Morgunblaðið - 14.01.2001, Blaðsíða 31
ekki. Nú er allt í lausu lofti. Menn
halda að sér höndum og bankarnir
lána ekki lengur út á kvóta. Það er
dýrt að skulda í verðbólgu. Um leið
og fiskiskipaútgerðin dregst saman,
hægir á öllu öðru jafnt og þétt. Það
væri mikil lyftistöng fyrir þjóðfélag-
ið allt ef hægt væri að gera við varð-
skipin hér heima þrátt fyrir að ís-
lenskt fyrirtæki hafi ekki átt lægsta
tilboðið í viðgerðirnar. Ekki er hægt
að horfa á tölurnar strípaðar. Það er
svo margt annað sem kemur til sem
hefur margfeldisáhrif inn í þjóð-
arbúskapinn.“
Sameining við aðra
Framtak rekur nú stærsta dísil-
stilliverkstæði landsins eftir að hafa
keypt tvö önnur og sameinað sínu.
Dísilverkstæðið Bogi var keypt frá
Reykjavík árið 1994 og Blossi úr
Reykjavík fyrir um hálfu öðru ári.
„Þarna er samankomin mikil þekk-
ing og reynsla til viðgerða á spíss-
um, olíuverkum og túrbínum af öll-
um stærðum og gerðum,“ segir
Magnús.
Að auki á Framtak 70% hlut í
Vélaverkstæði Dalvíkur sem keypt-
ur var fyrir tæpum þremur árum af
Kaupfélagi Eyfirðinga. Þar nyrðra
er rekin verslun og á verkstæði er
boðið upp á viðgerðir á bílum og
vinnuvélum auk þess sem þjónusta
við skip og báta vegur nokkuð
þungt.
UNIservice efnavara, þýskir
kranar og spænskar dælur
Svo vikið sé að innflutningi fyr-
irtækisins sem fellur undir sölu- og
markaðsdeild þess, er það í stakk
búið til að útvega flest þau tæki og
tól sem þurfa að vera um borð í skip-
um. Auk varahluta og annars vél-
búnaðar fyrir skip, er lögð áhersla á
sölu á rekstrar- og efnavörum fyrir
skip og til iðnaðar frá UNIservice og
á sölu þilfars- og bílkrana frá MKG í
Þýskalandi, en nú þegar eru nálægt
90 MKG kranar á íslenskum skipum,
þar af sjö kranar á skipum Land-
helgisgæslunnar. Þá hefur Framtak
hafið sölu á sérhönnuðum bryggju-
krönum, sem eru að hluta til smíð-
aðir og settir saman hjá fyrirtækinu,
og hafa nú þegar selst tíu kranar af
þessari gerð.
Síðast en ekki síst tók Framtak
nýlega við sölu og þjónustu fyrir IT-
UR dælur frá fyrirtækinu BOMBAS
ITUR á Spáni. ITUR dælur hafa nú
þegar verið seldar í þrjár nýsmíðar
Íslendinga í Kína auk þess sem Eim-
skip og Norðurál hafa pantað slíkar
dælur. BOMBAS ITUR er 80 ára
gamalt fyrirtæki með 240 starfs-
menn. Fyrirtækið hlaut ISO-9001
viðurkenningu árið 1994. ITUR
framleiðir fjölbreytt úrval af dælum,
bæði til notkunar á sjó og í iðnaði og
stefnir Framtak á að eiga helstu
gerðir af dælum á lager ásamt vara-
hlutum.
Svikin áramótaheit
– Að lokum, eru einhverjar hug-
myndir uppi um frekari vöxt Fram-
taks?
„Við eigendurnir ákveðum um
hver áramót að láta nú staðar numið,
en höfum alltaf svikið öll slík ára-
mótaheit. Ég ætla því engu að lofa
þar um á þessu stigi málsins,“ segir
Magnús Aadnegard að lokum.
Galdurinn er einfaldlega sá að veita góða þjón-
ustu og að vera með fullkomnustu tæki og
verkfæri sem völ er á á hverjum tíma. Þetta
höfum við kappkostað í gegnum árin.
VIÐSKIPTI Á SUNNUDEGI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 31
Guðjón Karl Reynisson framkvæmdastjóri sölusviðs Tals hf.