Morgunblaðið - 14.01.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.01.2001, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 39 Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Blómaskreytingar við öll tilefni Opið til kl. 19 öll kvöld ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofa Íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Olsen útfararstjóri. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242                                     !      "#  "$$%    !" #$ $%& &'& ## (# )'*  !" #$ (#  !&*#+# & $%&  ##%# #  !" #$ $%& ,%- ##  &# (# %&&.&# !" #$ (# (&'#/ ## & $%&  &# !" #$ (# 0 ## 1&' &# $%& $%& #' !" #$ (# 2&  # 3'$ 4 '#* $%& 56&'' 2 & (# 7 &# 71&#(' #'1"" 7 &#8 &      94 94  : & &#'7& ;<;        !   ' (  )  "*  "$$% !( +, ,(  56 8 !" #$ (# 284 &'&: !" #$ $%& ) &6! &3 $" & (#8 (   9= 2>   +  ?&6 #? $    &7&*#@     -.  / 0, +    () (  +    !( +,   (  &#$  ## $%&8 1  )  (   +(     A, + ?&62 $6&-( (?& 7(&' "B8 2   )    1  +( 3 //         -"45    1 /  6,     +    ,+ 7 /  (, (' ' (# 2& #8(' $%& '%&(' (#  !&*#3   ! $%&8 Er ég kveð æskuvinstúlku mína, Svölu, renna margar léttar minning- ar fram í hugann. Litlar ljóshærðar hnátur, önnur með slöngulokka niður á bak, standa í porti Miðbæjarskólans í glampandi sólskini, fyrsti skóladag- urinn er að hefjast. Er inn í skólastof- una var komið fór Svala að hágráta og hin fylltist ógnarskelfingu, kennslu- konan með breiðan og hlýjan barm tók telpuna í fangið, reri með hana, talaði við hópinn með vinsamlegri rödd og burt var öll hræðsla. Þær voru svo miklar mömmutelpur. Nú tók alvaran við en ekki mátti gleyma öllum ævintýrunum sem biðu við bæjardyrnar eftir ótrúlega for- vitnum telpum sem höfðu allan Vest- urbæinn fyrir sig og alla leikina sem þá var farið í á kvöldin er krakkahóp- urinn kom saman á Brekkustígnum. Vinstúlkurnar gerðu víðreist, fóru niður í fjöru að tína litfagra steina, vestur á Bráðræðisholt, út í sveit á Seltjarnarnesi, upp á Skólavörðuholt, hjólað inn að Landspítala með nesti, að ógleymdum ferðunum út í náttúru- paradísina Örfirisey, þar var svamlað í sjónum alla daga, farið inn í Laugar og í Sundhöllina hvenær sem færi gafst. Á veturna voru göturnar not- aðar af krakkahópnum sem Skauta- svell að ógleymdri Tjörninni. Hópur- inn renndi sér á sleða niður ODDNÝ SVALA BJARNADÓTTIR ✝ Oddný SvalaBjarnadóttir fæddist í Reykjavík 15. júlí 1931. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 7. janúar. Hún var ógift og barnlaus. Foreldrar hennar voru Gest- fríður Ingveldur Ólafsdóttir frá Kirkjufelli í Eyrar- sveit í Grundarfirði, f. 29.5. 1895, d. 16.9. 1946, og Bjarni Guð- mundsson frá Hrauni í Keldudal í Dýrafirði, f. 11.6. 1893, d. 18.1. 1974. Svala átti þrjá bræður, Jón Bjarnason, Rafn Reyni Bjarnason og Hilmar Jó- hannesson er var hálfbróðir þeirr- ar systkina. Útför Svölu fer fram frá Kópa- vogskirkju á morgun, mánudag- inn 15. janúar, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Öldugötuna, áfram nið- ur á Framnesveg á stjörnubjörtum kvöld- um. Svona leið æskan við leik og störf, því snemma fóru vinstúlk- urnar að vinna við að gæta barna og bera út blöð. Oft hlógu þær að því hvað Svala átti bágt með að vakna á morgn- ana, hún setti heljar- stóra