Fregnir - 01.06.2005, Side 27

Fregnir - 01.06.2005, Side 27
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða og fræðsluefni, enda eru útlán á þessu efni ekki í ijárhagslegum tilgangi, fremur en önnur útlán safnanna. Eins og staðan er í dag er afar erfitt og flókið fyrir söfnin að afla sér útlánsréttar á helstu verkum kvik- myndasögunnar. Þetta á sérstaklega við um kvikmyndverk önnur en bandarísk. Við lítum á það sem hluta af menningarlegu uppeldi hverrar þjóðar að hafa greiðan að- gang að slíkum verkum og teljum það bitna á eðlilegu kvikmyndauppeldi ís- lensku þjóðarinnar að svo sé ekki. Hvað erlendum fræðslumyndböndum og mynddiskum viðvíkur, er oft erfitt og tímafrekt að fá á hreint hvort kaupum á þeim fylgir útlánsréttur. Þetta getur bitnað á ijölbreytni og eðlilegu jafnvægi á fram- boði safngagna á mismunandi formi. Æskilegt væri að auðvelda greiðslur til höfunda fyrir þetta efni með sanngjöm- um hætti. Okkur þykir einnig óeðlilegt að gert sé upp á milli fylgiefnis prentaðra verka eins og gert er í 2 mls. 3. mgr. Kvik- myndaverk jafnt sem önnur verk geta verið fylgiefni prentaðra verka, svo sem bóka sem fjalla um líkamsæfingar, fluguveiðar o.s.frv.. Við leggjum því til að 2. mls. 3. mgr. verði breytt þannig: Þetta gildir þó ekki þegar eintak af kvikmyndaverki eóa tölvuforriti í stafrænu formi er hluti af bókmenntaverki og er lán- að með því. 12. gr. c. Samkvæmt þessum ákvæðum er gert ráð fyrir að sérstök úrskurðarnefnd geti gert kröfu til þess að rétthafi veiti aðgang að nauðsynlegum úrræðum til að komast fram hjá tæknilegum aðgangshindrunum og til að geta nýtt sér undantekningarákvæði ákveðinna greina laganna, sem snerta bókasöfn, kennslu og rannsóknir, (ekki er meðtalin sú grein sem snertir sjónskerta og fatlaða). Ef rétthafi bregst ekki við kröfu úrskurðamefndar getur þurft að bíða í fjór- ar vikur til að hægt sé að sniðganga lög- lega hinar tæknilegu ráðstafanir. Að okkar mati getur þetta ferli orðið alltof þungt í vöfum. Til að koma í veg fyrir það er nauðsynlegt að settar séu reglur um ákv- eðna tilhögun til handa bókasöfnum. T.d. ætti skilyrðislaust að afhcnda skylduskilaefni án tækniiegra aðgangs- hindrana. Sama gildir um ritað mál sem nauðsynlegt er að sjónskertir og aðrir not- endur Blindrabókasafns íslands fái að- gang að án tafar. Ákvæði um leyfilega eintakagerð til einkanota virðast einnig stangast á við að rétthafar geti með tæknilegum aðgangs- hindrunum komið í veg fyrir hana. Hætt er við að hinu nauðsynlega jafnvægi milli rétthafa og notenda verði raskað með þess- um ákvæðum, þar sem notendur verða háðir rétthöfum um löglega eintakagerð. Við leggjum til að bætt verði við ákvæði í 12. gr. c. um tafarlausan aðgang fyrrnefndra safna og aðila framhjá tækni- legum aðgangshindrunum. Olöf Benediktsdóttir Ný störf í Landsbókasafni r Islands - Háskólabókasafni Nokkrar breytingar eru væntanlegar á starfsmannahaldi í Landsbókasafninu. Þrír starfsmenn, sem hafa verið lengi við störf í safninu, hafa ýmist farið á eftirlaun eða farið í leyfi til lengri tíma. Kristín Braga- dóttir sem var sviðsstjóri varðveislusviðs hefur verið ráðin sem yfirbókavörður í Norræna húsinu og hefur fengið leyfí til fjögurra ára eins og heimilt er gegni menn norrænni stöðu. Auður Gestsdóttir, sem hefur verið fagstjóri í erlendri skráningu, fór á eftirlaun 1. maí en var endurráðin í 40% starf frá þeim tíma. Þórir Ragnarsson, sem hefur verið fagstjóri skylduskila, fór á eftirlaun frá 1. júní en var ráðinn áfram í 40% starf. Þann 29. maí auglýsti svo safnið þessi þrjú störf laus til umsóknar. Umsóknarfrestur rann út 19. júní og er ráðning miðuð við 1. ágúst 2005. Fimm sóttu um starf sviðstjóra og úr þeirra hópi varð Ingibjörg Steinunn Sverr- isdóttir fyrir valinu. Hún lauk BA-prófí í bókasafnsfræði og bókmenntafræði frá HÍ 1978 og meistaraprófi í bókasafns- og upp- lýsingafræði frá HI árið 1996. Hún er einn- ig langt komin með MPA nám í stjóm- sýslufræðum við HÍ. Ingibjörg hefur mikla reynslu af bókasafns- og skjalastjómar- störfum. Hún var forstöðumaður Bóka- safns Fjölbrautarskólans í Breiðholti sem hún byggði upp. Síðan vann hún við upp- byggingu Bókasafns Amarhvols og Sölv- hóls fýrir dóms- og kirkjumálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, iðnaðar- og viðskipta- ráðuneyti og menntamálaráðuneyti. Frá 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 27

x

Fregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.