Fregnir - 01.06.2005, Side 20
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og itpplýsingafræða
til að undirbúa mat á starfsreynslu þeirra
sem lokið hafa grunn- og séráföngum
bókasafnstækni.
Hulda Björk og Þórdís eru í þeim
vinnuhópi sem fulltrúar Upplýsingar og
Pálína Magnúsdóttir sem fulltrúi Prent-
tæknistofnunar. Vinnuhópurinn hefur und-
irbúið gátlista til að nota við mat á starfs-
reynslu þeirra sem lokið hafa bóklegu
námi í bókasafnstækni.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Norrænt net um bamabókasöfn
og -menningu
Mikið og líflegt starf er í nefndinni og ár-
angurinn er sem óðast að koma í ljós. Við
funduðum síðast í Stavanger í Noregi í
febrúarmánuði. í framhaldi af því sátum
við stórfróðlega bamabókaráðstefnu á
staðnum: Boka+livet=sant. Þar var nú
ekki töluð vitleysan. Mikið var rætt um
drengi og lestur. Allar kannanir sýna að
drengir lesa mun minna en stúlkur. Hvað
er til ráða? Stórskemmtilegur breskur höf-
undur mætti og talaði um bækumar sínar
og drengina. Hann skrifar svona ekta
strákabækur sem þykja ekki sérlega fínar
bókmenntir en strákamir lesa þær. Mesta
hrósið sem hann hefur fengið var frá einni
móður sem sagði að sinn sonur hefði verið
ófáanlegur til að lesa bækur þar til hann
hefði komist í þessar: „Las þær allar og er
núna farinn að lesa almennilegar bækur!“
Þessi fyrirlestur kallaðist aðeins á við eitt
af umræðuefnum Netverksins en við Sig-
rún lentum í líflegum skoðanaskiptum við
okkar ágætu samnefndarmenn um ágæti
Blyton-bókanna en þær em á bannlista á
hinum Norðurlöndunum. Eigum við að
ritskoða bækumar fyrir bömin?
Á IFLA ráðstefnunni í Osló nú í sumar
stöndum við í Netverkinu fyrir miklum
uppákomum. Það verða tvö upplestrar-
kvöld með norrænum höfundum. Af ís-
lands hálfu verður það Halldór Baldursson
myndskreytari og einhver höfundur. Þar
munum við kynna veggspjöld með grein-
um úr Barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna. Halldór Baldursson myndskreytti af
stakri snilld 13. greinina sem hljóðar svo:
1. Bam á rétt til að láta í ljós skoðanir sínar
og felur það í sér rétt til að leita, taka
við og miðla hvers kyns vitneskju og
hugmyndum, án tillits til landamæra,
annaðhvort munnlega, skriflega eða á
prenti, í formi lista eða eftir hvers kyns
öðmm leiðum að vali þess.
2. Láta má rétt þennan sæta vissum tak-
mörkunum en þó aðeins að því marki
sem mælt er fyrir í lögum og er nauð-
synlegt
a) til að virða réttindi eða mannorð
annarra, eða
b) til að gæta öryggis þjóðarinnar eða
allsherjarreglu eða heilbrigðis almenn-
ings eða siðgæðis.
Gott að hafa þetta í huga fyrir íslensk böm.
Ekki síst þau sem munu leggja fyrir sig
blaðamennsku í framtíðinni.
Eins verður nefndin með veggspjalda-
kynningu á IFLA-ráðstefnunni. Þar mun-
um við kynna lestrarhvetjandi verkefni á
Norðurlöndum og við Sigrún ætlum að
leggja áherslu á slíkt verkefni í Reykjanes-
bæ.
I september opnar svo í Osló mikil
farandsýning á norrænum bamabókum og
myndskreytingum. Á íslensku hefur þessi
sýning fengið heitið Norrænar barna-
bœkur leggjast í landaflakk. Gerður Krist-
ný og Áslaug Jónsdóttir verða fulltrúar
Islendinga þar.
Næsti fundur nefndarinnar er svo á
dagskrá í Helskinki í september. Þá ætlum
við að skipuleggja ráðstefnu sem væntan-
lega verður haldin á Álandseyjum í maí.
Meir um það síðar.
Hildur Baldursdóttir
Gerðubergsráðstefnan 2005
Árleg ráðstefna um bamamenningu var
haldin í Gerðubergi 12. mars síðastliðinn.
Að ráðstefnunni stóðu Borgarbókasafnið,
Félag skólasafnskennara, IBBY, Menning-
armiðstöðin Gerðuberg og Upplýsing.
Fulltrúi Upplýsingar er Inga Kristjáns-
dóttir sem fjallaði um ráðstefnuna í síðustu
Fregnum, 1/2005 á bls. 31-32.
Ritstjóri Fregna
r
Bókasamband Islands
I Bókasambandi Islands em fúlltrúar frá
Félagi íslenskra bókaútgefenda, Rithöf-
undasambandi íslands, Félagi starfsfólks í
bókaverslunum, Félagi bókagerðarmanna,
Samtökum iðnaðarins og Upplýsingu.
Það er skemmst frá því að segja að
Bókasamband Islands hélt ekki fund á síð-
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 20