Morgunblaðið - 14.01.2001, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
! "
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
GREINT hefur verið frá áætlun
Vegagerðar ríkisins um nýjan eða
endurbættan fjallveg milli Norður-
árdals í Mýrasýslu og Miðdala í
Dalasýslu. Jafnframt kom sú tillaga
fram að nefna leiðina ekki lengur
Bröttubrekku heldur Dalafjall, enda
væri það eldra og réttara. Vísað var
til umsagnar minnar í Árbók Ferða-
félags Íslands 1997 sem heimildar,
en þar kemst ég svo að orði: „Suður í
Borgarfirði hefur leiðin norður um
Bröttubrekku einnig verið nefnd
Dalafjall.“ Ég átti ekki von á að þessi
lítt yfirvegaða setning ætti eftir að
draga slíkan dilk á eftir sér og taldi
mér því skylt að kanna málið nánar
og gera grein fyrir því.
Ég ólst upp í Suður-Dölum og
heyrði Dalafjall aldrei nefnt, en oft
var talað um að fara suður fyrir fjall
eða suður yfir Brekku. Heimild mín
að örnefninu Dalafjall var úr öðru
bindi safnritsins Áfangar sem Land-
samband hestamannafélaga gefur út
og einkum fjallar um reiðleiðir. Þátt-
inn um þessa reiðleið og fyrrnefnd
ummæli skrifaði Snæbjörg Rósa
Bjartmarsdóttir í Fremri-Hundadal,
en hún er aðflutt norðan úr Eyja-
firði. Aðspurð kveðst hún hafa spurt
sér eldri og kunnugri menn beggja
vegna fjallgarðsins. Við nánari eft-
irgrennslan kemur í ljós að heimild-
armaður hennar var Hjörtur Einars-
son frá Neðri-Hundadal, nú á Gröf í
Miðdölum. Hjörtur er rúmlega átt-
ræður og afar sannorður maður.
Hann kveðst hafa heyrt nafnið Dala-
fjall frá Norðdælingum sunnan fjalls
en ekki muna hjá hverjum, enda
munu þeir naumast lengur í tölu lif-
enda. Það var altént ekki almennt í
Miðdölum.
Fram hefur komið að Ómar, sonur
Ara Guðmundssonar verkstjóra í
Borgarnesi, sem lagði bílveginn yfir
fjallið, telur nafnið Dalafjall ekki
eiga sér neina stoð í Borgarfirði.
Fólkið í Dalsmynni, næsta bæ við
fjallveginn, kannast ekki við það,
ekki heldur bræðurnir Karl og
Klemens Jónssynir frá Klettstíu,
öðrum næsta bæ, ekki heldur Guð-
mundur Sverrisson frá Hvammi í
Norðurárdal, ekki heldur Halldór J.
Jónsson sem ólst upp á Laxfossi í
Stafholtstungum. Víst má telja að
nafnið Dalafjall hafi verið til í munni
einhverra, en jafnljóst er að það hef-
ur ekki átt sér neina almenna hefð á
þessum slóðum.
Annað mál er hvort ástæða væri til
að skipta um nafn á fjallveginum.
Staðreynd er að núverandi bílveg-
ur er ekki nema 70 ára gamall og er
ekki hin sögulega Brattabrekka sem
var um þremur km norðar og bar
nafn með meiri rentu. Það er í sjálfu
sér engin frágangssök, en er samt
heldur önuglega villandi fyrir þá sem
kynnu að vilja feta eða horfa á slóðir
úr Sturlungu og biskupasögum þar
sem nokkrum sinnum er getið um
ferðir og herhlaup yfir Bröttu-
brekku. Sturla Sighvatsson á Sauða-
felli hafði til að mynda hestvörð á
hinni réttu brekkubrún sumarið
1238. Minna máli skiptir að nafnið er
einnig villandi að því leyti að það gef-
ur ókunnugum ranglega í skyn að
hér sé um einhvern brattasta fjall-
veg landsins að ræða sem er fjarri
lagi.
Vilji menn á annað borð breyta
nafni fjallvegarins kæmi miklu frem-
ur til álita að endurvekja hið forna
heiti Dalaheiði. Það þekkist úr Lax-
dæla sögu, en óljóst er með öllu
hvort það á þar við allan fjallahálf-
hringinn sunnan og austan við Dali
eða einhvern afmarkaðan hluta hans.
Því væri engin goðgá að festa þetta
forna nafn við fjölfarnasta veginn
vestur í Dali. Aðrar leiðir þangað
hafa sín ótvíræðu heiti: Heydalur og
Laxárdalsheiði á jöðrunum sunnan
og norðan en milli þeirra og aðalveg-
arins hinar lítt bílfæru leiðir Hauka-
dalsskarð og Sópandaskarð. Alþekkt
er að orðhlutinn -heiði sé notaður um
alfaraveg þótt hann liggi ekki nema
um smáskika af sjálfu fjallendinu og
þarf ekki að leita lengra en til Mos-
fellsheiðar og Hellisheiðar.
ÁRNI BJÖRNSSON,
doktor í íslenskri menningarsögu.
Brattabrekka, Dala-
fjall, Dalaheiði
Frá Árni Björnssyni: