Fregnir - 01.06.2005, Síða 7

Fregnir - 01.06.2005, Síða 7
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Dagskráin var í samræmi við lög félagsins sem samþykkt voru á stofnfundi þann 26. nóvember 1999 og endurskoðuð á aðalfundi þann 15. maí 2001. Formaður Upplýsingar, Þórdís T. Þórarinsdóttir, flutti skýrslu stjómar sem birt er annars staðar í blaðinu svo hún verður ekki rakin hér. Gjaldkeri, Fanney Sigurgeirsdóttir, tilkynnti um styrkþega Ferðasjóðs Upplýsingar (sjá skýrslu í blaðinu). Varaformaður, Vala Nönn Gauts- dóttir, gerði grein fyrir skýrslum frá nefnd- um og fulltrúum félagsins í ýmsum stjóm- um og ráðum. Greinilegt er hve öflugt og fjölbreytt starfsem fer fram innan vébanda félagsins. Skýrslumar birtast í heild sinni hér í blaðinu. Fráfarandi gjaldkeri Upplýsingar, Lilja Ólafsdóttir, lagði fram reikninga félagsins og rakti eignir þess, helstu tekjur og út- gjöld. Reikningamir, sem birtir em í blað- inu, vom samþykktir athugasemdalaust. Fundurinn ákvað, að tillögu stjómar, að ár- gjald félagsins fyrir árið 2006 verði kr. 5.000 (er 4.500) fyrir einstaklingsaðild og er það í fyrsta skipti frá stofnun félagsins sem árgjaldinu er breytt. Samkvæmt lög- um félagsins verður nemaaðild þá kr. 2.500 og stofnanaaðild kr. 10.000. Greiðsluseðlar fyrir árið 2005 voru sendir út í febrúar með gjalddaga 10. mars og eindaga 10. apríl. Stjóm hefur fært greiðsl- ur fyrr á árið til þess að greiðslur hafi verið inntar af hendi þegar Bókasafnið og 2. tölublað Fregna koma út. Formaður mælti fyrir framkvæmda- áætlun næsta árs, sem birt er annars staðar í blaðinu, og gjaldkeri mælti fyrir fjárhags- áætlun félagsins fyrir næsta starfsár sem einnig er birt í blaðinu. í ljósi fenginnar reynslu lagði stjóm fram tillögur til lagabreytinga í samvinnu við lagabreytinganefnd. Meginbreyting- amar em að ákvæði úr greinargerð vom felld inn í lögin eftir þvi sem við átti en óhentugt þótti að hafa mörg skjöl með nokkurs konar lagaígildi og það þótti skerpa ákvæði greinargerðarinnar að taka þau upp í lögin. Ennfremur var skipuritið fellt niður því í ljós hefur komið að það á ekki við í félagi sem að mestum hluta byggir á sjálfboðavinnu. Þórdís T. Þórarinsdóttir var endurkjörin formaður í samræmi við ný lagaákvæði í 5. grein laganna en uppstillingamefnd tókst ekki að finna nýtt formannsefni. Úr stjóm gekk Lilja Ólafsdóttir sem gegnt hefur gjaldkerastörfum í félaginu frá stofnun þess. Hulda Björk Þorkelsdóttir tók sæti í stjóm. Aðrir í stjóm em Vala Nönn Gauts- dóttir varaformaður. Fanney Sigurgeirs- dóttir gjaldkeri og Ingibjörg Baldursdóttir ritari. Lilja Ólafsdóttir var kosinn fyrsti varamaður en annar varamaður er Svava H. Friðgeirsdóttir. Stjómin hefur mótað þá stefnu að fyrrverandi stjómarmenn taki að sér að vera varamenn þar sem þeir em kunnugir starfsemi félagsins. Formaður þakkaði Lilju Ólafsdóttir vel unnin störf í þágu félagsins og færði henni bókargjöf sem þakklætisvott frá félaginu. Skoðunarmenn reikninga gáfu allir kost á sér áfram en þeir em: Hildur Gunn- laugsdóttir, Monika Magnúsdóttir og vara- maður er Sigríður Matthíasdóttir. Laga- breytinganefnd er óbreytt. Úr fræðslunefnd gekk Margrét Bjömsdóttir og í stað hennar kemur Ema Jóna Gestsdóttir. Úr ritnefnd gekk Emilía Sigmarsdóttir og var Asdís Paulsdóttir kosin í hennar stað. Aðrar fastanefndir félagsins sem kosið er í em óbreyttar, þ.e. Siðanefnd, Nefndir um val á bestu fræðibók ársins fyrir börn og full- orðna. í nýja fastanefnd, uppstillinganefnd, voru þær Guðríður Sigurbjömsdóttir, Sig- urbjörg Bjömsdóttir og Svava H. Frið- geirsdóttir kosnar. Listi yfír starfandi nefndir Upplýsingar, og fulltrúa félagsins í ýmsum nefndum og stjómum er birtur annars staðar í blaðinu. Undir liðnum önnur mál afhenti for- maður viðurkenningu fyrir bestu íslensku fræðibókina fyrir fullorðna fyrir árið 2004 og tilkynnti um úrslit vegna viðurkenn- ingar fyrir bestu íslensku fræðibækumar fyrir börn (sjá umfjöllun í blaðinu). Að lokum flutti Steinunn Jóhannes- dóttir rithöfundur fyrirlestur sem nefndist Höfundur á reisu og fjallaði þar um að- föng sín og aðferð við ritun Reisubókar Guðríðar Símonardóttur en stjóm hefur skapað þá hefð að hafa fræðslufyrirlestur að loknum aðalfundarstörfum. Á aðalfundinn mættu rúmlega 30 fél- agsmenn. Kaffiveitingar voru samkvæmt hefð í boði félagsins. Á vefsíðu Upplýsingar http://www. bokis.is er fundargerðin birt i heild sinni. Þórdís T. Þórarinsdóttir 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 7

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.