Fregnir - 01.06.2005, Blaðsíða 34
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
grænlensku. Af þýðingum á íslensku frá
öðrum málum fékk Appelsinpiken eftir Jo-
stein Gaarder styrk, Skammertegnet efter
Lene Kaabersbol, Undtagelsen eftir Chri-
stian Jungersen, Skrdninga eftir Carl Frode
Tiller og Sebastians hus eftir Oddvor
Johansen.
Af verkefnum á sviði bókasafna og bók-
mennta fékk Félag skólasafnskennara styrk
vegna ráðstefnunnar: „I sagaemes verden:
formidling af muntlig og litterær arv og
dens værdi for vores bom.“ Sú ráðstefna
verður haldin á Bifröst dagana 29. júní til
3. júlí næstkomandi.
Aðrar upplýsingar er varða fundinn
mun ég fúslega veita, en einnig birtast
fundargerðir nefndarinnar á vef hennar á
slóðinni: http://www.nordbok.org/aktuelt/
fra moter.html
Hóhnkell Hreinsson Amtsbókasafninu á
Akureyri (holmkelKcv.akurevri. is)
Bókaverðlaun bamanna
Bókaverðlaun bamanna vom afhent við
hátíðlega athöfn í aðalsafni Borgarbóka-
safns á sumardaginn fyrsta.
Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu
Helgadóttur og bókin 100% Nylon í rit-
stjóm Mörtu Maríu Jónasdóttur urðu hlut-
skarpastar fmmsaminna bóka en Kafteinn
Ofurbrók og brjálaða brókarskassið eftir
Dav Pilkey, í þýðingu Bjama Frímanns
Karlssonar hlaut verðlaunin í flokki þýð-
inga. Um 5.000 böm um allt land tóku þátt
í kosningunni.
Valið er í höndum 6-12 ára bama sem
geta sent inn atkvæðaseðla eða kosið raf-
rænt á heimasíðu Borgarbókasafns. Verð-
launin voru nú veitt í íjórða sinn en þetta
var fyrsta árið sem almennings- og skóla-
bókasöfn um allt land hafa samvinnu um
valið.
Kristín Viðarsdóttir
Vorfundur Samtaka forstöðu-
manna almenningsbókasafna
Samtök forstöðumanna almenningsbóka-
safna (SFA) hélt vorfund sinn í Safna-
húsinu á ísafirði dagana 18.-20. maí 2005 í
boði bæjar- og héraðsbókasafnsins. Gest-
gjafmn að þessu sinni var Jóhann Hinriks-
son forstöðumaður bókasafnsins. Fundinn
sóttu 34 forstöðumenn almenningsbóka-
safna víðs vegar að af landinu auk annarra
góðra gesta, meðal annarra stjóm PR- hóps
norrænna bókasafna.
Vorfundurinn hófst með aðalfundi að
kvöldi 18. maí. A aðalfundinum var kjörin
ný stjóm en hana skipa: Hólmkell Hreins-
son, Amtsbókasafninu á Akureyri, sem
kosinn var formaður, Ingibjörg Hjartar-
dóttir, Bókasafni Ólafsfjarðar, Margrét
Aradóttir, Bókasafni Eyjaijarðarsveitar og
Dóra Þorsteinsdóttir, Héraðsbókasafni
Skagfírðinga.
Daginn eftir, hinn 19. maí, hófst svo
hinn eiginlegi vorfundur með því að gest-
gjafinn Jóhann Hinriksson bauð gesti vel-
komna og rakti í stuttu máli sögu Safna-
hússins á Isafirði sem var áður sjúkrahús
en hefur verið gert upp á einstaklega
fallegan og smekklegan máta og hýsir nú
bóka- og héraðsskjalasafn. Eftir ávarp
Jóhanns tók við fonnleg dagskrá vor-
fundar. Fyrst á dagskránni voru nokkrir
fyrirlestar um kynningar- og markaðsmál
almenningsbókasafna í umsjón fulltrúa PR
- hóps norrænna bókasafna þeirra Anne-
Marie Marstrand frá Danmörku, Live
Gulsmd frá Noregi, Bjöm Lindwall frá
Svíþjóð og Hólmkels Hreinssonar sem var
fundarstjóri. Þau tóku til máls eitt af öðm
og miðluðu fúndarmönnum af reynslu
sinni af því að markaðssetja almennings-
bókasöfn.
Fyrst talaði Anne-Marie Marstrand frá
Danmörku um íjölþátta/ljölnota bókasöfn.
Hún lagði áherslu á að almenningsbóka-
söfn þyrftu allaf að vera tilbúin til að að-
laga sig nýjum og breyttum þjóðfélagsað-
stæðum. Þau verði sífellt rafrænni og við-
skiptavinir þeirra meira og meira sjálf-
bjarga.
Næst tók til máls Live Gulsrud frá
Noregi en hún býr í Asker sem er 20 km
vestur af Osló. Þar búa um 50.000 manns.
Sagði hún í stuttu máli frá sjálfri sér og
síðan frá bænum og uppbyggingu safnsins
sem hún veitir forstöðu og er staðsett í
menningarhúsi bæjarins. Hún lagði áherslu
á að almenningsbókasöfn þurfa allaf að
vera virk og sýnileg í því samfélagi sem
þau starfa annars deyji þau. Hún greindi
einnig frá ýmis konar menningarstarfsemi
sem bæjarbókasafnið í Asker annað hvort
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 34