Morgunblaðið - 14.01.2001, Qupperneq 58
„VIÐ LÁTUM gamminn geysa,
leikum af fingrum fram,
sleppum af okkur beislinu,
slettum úr klaufunum og
ég veit ekki hvað og
hvað.“
Það var þannig sem
Karl Ágúst Úlfsson
lýsti því sem hann og
félagi hans Örn Árna-
son ætla að fram-
kvæma í Þjóðleik-
húskjallaranum annað
kvöld.
„Þetta er
tveggja manna
sýning með gríni,
söng og glensi. Æfð og ekki æfð. Við
gerum mikið af því að spinna svona
inn á milli. Við höfum ákveðin atriði
á okkar efnisskrá en síðan förum við
geyst um víðan völl og reynum að
koma sjálfum okkur á óvart ekki síð-
ur en áhorfendum.“
Skemmtunin er á vegum Lista-
klúbbs Þjóðleikhúskjallarans en
hann hefur staðið fyrir menningar-
legum skemmtunum á mánudags-
kvöldum í kjallaranum um skeið. En
hvað ætla þeir félagar að taka fyrir
þetta kvöldið?
„Það eru hagyrðingar, trúbadúrar
og þeir hlutir sem fyrir okkur verða.
Okkur er ekkert heilagt eins og hef-
ur kannski sýnt sig í gegnum tíðina.
Við komum víða við og eiginlega
ennþá víðar en ég get fullyrt um.“
Mega gestir eiga von á því að
gamlir góðkunningjar úr Spaugstof-
unni láti sjá sig?
„Nei, það held ég ekki. Ekki nema
við sjálfir. Við erum ekki að leika
neinar sérstakar persónur. Heldur
erum við bara á sviðinu eins og við
komum úr skepnunni. Svona af-
tengdir eða „unplugged“ eins og það
heitir á útlensku. Við ákváðum í
þetta sinn að hafa umbúnað sem
allra minnstan og sem minnst um-
stang í kringum okkur. Reynum
bara að skemmta okkur þeim mun
betur.“
En hvað er þessi sýning löng?
„Hún getur staðið allt frá 40 mín-
útum upp í þrjá tíma. Það fer allt
eftir því hvað við erum í miklu stuði.
Það er nú stundum þannig þegar við
hittumst á sviðinu, ég og Örn, þá
eigum við svo erfitt með að hætta.
Við látum eiginlega dagsformið,
stuðið og áhorfendur sjálfa ráða því.
Okkur finnst óskaplega skemmtilegt
að koma fólki í gott skap ef okkur
tekst það. Það er okkar líf og yndi.“
Eins og áður sagði er skemmt-
unin annað kvöld og hefst hún kl.
20:30.
Gleðistund í Þjóðleikhúskjallaranum
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Námskeið
á vorönn
BRIDSSKÓLINN
Byrjendanámskeið: Það geta allir lært að spila brids, en
það tekur svolítinn tíma að ná tökum á grundvallarreglum
Standard-sagnkerfisins. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er
ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að hafa
með sér spilafélaga. Það er fólk á öllum aldri og af báðum
kynjum sem sækir skólann. Láttu slag standa! Tíu
þriðjudagskvöld frá kl. 20-23.
Framhaldsnámskeið: Standard-sagnkerfið verður skoðað
í smáatriðum, en auk þess verður mikil áhersla lögð á
varnarsamstarfið og spilamennsku sagnhafa. Ný bók, Nútíma
brids, eftir Guðmund Pál Arnarson, verður lögð til grundvallar.
Kjörið fyrir þá sem vilja tileinka sér nútímalegar aðferðir og taka
stórstígum framförum. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér
spilafélaga. Tíu fimmtudagskvöld frá kl. 20-23.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247
milli kl. 13 og 18 virka daga.
Bæði námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands
Íslands, Þönglabakka 1 í Mjódd, þriðju hæð.
Byrjendur: Hefst þriðjudaginn 23. janúar
Framhald: Hefst fimmtudaginn 25. janúar
Rómeó er feigur
(Romeo Must Die)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri: Andrzej Bartkowiak.
Handrit: Jim Van Wyck. Aðal-
hlutverk: Jet Li, Aaliyah og Isaiah
Washington (111 mín.). Bandaríkin,
2000. Sam myndbönd. Bönnuð inn-
an 16 ára.
RÓMEÓ er feigur lítur í fyrstu út
fyrir að vera áhugaverð spennu-
mynd sem tvinnar saman Shake-
speare, austrænum
bardagalistum og
nútíma borgarum-
hverfi. En þegar
kíkt er á innihaldið
kemur í ljós
ómerkileg bar-
dagamynd með lé-
legri persónusköp-
un og klaufalegri
fléttu. Hong Kong-
bardagastjarnan Jet Li mætir hér til
leiks og sinnir sínu hlutverki ágæt-
lega en annars er þetta of léleg mynd
í eðli sínu til að leikurinn geti
skemmt mikið fyrir. Óspennandi
bardagaatriði eru áhersluatriði
myndarinnar, sem vísar á hjákátleg-
an hátt til Rómeó og Júlíu í titli og
efniviði. Hins vegar er fátt við þessa
frásögn sem á skylt við leikritið
fræga, nema hvað að mjög andlausar
ástir takast með börnum foringja í
stríðandi glæpaklíkum. Hallærisleg
mynd sem stenst engan veginn þær
væntingar sem einhverjir kynnu að
gera til hennar.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Shakespeare
víðsfjarri
Reyna að koma
sjálfum sér á óvart
Karl Ágúst og Örn
Árna í góðu stuði.