Fregnir - 01.06.2005, Page 11

Fregnir - 01.06.2005, Page 11
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og npplýsingafræða -13. mars meðal annars til undirbúnings sameiginlegu verkefni norrænu félaganna á IFLA 2005. Upplýsing átti aðild að hinni árlegu Gerðubergsráðstefnu um börn og barnamenningu, sem haldin var 12. mars 2005, og var að þessu sinni einkum helguð H.C. Andersen. Fulltrúi Upplýsingar í und- irbúningsnefnd er Inga Kristjánsdóttir (Fregnir 1/2005, s. 31-32). Stjóm Upplýsingar stóð fyrir fræðslu- fundinum Blandaðir ávextir í Þjóðarbók- hlöðu fimmtudaginn 17. mars 2005 þar sem haldin vom fjögur mismunandi erindi. Til leiks mættu um 40 manns sem gerðu góðan róm að fundinum. (Fregnir 1/2005, s. 41-42) Fræðslu- og skemmtinefnd stóð fyrir morgunverðarfundi á Grand hóteli 28. apríl síðastliðinn. Efnið var Geta bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar nýtt sér tól markaðsfræðinnar. Til fundarins komu um 50 rnanns og vakti hann almenna ánægu. (Fregnir 1/2005, s. 44) Fyrirlesturinn Why do people want digital libraries var haldinn 29. apríl síðastliðinn í samvinnu Menntasmiðju Kennaraháskóla íslands og Upplýsingar. Rúmlega 30 manns komu á fyrirlesturinn sem góður rómur var gerður að. (Fregnir 1/2005, s. 5) Samstarfshópur um höfundaréttar- mál veitti umsögn um ný lög um höfunda- rétt. Olöf Benediktsdóttir er fulltrúi Upplýsingar í hópnum og verkefnisstjóri. Umsögnin er birt í blaðinu. Alþjóðleg ráðstefna um bókasafns- og upplýsingamál verður haldin í samvinnu við Skor í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Islands á Hótel Sögu 23. ágúst næstkomandi (Fregnir 1/2005, s. 5-7). Menntunarmál - kynnisferðir Upplýsing stendur fyrir endurmenntunar- námskeiðum í samvinnu við Endur- menntun Háskóla Islands. Skuldlausir félagar fá 10% afslátt af námskeiðum á sviði bókasafns- og upplýsingafræði. Námskeið í boði á haustönn: Skráning gagna, Skráning gagna (hljóðrit), Morð í öllum betri bókabúðum - um glæpasöguna að fomu og nýju, Bókasafns- og upplýs- ingafræðingurinn sem kennari. Námskeið í boði á vorönn: Skráning gagna, Skráning gagna (hljóðrit), Heilbrigðisupplýsingar á Netinu, Verkefnastjórnun á bókasöfnum og öðmm söfnum, Bókasafns- og upp- lýsingafræðingurinn sem kennari. Aðalverkefni verkefnisstjórnar um námsefnisgerð í bókasafnstækni (Hulda Björk Þorkelsdóttir og Þórdís T. Þórarins- dóttir) var að fylgja eftir samningum við höfúnda námsefnis. Nemendur í bóka- safnstækni útskrifuðust í fyrsta skipti 18. desember 2004 (Fregnir 1/2005, s. 40- 41). Mat á starfsreynslu þeirra sem lokið hafa bóklegu námi er í undirbúningi. Upp- lýsing hefur áheyrnarfulltrúa hjá Starfs- greinaráði upplýsinga- og fjölmiðla- greina. Formaður er aðalfulltrúi og Hulda Björk Þorkelsdóttir varafulltrúi. Úr Ferðasjóði Upplýsingar er í ár út- hlutað 7 (18) styrkjum, að upphæð kr. 20.000 eða 10.000. Alls sóttu 16 (4) styrk- ina fyrir árið 2004 en stjóm hefur sett þá verklagsreglu að styrkþegar greini frá verkefnum sínum í Fregnum. Beiðni barst frá Kennaraháskóla íslands (KHI) um álitsgerð vegna nýrrar námskrár fyrir grunn- og framhalds- skóla. Leitað var til viðkomandi faghópa innan félagsins um undirbúning álitsgerða sem stjómin sendi svo til KHI. Félagið er styrktaraðili sýningar á nor- rænu handbókbandi; Norrænt bókband 2005, sem haldin er í Þjóðmenningarhús- inu nú í sumar. Störf faghópa og fulltrúa Innan vébanda Upplýsingar fer fram öfl- ugt starf í ýmsum nefndum og stjórnum sem fulltrúar félagsins taka þátt í og er það starf eðli málsins samkvæmt drjúgur hluti hins faglega starfs. Yfirlit um þá starfsemi var flutt á aðalfundinum og skýrslur um starfsemina birtar hér í blaðinu. Stjóm Upplýsingar flytur öllum þeim sem starfa íyrir félagið á einn eða annan hátt alúðarþakkir og ennfremur öllum þeim félagsmönnum sem halda merki Upplýsingar á lofti með störfúm í þágu fél- agsheildarinnar. Að síðustu vill undirrituð þakka stjóm- armönnum gott samstarf og frábært vinnu- framlag þeirra i þágu félagsins. f.h. stjórnar Upplýsingar Þórdís T. Þórarinsdóttirformaður 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 11

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.