Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 1
16. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 20. JANÚAR 2001
BILL Clinton Bandaríkjaforseti hef-
ur samið við sérskipaðan saksóknara
í málum forsetans, Robert Ray, um
að fallið verði frá ákæru um mein-
særi í tengslum við vitnisburð hans í
svonefndu Paula Jones-máli árið
1998 og vegna Whitewater-málsins.
Í staðinn fyrir sakaruppgjöfina við-
urkennir Clinton að hafa gefið vill-
andi upplýsingar eiðsvarinn fyrir
rétti um samskipti sín við Monicu
Lewinsky, greiðir 25.000 dollara, um
2,1 milljón króna, í sekt og missir
lögmannsréttindi sín í fimm ár.
Clinton lætur af embætti í dag.
„Ég reyndi að feta þröngan stíg
milli þess að virða lögin og bera fals-
vitni en viðurkenni nú að það tókst
mér ekki fyllilega og að sum af svör-
um mínum við spurningunum um
ungfrú Lewinsky voru ósönn,“ sagði
forsetinn í yfirlýsingu sem blaða-
fulltrúi Hvíta hússins, Jack Siewert,
las upp í gær.
Siewert sagði að í yfirlýsingunni
væri ekki átt við að vitnisburður for-
setans í máli sem Paula Jones, er
sakaði hann um áreitni, höfðaði gegn
honum 1998 hefði verið villandi eða
ósannur. Við vitnaleiðslurnar í mál-
inu var Clinton spurður um Lew-
insky og vísaði þá á bug sambandi
við hana og eru það þau ósannindi
sem hann viðurkennir. Forsetinn
greiddi í fyrra Jones háa fjárhæð
gegn því að hún félli frá ákærunni.
Clinton hefur ekki fyrr viðurkennt
að hafa skrökvað fyrir rétti um Lew-
insky. Robert Ray sagði að starfi
embættis sérskipaðs rannsóknar-
dómara í málum Clintons væri nú
lokið.
„Megi sagan og bandaríska þjóðin
komast að þeirri niðurstöðu að því
hafi lokið á réttlátan hátt,“ sagði sak-
sóknarinn.
Fallið frá frekari ákærum á hendur Clinton
Viðurkennir ósann-
indi fyrir rétti
Washington. AP.
Segja hvalkjöt
fullt af eiturefnum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NORSKA stjórnin vísar á bug full-
yrðingum japanskra neytendasam-
taka sem segja hvalkjöt og -spik
fullt af eiturefnum og hvetja Norð-
menn til þess að hefja ekki út-
flutning á því.
Fern samtök japanskra neyt-
enda sendu áskorun þessa efnis til
norskra stjórnvalda. „Það er vís-
indalega sannað að í hvalkjöt og
einkum hvalspik safnast hættulega
mikið magn eiturefna, svo sem
díoxín og PCB,“ segir talsmaður
samtakanna, Yoko Tomiyama.
Kveður hún þau munu beita jap-
önsk stjórnvöld þrýstingi ef þau
leyfi innflutning á hvalaafurðum.
Fullyrðingu mótmælt
Lars Wallø, ráðgjafi norsku
stjórnarinnar í málefnum er varða
sjávarspendýr, segir neytenda-
samtökin undir áhrifum samtaka
sem andvíg séu hvalveiðum, þar
sem hrefnukjöt og -spik innihaldi
afar lítið af eiturefnum en þau
safnist hins vegar í kjöt af grind-
hval.
Japönsk stjórnvöld hafa ekki
tekið ákvörðun um hvort þau leyfi
innflutning á hvalkjöti, það hefur
ekki verið gert frá árinu 1991 er
keypt var íslenskt hvalkjöt, að því
er segir í frétt NTB-frétta-
stofunnar.
Japönsk neytendasamtök
vilja ekki norskan hval
UM hálf milljón manna hafði í gær-
kvöldi safnast saman í miðborg
Manila, höfuðstað Filippseyja, og bjó
sig undir að halda að forsetahöllinni
til að krefjast tafarlausrar afsagnar
Josephs Estrada forseta. Herinn, lög-
reglan og flestir ráðherra hans hafa
lýst stuðningi við kröfurnar. Skotið
var upp flugeldum, leikin popptónlist
og dansað, einnig höfðu margir komið
saman við bál sem kveikt hafði verið í
grennd við minnismerki um þjóðar-
uppreisnina sem velti einræðisherr-
anum Ferdinand Marcos úr sessi
1986.
Andstæðingar Estrada gáfu hon-
um frest til klukkan tíu í gærkvöldi að
íslenskum tíma til að láta af völdum
en er síðast fréttist þrjóskaðist hann
enn við. Ætlun þátttakenda í mót-
mælunum var að knýja á um afsögn
með mótmælastöðu við forsetahöll-
ina, Malacalang. Hún er í um tíu kíló-
metra fjarlægð frá miðborginni.
