Fregnir - 01.06.2005, Side 17
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
um rafræn söfn vísindagreina, fjallað er
um söfnun vefsíðna, þekkingarstjómun,
yfírfærslu Gegnis o.fl. Þá er í blaðinu ítar-
leg grein rituð af formanni Upplýsingar
um starfsemi félagsins síðastliðin fimm ár.
Upplag blaðsins er 900 eintök.
Vefsetur
Umsjónarmaður vefseturs sér um að setja
útdrætti úr greinum blaðsins á Netið sam-
kvæmt nýjum verklagsreglum og verður
það efni aðgengilegt á vefsetri blaðsins
http://www.bokasafnid.is í lok maí.
Kostnaður
Hænir sf. sá um auglýsingasöfnun og hafði
auk þess milligöngu um tilboð í umbrot og
prentun. Samið var við prentsmiðjuna
Gutenberg. Kristófer Sigurgeirsson prent-
smiður annaðist umbrot blaðsins. Auglýs-
ingasöfnun gekk ágætlega og allt bendir til
þess að tekjur af auglýsingum standi að
mestu leyti undir útgáfukostnaði ef allt
innheimtist.
Eva Sóley Sigurðardóttir
Ritun sögu íslensku bókavarða-
félaganna
Stjórn Upplýsingar ákvað vorið 2001 að
láta rita sögu fyrri bókavarðafélaga og
hinn 29. maí sama ár var samið við Friðrik
G. Olgeirsson sagnfræðing um verkið.
Bókin, sem hlaut titilinn A LEIÐ TIL
UPPLÝSINGAR. Saga Bókavarðafélags
Islands, aðildarfélaga þes og Félags bóka-
safnsfræðinga, kom út í lok ágúst 2004 og
var kynnt á Landsfundi Upplýsingar í
september. Sagan spannar sögu bókasafns-
fræðinga- og bókavarðastéttarinnar frá
stofnun Bókavarðafélags íslands 4. desem-
ber 1960 til fyrstu ára Upplýsingar.
Ritnefnd var höfundi til aðstoðar og í
henni sátu:
Þórdís T. Þórarinsdóttir, formaður Upplýs-
ingar, tengiliður við stjóm, Kristín Indriða-
dóttir, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir,
Hulda Björk Þorkelsdóttir og Guðrún Páls-
dóttir.
Ritnefndin hélt sinn fyrsta fund 3. október
árið 2001 og voru þá lesnir yftr fyrstu kafl-
ar ritsins. Alls fundaði ritnefndin 37 sinn-
um, ýmist ein eða með höfundi, og vann
auk þess að verkinu milli funda.
Ritnefnd aðstoðaði höfund m.a. við
efnisöflun, las yfir handritið, fékk yftr-
lesara til að lesa það yftr (árslok 2002),
safnaði myndum, gerði tillögur að mynda-
textum og tók saman ýmsar sérskrár (aðrar
en atriðisorðaskrá).
Þar sem ritið kom út á starfsárinu hefur
ritnefnd nú lokið störfum.
Þórdis T. Þórarinsdóttir
Skýrslur fulltrúa Upplýsingar
í stjómum og nefndum
Starfsemi NVBF 2004-2005
Stjómarfundir NVBF vom haldnir í Kaup-
mannahöfn 8. október 2004 og í Reykjavík
4. mars síðastliðinn. Lesa má nokkuð
stytta útgáfu fundargerðanna í Fregnum, 3.
tbl. 2004 og 1. tbl. 2005. í sama tölublaði
er einnig greinin Kostnaður og ávinningur
af þátttöku í starfi NVBF.
Fulltrúar Upplýsingar í stjóm NVBF
eru Guðrún Pálsdóttir (frá hausti 2003) og
Þórhildur S. Sigurðardóttir (frá hausti
1999). Gunilla Hákli, Finnlandi, er nú for-
maður stjómar NVBF en Finnar hafa hald-
ið um stjómartauma frá því haustið 2003.
Sem áður em helstu verkefni NVBF að
halda ráðstefnur, skipuleggja náms- og
kynnisferðir og úthluta ferðastyrkjum til
námsferða innan Norðurlanda.
Þrjár ráðstefnur vom haldnar á árinu
2004: At skabe organisationer med
mennesker i centrum - medarbejderen og
brugeren, var haldin í Reykjavík 7.-8. júní;
sjötta millisafnalánaráðstefnan var haldin í
Þrándheimi 30. september - 2. október og
loks var haldin eins dags ráðstefna (work-
shop) í Kaupmannahöfn 26. nóvember,
Assess the ILL/DD Environment. Allar
ráðstefnumar vom vel sóttar og þóttu tak-
ast vel. Einn stjómarmaður hafði á orði að
réttast væri að taka undirbúning og fram-
kvæmd ráðstefnunnar í Reykjavík til fyrir-
myndar við skipulag á ráðstefnum NVBF í
framtíðinni. Einn hringborðsfundur hefur
verið haldinn á þessu ári, 14.-15. apríl
síðastliðinn í Gustavelund, Tusby (Finn-
landi); Great Expectations! Bib/ioteksut-
bildningen under det 21. árhundradet.
Förvántningar och krav pá personalen.
íslenskir fyrirlesarar á ráðstefnunni í
Reykjavík vom þau Einar Baldursson,
Sigrún Klara Hannesdóttir, Snjólfur Olafs-
son og þær Kristín Viðarsdóttir, Guðríður
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 17