Fregnir - 01.06.2005, Síða 55

Fregnir - 01.06.2005, Síða 55
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Lög Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsinga- fræða I. NAFN OG HLUTVERK 1. gr. Nafn og varnarþing Félagið heitir: Upplýsing - Félag bóka- safns- og applýsingafrœða. Heimili þess og vamarþing er í Reykjavík. 2. gr. Markmið Markmið félagsins er: a) Að auka skilning á mikilvægi sérfræði- þekkingar bókasafns- og upplýsingafræð- inga og annarra starfsmanna bókasafna og upplýsingamiðstöðva. b) Að efla skilning á mikilvægi íslenskra bókasafna og upplýsingamiðstöðva í þágu menningar, menntunar og vísinda. c) Að bæta aðstöðu til rannsókna og náms í bókasafns- og upplýsingafræði. d) Að efla samstarf og samheldni félags- manna. e) Að gangast fyrir faglegri umræðu um bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar. f) Að stuðla að og standa fyrir símenntun félagsmanna. g) Að auka samvinnu ólíkra safnategunda. h) Að koma á samvinnu við innlenda og er- lenda aðila með svipuð markmið. i) Að vera löggjafanum og stjómvöldum til ráðgjafar um bókasafns- og upplýsingamál. j) Að starfa með Stéttarfélagi bókasafns- og upplýsingafrœðinga og öðrum stéttarfélög- um eftir því sem við á. II. FÉLA GSAÐILD 3. gr. Félagsaðild Rétt til félagsaðildar eiga: a) Bókasafns- og upplýsingafræðingar svo og þeir sem starfa á rannsóknarbókasöfnum, almenningsbókasöfnum, sérfræðibókasöfn- um, skólasöfnum, starfsmenn stofnana og fyrirtækja sem vinna að upplýsingamiðlun. b) Nemar í bókasafns- og upplýsingafræði eða öðru námi á sviði upplýsingamiðlunar og - tækni geta átt aukaaðild að félaginu í allt að þrjú ár. Nemar, sem óska eftir auka- aðild, hafa málfrelsi á fundurn en ekki at- kvæðisrétt og eru ekki kjörgengir. c) Ahugamenn um markmið félagsins. d) Almenningsbókasöfn, skólasöfn og sér- fræði- og rannsóknarbókasöfn, skjalasöfn svo og aðrar stofnanir og fýrirtæki sem starfa að upplýsingamálum. Umsóknir um félagsaðild eru afgreiddar á stjómarfundi. Einstaklingar sem eiga fulla aðild að félaginu njóta allra þeirra réttinda og fríð- inda, sem félagið býður upp á hverju sinni, auk eintaka af fréttabréfum og/eða fag- tímaritum félagsins. Fulltrúar stofnana og fyrirtækja hafa ekki atkvæðisrétt á fundum og njóta hvorki kjörgengis né fríðinda, sem félagið býður upp á, en fá fagtímarit og fréttabréf þess. III. SKIPULAG SVIÐA OG NEFNDA 4. gr. Skipulag Starfsemi félagsins skiptist í eftirfarandi svið: a) Stjórnunarsvið. b) Fjánnálasvið. c) Utgáfusvið. d) Fræðslu- og ráðstefnusvið. e) Fagsvið. Stjórn félagsins eða félagsfúndi er heimilt að skipa hópa og nefndir og fela þeim ákveðin verkefni eftir nánari fyrirmælum hverju sinni. Þeim skal með erindisbréfí setja starfsreglur þar sem viðfangsefni er skilgreint, starfstímabil ákveðið og hver nefndarmanna sé ábyrgur fyrir störfum hennar. IV STJÓRN OG STJÓRNARSTÖRF 5. gr. Stjómarkjör Stjómarkjör fer fram á aðalfundi. Stjórn félagsins skal skipuð fímm mönnum: For- manni, varafonuanni, ritara, gjaldkera og vefstjóra. Auk þess skulu kosnir tveir vara- menn. Stjómarkjöri skal hagað þannig: a) Formann og varaformann skal kjósa sér- staklega. Þeir skulu kosnir til tveggja ára í senn. Fonnaður og varafonnaður mega sitja þrjú kjörtímabil samfellt. b) Aðra stjómarmenn og varamenn skal kjósa til tveggja ára. Stjómarmenn mega sömuleiðis sitja þrjú kjörtímabil í senn. Seta í stjóm skerðir ekki rétt til kjör- gengis til formanns. 30. árg. - 2. tbl. 2005 - bls. 55

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.