Fregnir - 01.06.2005, Side 42
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræöa
hluta þátttakenda þótti betra næði á les-
rýmunum nú en fyrir tveimur árum. Um
tveimur þriðju þátttakenda þótti notkun
farsíma hafa truflandi áhrif á lesrýminu. Er
það nokkur aukning síðan 2003 enda má
gera ráð fyrir að enn fleiri hafi farsíma
meðferðis í safnið nú en þá. Aftur á móti
þótti færri þátttakendum notkun fartölva
hafa truflandi áhrif en árið 2003. Mark-
tækur munur er milli ára og því óhætt að
álykta að umburðarlyndi í garð fartölva
hafi aukist enda fleiri sem nota þær.
Attatíu prósent aðspurðra áttu lánþega-
skírteini og er það svipað hlutfall og 2003.
Nemendur við HÍ áttu frekar lánþegaskír-
teini en aðrir hópar. Nær þrír ijórðu þátt-
takenda fengu efni að láni síðastliðna tólf
mánuði og er það svipað hlutfall og árið
2003. Nemendur í hugvísindadeild og við-
skipta- og hagfræðideild voru hlutfallslega
duglegastir að taka rit í lán. Fjórtán af
hundraði (á móti tíunda hverjum þátt-
takanda árið 2003) höfðu nýtt sér þjónustu
millisafnalána síðastliðna 12 mánuði. Um
það bil fjórðungur þeirra, sem hafði ekki
nýtt sér þjónustuna, sagðist útvega sér efni
sjálfur á Netinu eða eftir öðrum leiðum.
Tveir þriðju þátttakenda sögðust oftast
fínna þær bækur sem þeir leituðu að og
voru konur oftar fundvísari á bækur en
karlar. Karlar fundu þó oftar tímarit sem
þeir leituðu að. Nemendur við HI fundu
oftar bæði bækur og tímarit sem þeir leit-
uðu að en aðrir hópar.
Nemendur við HI notuðu tölvur safns-
ins í meira mæli en aðrir hópar. Nemendur
við HI voru einnig ánægðari með tölvuað-
stöðuna en aðrir hópar. Þeim fannst þó
vanta fleiri nettengdar tölvur og einnig
fannst þeim frekar en öðrum hópum að
það væri löng bið eftir því að komast í
tölvu.
Um þrír fjórðu þeirra sem höfðu farið
inn á vef safnsins töldu heildarútlit vefsins
gott, að auðvelt væri að rata um vefínn og
að efni vefsins væri gagnlegt. Tæplega
helmingur þátttakenda hafði notfært sér
þau rafrænu gagnasöfn sem safnið býður
upp á síðastliðna tólf mánuði. Nemendur
við HÍ nýttu sér rafræn gagnasöfn í meira
mæli en aðrir hópar.
Helstu aðfinnslur
Algengasta athugsemdin hjá notendum
beindist að of stuttum afgreiðslutíma. Óska
nemendur eftir því að safnið sé opið lengur
um helgar og virka daga til 22. Falla þess-
ar óskir saman við stefnu safnsins en fjár-
skortur hefur hamlað því að hægt hafí ver-
ið að verða við þeim óskum. Önnur at-
hugasemd snertir framboð prentaðs efnis á
fræða- eða áhugasviði svarenda. 19,5%
þeirra sem svöruðu töldu framboðið ekki
nógu gott. Ritakaup hafa vissulega dregist
saman á undanfömum ámm enda hefur
ritakaupafé safnsins ekki hækkað um ára-
bil.
Niðurstöður
Almennt em notendur safnsins ánægðir
með þjónustu safnsins og aðbúnað. í fram-
tíðinni verður reynt að koma til móts við
ábendingar um atriði sem safnið getur lag-
fært, svo sem að bæta við forritum á tölvur
safnsins, bæta þráðlausa netið og bæta
nestisaðstöðuna í safninu. Ætlunin er að
halda reglubundið áfram að gera þjónustu-
kannanir til að sjá hversu vel safnið mætir
þörfum notenda sinna og uppfyllir
þjónustumarkmið sín.
Skýrslan með niðurstöðum könnunar-
innar liggur frammi á safninu fyrir þá sem
vilja kynna sér hana betur. Hafíð samband
við undirritaða eða upplýsingadeild á 2.
hæð.
Aslaug Agnarsdóttir sviðstjóri þjónustusviðs
Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni
Tól markaðsfræðinnar -
Fræðslufyrirlestur
Þann 28. apríl síðastliðinn stóð fræðslu- og
skemmtinefnd Upplýsingar fyrir morgun-
verðarfræðslufundi á Grand Hótel Reykja-
vík. Fyrirlesari var Magnús Pálsson MBA
forstöðumaður þróunarsviðs Sparisjóðs
Hafnarfjarðar. Magnús hefur áralanga
reynslu á sviði markaðsmála og hefur
kennt við Endurmenntun Háskóla íslands
undanfarin ár. Fyrirlesturinn var haldinn
undir yfírskriftinni Tól markaðsfrœðimar.
Var fjallað um grunnþætti í markaðsstarfí
og nýtingu þeirra í bókasöfnum og upplýs-
ingamiðstöðvum.
Magnús sagði frá því hvernig skilgrein-
ing á markaðsfræði hefði á undanfömum
ámm breyst frá því að vera hagnaðarhug-
tak í það að vera félags- og stjómunarlegt
ferli. Skilgreina þyrfti markmið fyrirtækis/
stofnunar:
30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 42