Jaime Sin kardínáli, sem hefur verið
helsti hvatamaður andófsins gegn
Estrada, hvatti fólk til að hætta við að
fara til hallarinnar; um 200 vopnaðir
verðir gættu staðarins og þar voru
brynvarðir bílar tiltækir. Sin sagði að
ef Estrada neitaði að segja af sér
myndi Gloria Macapagal Arroyo
varaforseti samt sem áður sverja for-
setaeið í dag.
Forsetinn er sakaður um víðtæka
spillingu en öldungadeild þingsins
frestaði málarekstri gegn honum fyrr
í vikunni eftir að stuðningsmenn hans
neituðu að afhenda skýrslur um fé á
bankareikningum sem talið er að
hann hafi klófest með misnotkun á að-
stöðu sinni.
Fulltrúar andstæðinga forsetans á
þingi fóru á fund hans í gær og
reyndu að fá hann til að víkja með
friðsamlegum hætti og hétu honum
og fjölskyldu hans fullri vernd hersins
meðan hann væri enn í landinu. Rætt
hefur verið um að Estrada hygðist yf-
irgefa Filippseyjar og ef til vill setjast
að í Ástralíu en hann er sagður
heimta sakaruppgjöf og að fá að taka
með sér eitthvað af fjármunum sín-
um. Hann mun hafa verið lítt fær um
að ræða við fulltrúana vegna ölvunar
og var sagður „óskýr“ í máli.
Ritari hans tjáði fulltrúunum að
Estrada vildi fá fimm daga frest til að
hugsa sig um og útskýra stöðu mála
fyrir fjölskyldu sinni og vinum en full-
trúarnir vísuðu þeirri kröfu á bug og
fóru við svo búið. Andstæðingar
Estrada óttast að hann muni reyni að
nota allan frest sem hann fær til að
reyna að virkja stuðning sem hann
enn nýtur meðal fátækasta hluta
þjóðarinnar. Annar talsmaður forset-
ans sagði að Estrada hefði „engan
áhuga á að ræða um valdaafsal af
nokkru tagi“.
Estrada, sem er 63 ára og var áður
vinsæll kvikmyndaleikari, vann yfir-
burðasigur í forsetakjöri fyrir rúmum
tveim árum en síðan hefur fylgið
hrunið af honum. Arroyo varaforseti
er 53 ára gamall hagfræðingur, dóttir
eins af fyrrverandi forsetum Filipps-
eyja. Kosið er sérstaklega til embætt-
is varaforseta í landinu og Arroyo var
því ekki í framboði með Estrada.
Hundruð þúsunda manna
á mótmælafundi í Manila
Estrada
forseta settir
úrslitakostir
Manila. AP, AFP.
Reuters
Orlando Mercado, varnarmálaráðherra Filippseyja, og forseti herráðsins, Angelo Reyes, syngja þjóðsönginn á
útifundi andstæðinga Estrada forseta í Manila í gær. Með þeim eru einnig Fidel Ramos, fyrrverandi forseti
(lengst t. v.), og Gloria Macapagal Arroyo varaforseti (önnur f. v.).
UMFERÐARÖNGÞVEITI skap-
aðist og allar lestarferðir á Sjálandi
fóru úr skorðum í gær er eldur kom
upp í geymsluskýli á aðaljárnbraut-
arstöðinni í Kaupmannahöfn. Betur
fór þó en á horfðist í fyrstu og í
gærkvöldi var umferð aftur leyfð
um stöðina og í nágrenni hennar.
Sprengingar urðu í gashylkjum í
skýlinu er eldurinn breiddist út og
var stöðin rýmd auk þess sem bíla-
umferð var ekki leyfð á götunum í
nágrenni hennar. Óttast var að eitr-
aðar gufur hefðu myndast en sú var
ekki raunin. Ekki var vitað í gær-
kvöldi hver orsök eldsvoðans var.
Scanpix Nordfoto
Eldur í járnbrautarstöð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Ljósgeisli
stöðvaður
París. AFP.
VÍSINDAMÖNNUM við Row-
land-vísindastofnunina og Harv-
ard-Smithsonian-rannsókna-
stöðina í Massachusetts hefur
tekist að stöðva ljósið í leysi-
geisla, safna því saman í kældu
gasi og láta ljósið síðan halda
áfram ferð sinni í sömu átt. Er
afrekinu líkt við töfrabrögð og
sagt að niðurstaðan geti markað
þáttaskil í þróun traustra fjar-
skipta og tölvusmíði.
Hraði ljóssins er nær 300 þús-
und kílómetrar á sekúndu og er
hann talinn mesti hraði sem efni
getur náð. Tveir hópar unnu að
tilrauninni, annar undir stjórn
Lene Hau frá Danmörku. Að
sögn eðlisfræðingsins Erics
Cornells má líkja því sem gerð-
ist við að strengdur hefði verið
borði yfir járnbrautarspor og
hraðlest látin hverfa sjónum
manna um leið og hún snerti
borðann. Borðinn slitni ekki en
lestin komi aftur í ljós handan
við borðann og haldi áfram.
Bandaríkjunum hefur/24