Fregnir - 01.06.2005, Qupperneq 40

Fregnir - 01.06.2005, Qupperneq 40
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða skráningarþekkingu og þekkingu á MARCsniðinu. Gerð hefur verið samþykkt um skyldur skrásetjara þar sem meðal annars segir að það sé skylda skrásetjara að tilkynna um villur og/eða galla sem þeir kunna að rekast á í bókfræðigögnunum. Slíkum til- kynningum skal beina til skrásetjara færsl- unnar og/eða ritstjóra Gegnis. Fundargerðir skráningarráðs eru birtar á vef Landskerfís bókasafna. Netfang ráðs- ins er skraningarrad@landskerfi.is. Þóra Sigurbjörnsdóttir formaður skráningarráðs Fréttir af efnisorðaráði Gegnis Efnisorðaráð Gegnis var sett á stofn í janúar 2004 að frumkvæði skráningarráðs og heyrir undir það. í efnisorðaráði eiga sæti Elísabet Halldórsdóttir, Guðný Ragn- arsdóttir, Ragna Steinarsdóttir, ritstjóri efnisorða í Gegni og Þórdís T. Þórarins- dóttir. Efnisorðaráð hefur haldið 15 fundi. síðan það var skipað. Að undanfömu hafa kraftar ráðsins farið í að skipuleggja námskeið um lyklun sem haldið var 25.-27. maí síðastliðinn. A námskeiðinu var fjallað um stýrð efnisorð, skilgreiningar, mikilvægi og eiginleika efnisorðalykils við efnisorðagjöf og upp- lýsingaleit, gerð og uppbyggingu efnis- orðalykla, lyklunarhefðir og stefnumótun við lyklun. Aðalfyrirlesari á námskeiðinu var Lois Mai Chan prófessor við School of Library and Information Science, Uni- versity of Kentucky. Einnig héldu meðlim- ir efnisorðaráðs fyrirlestra. A námskeiðinu spunnust afar góðar og gagnlegar umræður um efnisorðagjöf og efni fyrirlestranna. Er það von okkar að námskeiðið hafí vakið þátttakendur til umhugsunar um mikilvægi lyklunar og stefnumótunar á því sviði. Ráðið heldur ekki fundi í sumar en tek- ur til starfa af fullum krafti í september. Forgangsverkefni í haust verður að yfírfara svið 693, taka afstöðu til þeirra tillagna að efnisorðum sem þar liggja fyrir og taka af- stöðu til valorða og vikorða. Einnig er að- kallandi að hreinsa út orð í 692 sem ekki eiga þar heima og viljum við af því tilefni ítreka að í því sviði eiga eingöngu að vera valorð sem eru í 3. útgáfu af Kerfisbundn- um efnisorðalykli eftir Þórdísi T. Þórarins- dóttur og Margréti Loftsdóttur. Einnig verður hafíst handa við að eyða þeim heit- um úr 690 sviðinu sem eru samhljóða heit- um í 692. Þar að auki verður áfram unnið að stefnumótun og þar munum við njóta góðs af nýafstöðnu námskeiði um lyklun. Efnisorðaráð hefur nú fengið netfang sem er efnisordarad@landskerfi.is og er fólk hvatt til að senda inn tillögur að nýj- um efnisorðum sem það hefur bætt við í svið 693 ásamt rökstuðningi eða hugleið- ingum um gagnsemi heitisins. Það mun auðvelda ráðinu vinnu við svið 693. Fundargerðir ráðsins eru aðgengilegar á vef Landskerfís bókasafna á http://www. landskerfí.is/sia.php?id=89 eða undir „Faghópar" í vinstri valrönd. Guðný Ragnarsdóttir Handbók skrásetjara Gegnis Um miðjan maímánuð var aðgangur opnaður að Handbók skrásetjara Gegnis á slóðinni http://hask.bok.hi.is/. Skráning í Gegni er samstarfsverkefni aðildarsafna Gegnis og bókfræðifærslumar em sameign safnanna. Handbókinni er ætlað að stuðla að vönduðum og samræmdum vinnu- brögðum við skráningu. Handbókin birtist eingöngu á vef og líta ber á þessa íyrstu gerð sem fmmdrög og tilraunaútgáfu. Hún verður í stöðugri þró- un og efni birt jafnóðum og ritstjóm hefur gengið frá því. Handbókin á að innihalda hagnýtar upplýsingar um hvaðeina er lýtur að skráningu í Gegni. Ekki er um nýjar þýðingar að ræða. Efninu er skipað í fjóra meginkafla: um kerfíð, marksniðið, skrán- ingarreglur og hjálpargögn. Skipan efnis getur breyst eftir því sem verkinu miðar eða aðstæður breytast. Framsetning efnis miðast við að notendur handbókarinnar þekki og noti reglur og staðla um bók- fræðilega skráningu. Samþykktir skrán- ingarráðs Gegnis um bókfræðilega skrán- ingu verða felldar í efni hennar þar sem við á. Ritstjórn Handbókar skrásetjara Gegn- is skipa Hildur Gunnlaugsdóttir, Hólm- fríður Sóley Hjartardóttir og Monika Magnúsdóttir, skrásetjarar á Landsbóka- safni íslands - Háskólabókasafni, sem lög- um samkvæmt ber að stuðla að samræm- 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 40

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.