vekjaraklukku í vaskafat og dugði það þó ekki alltaf til. En ekki eru allir fæddir undir gæfustjörnu, sorgin var ekki langt frá Svölu. Á mótum Öldu- götu og Brekkustígs þar sem vin- stúlkurnar ætíð kvöddust að loknum leik, stóðu hnípnar telpur kvöld eitt, bróðir Svölu, Hilmar, hafði farist með togaranum Max Pemberton, stóri bróðir hennar sem hún leit svo upp til og saknaði svo sárt. Er unglingsárunum lauk skildileið- ir í leik en samband rofnaði ekki. Rétt eftir fermingu vinstúlku minnar lést móðir þeirra systkina eftir stranga sjúkralegu, sár var sorgin hjá móð- urlausu börnunum. Þá tók Svala við heimilinu fyrir föður sinn jafnframt því sem hún vann úti. Hún var ótrú- lega sterk þessi hægláta og milda stúlka með léttu lundina sem kom svo oft auga á hinar spaugilegu hiðar mannlífsins sem öllum vildi vel og lagði aldrei illt til nokkurs manns. Mikið var um gestagang á heim- ilinu og þá var búið um gesti í drif- hvítu, allt sá Svala um að loknum ströngum vinnudegi. Seinna bjuggu þau systkinin í séríbúð er faðir þeirra lét þau fá og hugsaði Svala um bræð- ur sína. Er hún var rúmlega tvítug sneri hún við blaðinu og fór til Ameríku til frænku sinnar í barnapössun, hún var þar í rúmt ár, lítið talaði hún um veru sína þar. Er heim var komið kom hún sér í góða vinnu, vann raunar ósleiti- lega hvar sem hún gat, og með seiglu og kjarki keypti hún sér íbúð. Síðustu árin bjó hún í Kópavogi og kunni vel við sig þar. Yngsti bróðirinn, Rafn Reynir, kvæntist og stofnaði heimili. Hlý vin- átta var á milli þeirra Jóns, bróður hennar, sem var ókvæntur og barn- laus og áttu þau ætíð hvort annað að, þar til hann lést skyndilega sem var Svölu geysilegt áfall og var hún mikill einstæðingur eftir lát hans. Er veik- indi Svölu bar að fyrir rúmu ári vann hún í Háskóla Íslands og vann á með- an stætt var. Ég á Svölu það að þakka, að á seinni árum fórum við í stórfenglega ferð um N-Ítalíu og Suður-Evrópu undir frábærri fararstjórn Eyjólfs Melsteð og vikuferð til London þar sem ævintýraeðli vinstúlknanna naut sín vel í flakki um hina dásamlegu borg. Nú er Svala búin að hitta móður sína og bræður er hún unni heitast, ég bið henni blessunar. Ég kveð mína vinstúlku og þakka henni hæglát og létt kynni. Ég votta aðstandendum hennar samúð mína. Sigurdís Egilsdóttir. Svala starfaði við Háskóla Íslands frá haustinu 1984, fyrst á aðalskrif- stofu sem fulltrúi, en lengst af var hún umsjónarmaður ljósritunar í Að- albyggingu. Við sem störfuðum með Svölu söknum nærveru hennar. Hún var ljúf í umgengni, bóngóð, brosmild og létti okkur oft lundina en það fór ekki mikið fyrir henni. Svala var fædd og uppalin í Vest- urbænum. Hún kunni frá mörgu fróð- legu og skemmtilegu að segja frá þeim tíma er hún var að alast þar upp með bræðrum sínum, en móður sína misstu þau ung. Hún sinnti ýmsum störfum framan af og vann t.d um tíma í mjólkurbúðinni í „Verkó“ og af- greiddi mjólkina þar upp á gamla mátann, þessu sagði hún okkur svo skemmtilega frá. Síðar vann hún í stjórnarráðinu í Arnarhvoli áður en hún hóf störf við Háskóla Íslands. Í íbúð hennar í Kópavogi var blóm- legt um að litast, hún vildi hafa fallegt í kringum sig og blómin döfnuðu vel hjá henni. Svala hafði yndi af ferða- lögum og hafði ferðast