Fregnir - 01.06.2005, Page 23
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Þómý Hlynsdóttir, Landsbókasafni íslands
- Háskólabókasafni
Hlutverk hópsins var í meginatriðum
tvíþœtt:
Að skilgreina ítarlega hlutverk bæði
Landsbókasafns íslands - Háskólabóka-
safns sem landsmiðstöðvar millisafnalána
og annarra stórra safna í hverri stjómunar-
einingu Gegnis sem landskerfis.
Gera samræmdar verklagsreglur um
millisafnalán og marka stefnu og gera
áætlun um framkvæmd þeirra til næstu
fimm ára.
Hópurinn hittist á þremur fundum,
einnig vora mikil samskipti í tölvupósti.
Unnin voru drög að verklagsreglum
íslenskra bókasafna um millisafnalán og
einnig texta um millisafnalán rita sem
skráð eru í Gegni. Þar koma m.a. fram al-
mennar reglur um aðgengi rita eftir safna-
tegundum. Enn er millisafnalánaþátturinn í
Gegni ófullkominn en unnið er að því að
koma honum í almenna notkun á lands-
vísu. Faghópurinn hefur ekki lokið störf-
um.
Halldóra Kristbergsdóttir
Þróun GATS-samningsins og
áhrif hans á bókasöfn
Nokkuð hefur verið rætt um hugsanleg
áhrif GATS-samnings Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) um þjónustuvið-
skipti á bókasöfn, en eins og kunnugt er
var Island eitt 13 ríkja sem opnuðu á svið
bókasafna og annars safnastarfs við stofn-
un WTO 1. jan. 1995. Síðan hafa fimm
ríki bæst við. Með þessu er fátt sem kemur
formlega í veg fyrir að einkaaðilar geti
rekið bókasafnaþjónustu í samkeppni við
opinber bókasöfn, en bæði IFLA og
EBLIDA hafa haft áhyggjur af að slíkt geti
grafíð undan samfélagslegu hlutverki
bókasafna. Upphaflega virðast einkum
tveir fyrirvarar hafa komið í veg fyrir að
erlendir aðilar gætu settu hér upp bóka-
safnaþjónustu. Annars vegar að þeim bæri
að sækja um leyfi (skv. takmörkunum á
markaðsaðgangi sem giltu fyrir öll svið)
og hins vegar að jafnréttiskjör þeirra nái
ekki til niðurgreiðslna né annars fjár-
hagslegs stuðnings.
Nú er í gangi svokölluð Doha-samn-
ingalota hjá WTO sem hófst að loknum
ráðherrafundinum í Doha í Katar haustið
2001 og á að ljúka fyrir árslok 2005 en nú
í haust verður ráðherrafundur WTO í Hong
Kong. Tilboð á sviði þjónustuviðskipta var
lagt fram af Islands hálfu vorið 2003. Þar
var engu breytt varðandi svið safna sér-
staklega en fyrirvarinn um að sækja bæri
um leyfi var felldur niður. Endurskoðað
tilboð var lagt fram 31. maí 2005 en þar
var engu breytt frekar hvað þetta varðar.
Sennilega er ákvæðið um niðurgreiðsl-
ur eða fjárhagslegan stuðning mikilvægast.
En þá er þess líka að geta að í skuld-
bindingaskrá samningsins er þess sérstak-
lega getið að enn hafi ekki verið skilgreint
í samningnum hvað átt sé við með niður-
greiðslu eða ljástuðningi (subsidies).
Það eru reyndar ýmis fleiri svið sem
þarf að hafa í huga varðandi áhrif GATS-
samningsins á bókasöfn svo sem ljar-
skiptaþjónusta varðandi rafrænar upplýs-
ingar, menntaþjónusta og rannsóknarþjón-
usta, sem og útlán myndbanda/diska og
möguleikar á frekari útvíkkun á starfsemi
bókasafna. Einnig þarf að huga að öðram
samningi á vegum WTO, TRIPS-samn-
ingnum um hugverkaréttindi. Allt þetta er
til athugunar á vettvangi IFLA og
EBLIDA sem væntanlega munu senda
fulltrúa til Hong Kong vegna ráðherra-
fundarins í haust.
Það er í eðli GATS-samningsins að
stöðugt er haldið áfram að færa fleiri svið
undir hann og afnema fyrirvara sem settir
era í upphafi. Hann gengur ekki til baka.
Stefnt er að því að sem flest svið þjónustu
séu á almennum markaði þar sem einka-
fyrirtæki geta skapað sér arð. Því þarf
stöðugt að vera á varðbergi. (Sjá nánar
greinar í Bókasafninu 2004, einkum grein
Páls H. Hannessonar).
Einar Olafsson
Umsögn um höfundaréttar-
frumvarpið
Hér eftir fer bréf til Menntamálanefndar
A/þingis, dags. 9. maí 2005, undirritað af
öllum fulltrúum samstarfshóps um höf-
undaréttarmál.
Umsögn um frumvarp til laga um breyt-
ingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með
síðari breytingum. (Lagt fyrir Alþingi á
131. löggjafarþingi 2004-2005.) 702. mál
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 23