Fregnir - 01.06.2005, Side 31

Fregnir - 01.06.2005, Side 31
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og uppiýsingafrœða landi og bílstjórinn/leiðsögumaðurinn sagði okkur að rútufyrirtæki sammæltust um að fara alltaf eins hring til að þurfa ekki að mætast. Hann hefði í fyrrasumar aðeins einu sinni mætt rútu og hún hefði verið frá Italíu! Greinilegt er að byggðir landsins hafa áður verið mun þéttbýlli en nú er raunin. Athyglisvert var að ekið var í gegnum svæði þar sem aðaltungumálið er írska (gelíska). A háskólasvæðinu voru líka öll skilti á báðum málunum, það er ensku og írsku. Nánari upplýsingar um ársþingið er að finna á heimasíðu EBLIDA www.eblida.org. 14. ársþing EBLIA verður haldið í Búdapest í maí 2006. Á 12. ársþinginu í Estoril 2004 kom fram áhugi á að þingið væri haldið á ís- landi í náinni framtíð. Á fundi stjómar Upp- lýsingar 26. maí 2004 ákvað stjómin að bjóða framkvæmdanefndinni að þingið væri haldið hér á landi árið 2006 og formlegt boð var í framhaldi að því sent framkvæmda- nefndinni sem dró við sig að svara boðinu. Nú er hins vegar ljóst að af því verður ekki því forgangsverkefni er að efla tengslin við nýju ríkin í Evrópusambandinu. Boð Upp- lýsingar um að hafa ársþing hér í framtíðinni stendur óhaggað og rætt hefur verið að árs- þingið verði haldið hér á landi vorið 2007 og í ljós mun koma hvort af því verður. Þórdís T. Þórarinsdóttir Nordisk bibliotekforenings- mote 2005 Hinn árlegi fundur formanna og fram- kvæmdastjóra norrænna bókavarðafélaga var í ár haldinn í Þórshöfn í Færeyjum dagana 5. og 6. júní síðastliðinn og er þetta sjöundi fundurinn sem haldinn er eftir endurvakningu funda norrænu bókavarða- félaganna. Fundinn sóttu eftirfarandi aðilar: Frá Danmarks Biblioteksforening þau Winnie Vitzansky framkvæmdastjóri og Finn Vester formaður. Frá Finlands Biblioteks- förening Sinikka Sipila framkvæmdastjóri. Frá Norsk Bibliotekforening Tore Kr. Andersen framkvæmdastjóri. Frá Svensk Biblioteksförening Gunilla Herdenberg fyrsti varaformaður og Wiviann Wilhelms- son ráðgjafi. Fyrir hönd Upplýsingar sóttu þær Þórdís T. Þórarinsdóttir fomiaður og Vala Nönn Gautsdóttir varaformaður fund- inn. Frá færeyska bókavarðafélaginu sat Ambjom Dalsgaard fonnaður fundinn. Seinni daginn sat Gunnar Sahlin (lands- bókavörður Svíþjóðar) nýkjörinn stjómar- maður IFLA einnig fundinn. Fundargerð báða dagana skrifaði Winnie Vitzansky og Finn Vester stjómaði fundi en Danimir sáu um skipulagningu fundarins sem haldinn var á Landsbókasafni Færeyja. Formenn fínnska, norska og sænska félagsins sáu sér ekki fært að sækja fundinn. Fundarmenn gistu á Hotel Hafnia í Þórshöfn. Þetta er dýrasti norræni fundur- inn sem fulltrúar Upplýsingar hafa sótt því fljúga þurfti fyrst til Kaupmannahafnar, gista þar eina nótt og fljúgja þaðan aftur til baka til Færeyja. Fundarmenn komu beint til fundarins á sunnudeginum og hófst hann kl. 15:30. Fyrst á dagskrá var um- ræða um norræna samvinnu í alþjóðlegu samhengi, EBLIDA og IFLA en í ár er kosningaár hjá báðum samtökunum og var haft samráð við kosningu varaforseta og í stjóm IFLA. Rætt um hlutverk EBLIDA og IFLA og lögð áhersla á að samtökin störfuðu í þágu bókasafna og upplýsinga- mála og mótuðu sér skýra stefnu um mark- mið og leiðir. Einnig var ræddur sá mögu- leiki að IFLA ráðstefnumar verði annað hvert ár. Nú em 47 deildir í IFLA og talið nauðsynlegt að fækka þeim til að dreifa kröftunum ekki um of. Einnig var rætt samstarf við norræna fulltrúa í stjóm IFLA. Fram kom að enn sem fýrr greiðir Danmörk 20% af félagsgjöldum EBLIDA og eðlilegt má teljast að Danir eigi fulltrúa í stjórn. Gert er ráð fyrir að nýr fram- kvæmdastjóri EBLIDA verði ráðinn á næsta ári. Fram kom að LIBER (samtök evrópskra rannsóknarbókasafna) hefur stefnumótun- arfund þann 5. júlí og hefur boðið félögum rannsóknarbókavarða á fundinn (þar á meðal Upplýsingu) en LIBER vill breyta áherslum í starfseminni og auka áherslu á málefni bókasafna. Einnig kom fram að NAPLE ráðstefna verður í Króatíu í október næstkomandi. Mikilvægt er að EBLIDA, NAPLE og LIBER hafí samráð um verkaskiptingu. Þá var rætt um Nordic Baltic Con- ference og þátttöku í henni. Eystrasalts- löndin hafa lýst áhuga á að taka meiri þátt í norrænu samstarfi og meðal annars í Nordic Caucus (norræna svæðisfundinum) 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bts. 31

x

Fregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.