok 2004 var kr. 1.449.063 (1.350.403 í
árslok 2003). Næsta starfsár verður Ásbrú
leyst upp og eignir þess seldar.
Á ársfúndi aðalstjómar Ásbrúar þann
6. apríl síðastliðinn var gjaldkeri Upplýs-
ingar, Fanney Sigurgeirsdóttir, kosin annar
af tveimur félagskjömum skoðunarmönn-
um félagsins.
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 15