Fregnir - 01.06.2005, Page 28
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
árinu 1999 hefur Ingibjörg starfað sem
skjalastjóri ijármálaráðuneytisins og sinnt
starfi staðgengils skrifstofustjóra rekstrar-
og upplýsingaskrifstofu íjánnálaráðuneytis
frá 2004 þar sem hún hefur meðal annars
tekið þátt í stefnumótun, skipulags og sam-
ræmingarvinnu og ýmiskonar samvinnu og
teymisvinnu með starfsmönnum annarra
ráðuneyta.
Fimm sóttu um starf fagstjóra í skrán-
ingu erlendra rita. Fanney Sigurgeirsdóttir
bókasafns- og upplýsingafræðingur var
valin úr hópi umsækjenda. Hún hefur BA-
próf í bókasafns- og upplýsingafræði frá
HI 1997. Hún hóf störf á safninu haustið
2000 en hafði áður unnið sem bókasafns-
og upplýsingafræðingur á safnadeild Rík-
isútvarpsins, á bókasafni Landspítala - Há-
skólasjúkrahúss og í bókasafni Breiða-
gerðisskóla. Fanney hefur sinnt stunda-
kennslu í verklegum þætti skráningar fyrir
bókasafns- og upplýsingafræði við Há-
skóla íslands frá 2004 og kennt notkun
leitarþátta á skráningamámskeiðum hjá
Landskerfí bókasafna. Einnig hefur hún
verið mjög virk í lagfæringum á gagna-
safni Gegnis og hefur mikla þekkingu á
skráningu í kerfið.
Atta sóttu um starf fagstjóra í skyldu-
skilum. Hallfríður Baldursdóttir bóka-
safns- og upplýsingafræðingur hefur verið
ráðin til að leiða þann faghóp. Hún lauk
BA-prófí í bókasafns- og upplýsingafræði
frá HÍ 1983 og hefur lagt stund á nám í
spönsku, ítölsku og latínu við HÍ. Hall-
fríður hefur um tveggja áratuga reynslu af
vinnu við skylduskil því allt frá því að hún
hóf störf á gamla Landsbókasafninu hafa
flest störf hennar tengst verkefnum skyldu-
skila á einhvem hátt svo að hún er manna
best að sér um þau málefni. Hún hefur
meðal annars unnið Skrá um íslensk blöð
og tímarit og fáir þekkja íslenska tímarita-
útgáfu betur en hún.
Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir
landsbókavörður
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS
HÁSKÓLA BÓKASAFN
Alþjóðleg samtök um varð-
veislu Netsins (veraldarvefs-
ins) - IIPC
IIPC (Intemational Intemet Preservation
Consortium) em samtök 11 þjóðbókasafna
(frá Astralíu, Bretlandi, Bandaríkjunum
(Library of Congress), Frakklandi, Ítalíu,
Kanada og Norðurlöndunum fímm) ásamt
Intemet Archive. Markmið samtakanna er
að vinna að framtíðarvarðveislu Netins
einkum þó Vefsins með því að skilgreina í
hverju það felst og hvaða grunnþættir
þurfa að vera til staðar til að tryggja varð-
veisluna. Ennfremur er unnið að þeim þátt-
um sem varða þróun hugbúnaðartóla til að
safna vefsíðum og veita aðgang að vef-
safni. Meginmarkmið samtakanna og ýms-
ar upplýsingar um þau er að fínna á vefn-
um http://www.netpreserve.org.
Samtökin vom stofnuð í júlí 2003 og
var þá gerður samningur til þriggja ára
milli aðila og er þar kveðið á um að ekki
verði teknir inn nýir meðlimir fyrr en að
þeim tíma loknum, þ.e. 2006. Þá er gert
ráð fyrir að samtökin verði endurskipulögð
en enn er óljóst hvemig því lyktar. Sam-
tökunum er stjómað af stýrihópi og situr
þar einn frá hverri stofnun en umsjónar-
aðili samtakanna er þjóðbókasafn Frakka.
Starfsemin fer aðallega fram í sex vinnu-
hópum sem em: samþætting (framework),
aðgangur (access), mælingar/eftirfylgni
(testbed & metrics), umsýsla vefsafna
(content management), gagnasöfn (deep
web) og rannsóknarþarfir (researchers re-
quirements). Þessir hópar hafa haldið
nokkra vinnufundi og dagana 26.-30. júní
síðastliðinn hittust fjórir þeirra ásamt stýri-
hóp í Landsbókasafni og voru fundarmenn
þegar flest var 25 að tölu. Af hálfu Lands-
bókasafns er Þorsteinn Hallgrímsson að-
stoðarlandsbókavörður í stjóm samtakanna
og veitir einnig forstöðu einum af vinnu-
hópunum, þ.e. hópnum sem fjallar um að-
gang (access).
Talsverður árangur, bæði beinn og ób-
einn, hefur þegar náðst í þessu samstarfi
og hefur Landsbókasafn notið góðs af því
en það hefur einnig lagt talsvert af mörk-
um við þróunarvinnu. Öll hugbúnaðartól,
sem samtökin standa, að verða opin öllum
sem opinn hugbúnaður (Open Source) en
það er mjög þýðingarmikið með tilliti til
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 28