töluvert bæði innanlands og erlendis, oft með Jóni bróður sínum, sem var henni mjög náinn. Á sínum yngri árum hafði hún dvalið um tíma í Bandaríkjunum og átti þar góða vini. Fyrir nokkrum árum lést Jón bróðir hennar og var það Svölu mikið áfall. Hún átti við erfið veikindi að stríða undanfarið og lét vegna þess af starfi sínu hér við skólann fyrir um það bil einu og hálfu ári. Lengi batt hún von- ir við að geta hafið störf að nýju en veikindin ágerðust og kveðjum við nú Svölu okkar með hlýjum hug. Fjöl- skyldu hennar vottum við samúð okk- ar. Samstafsfólk við Háskóla Íslands. Þegar ég var barn var til siðs að horfa á sjónvarpið á mínu heimili, sama hvað í því var. Þannig vildi það til að ég sá mynd um fólk sem var bitið af moskítóflugum, fékk malaríu og dó? Sagan öll! Næsta dag fór ég sem oftar á dorg í skurðunum heima. Ekki var ég fyrr sest en einhverjar svartar fluguhlussur fóru að ásækja mig mér til mikillar skelfingar. Minnug myndarinnar var ég sann- færð um að þarna færi ský mosk- ítóflugna og ég myndi þar af leiðandi deyja úr malaríu ef þær næðu að bíta mig. Það er víst best að taka fram að þar sem moskítóflugurnar skelfilegu voru í aukahlutverki í myndinni voru LÚTHER EGILL GUNNLAUGSSON ✝ Lúther EgillGunnlaugsson, Veisuseli, Fnjóska- dal, fæddist 2. ágúst 1923. Hann lést 24. desember síðastlið- inn. Eftirlifandi eig- inkona hans er Þor- gerður Laxdal. Börn þeirra eru Gunn- laugur Lúthersson, Hilmar Lúthersson, Steinþór Lúthersson og Helga Hlaðgerð- ur Lúthersdóttir. Útför Lúthers fór fram frá Akureyrar- kirkju 29. desember. þær aldrei sýndar og mér þótti því fullkom- lega eðlilegt að svo skæðar flugur væru á stærð við fljúgandi lambaspörð. Frá mér af skelfingu henti ég frá mér veiði- stönginni, forláta grip sem pabbi minn hafði gefið mér, og hljóp sem fætur toguðu heim á leið. Peysan mín sat föst á gaddavír og varð þar eftir því nokkrar af „moskító“-flugunum sátu á henni sem fastast. Móð og másandi, með angistarsvip og hálf mállaus af skelfingu, hentist ég inn í eldhús þar sem pabbi sat í rólegheit- um með kaffi og camel eins og svo oft. Hann varð að vonum hvumsa en hlustaði með mestu ró á sundurlausa frásögn mína af „ljótum, svörtum flugum“. Einhverra hluta vegna ákvað ég að sleppa moskítókenning- unni. Hann sagði mér að setjast og fá mér kaffi honum til samlætis og svo skyldum við skoða fluguófétin nánar. Þegar kaffið var búið röltum við saman niður að læk. Hálf hissa á svipinn losaði hann peysuna mína af girðingunni á meðan ég muldraði eitthvað um að það hefðu verið flug- ur á henni. Þá fiskaði hann stöngina mína upp úr skurðinum, virti fyrir sér nokkrar af flugunum illræmdu og sagði að þessar flugur hefði hann kallað hrossaflugur þegar hann var krakki. Svo þær hétu eitthvað! Og það var ekki „moskítóflugur“. Ég var sem sagt ekki að deyja úr mal- aríu – og pabbi minn var á leið með mér að dorga í skurðunum, laxveiði- maðurinn sjálfur. Allt í einu var dag- urinn bjartur og fagur, sérstakur dagur þar sem við pabbi sátum sam- an og reyndum að ná „þeim stóra“ á skurðbakka í Fnjóskadal. Elsku pabbi minn, þakka þér fyrir þessa ógleymanlegu stund og allar hinar. Farðu heill. Þín Helga Hallgerður. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.