Fregnir - 01.06.2005, Qupperneq 8

Fregnir - 01.06.2005, Qupperneq 8
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Skýrsla stjómar Upplýsingar 10. maí 2004 til 9. maí 2005 Stjórn félagsins, kosin á 5. aðalfundi 10. maí 2004, skiptist þannig: Þórdís T. Þórarinsdóttir formaður, Vala Nönn Gauts- dóttir varaformaður og vefstjóri, Lilja Ólafsdóttir gjaldkeri, Ingibjörg Baldurs- dóttir ritari og Fanney Sigurgeirsdóttir meðstjómandi en hún tók við sem gjald- keri í byrjun árs 2005. Vala hefúr tekið skrifstofuvaktina, uppfært félagatal og heimasíðu. A heimasíðuna eru nú reglu- lega settar inn fréttir af því sem er á döf- inni hjá félaginu og í bókasafnaheiminum. Greidd er þóknun fyrir skrifstofúvaktina og auk þess var á árinu 2003 hafið að greiða formanni mánaðarlega þóknun fyrir störf fyrir félagið. í framtíðinni er stefnt að því að ráða starfsmann til félagsins. Skrifstofa félagsins er opin tvær klst. á viku á fimmtudögum kl. 16-18 frá október til nóvember og frá 15. janúar til 15. maí. Alls vom haldnir 16 (19) stjórnar- fundir á starfsárinu þar sem stjóm fúndaði ýmist ein eða með öðmm. Hér verður sagt almennt frá helstu verkefnum sem stjómin hefúr unnið að. Stjómin dreifir reglulega á heimasíðu félagsins, með póstlistanum bokin og/eða í Fregnum fréttum af fram- vindu þeirra verkefna sem unnið er að. Auk neðanritaðs var unnið áfram almennt að uppbyggingu og skipulagningu félags- ins og svarað ýmsum fyrirspumum og erindum, sem bámst, en þeim fer Qölg- andi. Húsnæðismáiin hafa verið í uppnámi þar sem félagið átti þess ekki kost að flytja með BHM í nýtt húsnæði. Nú nýlega hefur stjómin gengið til samstarfs við tvo aðila um kaup á hlut BHM á 2. hæð Lágmúla 7 (um 71 m2 alls) þannig að húsnæðiseign félagsins mun ekki breytast til muna. Fyr- irhugað er að stofna eignarhaldsfélag um hæðina, laga húsnæðið og gera það að einni heild. Sótt er árlega um styrki til ráðstefnu- og fundaferða og ýmissa sérverkefna. Menntamálaráðuneytið veitir félaginu ár- lega styrki til starfseminnar og fjölþjóðlegs samstarfs. Norræna ráðherranefndin hefúr árlega veitt styrki vegna þátttöku í sam- ráðsfúndum norrænna bókavarðafélaga. Félagið á ennfremur sérstaka Hauka í homi þar sem em Þjónustumiðstöð bóka- safna og Landsbókasafn íslands - Há- skólabókasafn auk þess sem mörg söfn hafa á ýmsan hátt sýnt félaginu velvild og þannig eflt það. Upplýsing á aðild að eftirfarandi félagasamtökum: Bókasam- bandi íslands, IBBY, EBLIDA, IASL, NORD I&D, IFLA og NVBF. Á starfsárinu fundaði stjómin tvisvar með fúlltrúum félagsins í stjóm NVBF. Samráðsfúndur stjómar og fulltrúanna er jafnan haldinn fyrir stjómarfundi NVBF haust og vor. Fréttir af stjómarfundum NVBF em birtar í Fregnum (sjá 3/2004, s. 19-20 og 1/2005, s. 27-28). Auk þess fundaði stjómin til dæmis tvisvar með rit- nefnd Bókasafnsins til að ljúka við endur- skoða starfssamning við ritnefndina, með lagabreytinganefnd, uppstillinganefnd og með fúlltrúum frá BHM vegna húsnæðis- mála. Á starfsárinu sóttu alls 44 (38) um aðild að félaginu, 27 (32) einstaklingar, 15 (5) nemar og 2 (1) stofnanir. Þeir hafa fengið kynningarbréf og lög félagsins. Alls bámst stjórn 3 (4) úrsagnir, 2 (4) einstakl- ingar og 1 (0) stofnun. I lok starfsársins höfðu alls 438 (427) greitt félagsgjald fyrir árið 2004, 358 (357) einstaklingar, 14 (3) nemar og 66 (67) stofnanir. Ógreidd gjöld fyrir 2004 (miðað við 30. apríl) em alls 43 (41), 41 (37) einstaklingar, 0 (0) nemar og 2 (4) stofnanir. Fyrir 2005 hafa þegar 399 greitt félagsgjöld. Samkvæmt reglum félagsins er stjóm- inni heimilt að taka af félagaskrá þá sem ekki hafa greitt árgjöld tvö ár í röð. Um síðustu áramót voru 16 (27) teknir af skrá, 15 (21) með einstaklingsaðild, 0 (1) nemi og 1 (5) stofnun. Þann 10. mars vom greiðsluseðlar fyrir árgjaldið 2005 sendir út með gjalddaga 10. mars og eindaga 10. apríl. Stjórnin hefur mótað þær verklags- reglur að hafí félagsmaður ekki greitt 2005 árgjaldið fyrir eindaga fær hann ekki Fregnir og Bókasafnið send fyrr en skil hafa verið gerð svo virkir félagar hafi sem minnstan kostnað af þeim sem ekki greiða árgjöldin. Félagsskírteini vom í fýrsta skipi send með júníblaði Fregna 2004 til fúllgildra félagsmanna. Stjórn Upplýsingar hefur mótað stefnu um að félagsmenn njóti betri kjara, allt að 25% afsláttar, en utanfélags- menn á námskeiðum og viðburðum sem staðið er fyrir innan vébanda félagsins og 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 8

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.