Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 19
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frá-
bærar aðstæður á suðurströnd Spánar í rúmar 4 vikur á ótrúlegum
kjörum. Beint flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem þú nýtur
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um
spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Vorin eru falleg-
asti tími ársins á suður-Spáni og hvergi er betra að dvelja en í þess-
um yndislega heimshluta og á báðum áfangastöðum bjóðum við þér
okkar bestu íbúðarhótel með frábærri aðstöðu fyrir farþega.
Vorferðir
Heimsferða
til Costa del Sol
og Benidorm
22. og 23. apríl
frá 51.500
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð frá kr. 57.300
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
Timor Sol, 32 nætur, 22. apríl. Skattar
ekki innifaldir.
Verð kr. 72.500
M.v. 2 í studio, Timor Sol,
22. apríl, 32 nætur.
Völ um aukaviku. Skattar
kr. 2.530, ekki innifaldir.
Costa del Sol
Verð frá kr. 51.500
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
El Faro, 32 nætur, 23. apríl.
Verð kr. 67.400
M.v. 2 í íbúð, El Faro, 32 nætur,
23. apríl.
Skattar kr. 2.530 ekki innifaldir.
Benidorm
FÉLAG málmiðnaðarmanna hefur
keypt húsnæði við Draupnisgötu 4 á
Akureyri en þar hefur verið komið
upp aðstöðu með tækjum sem nýta á
til endurmenntunar fyrir félags-
menn.
Hákon Hákonarson formaður
félagsins sagði að um allnokkurt
skeið hefði verið rætt um þörfina á
að efla endurmenntun meðal félags-
manna svo svara mætti kröfum nú-
tímans fyrir aukna menntun starfs-
fólks á þessu sviði. Niðurstaðan hafi
orðið sú að festa kaup á umræddu
húsnæði og innrétta það á þann hátt
að það nýttist til námskeiðahalds
fyrir félagsmenn.
Fyrstu námskeiðin í húsnæðinu
hófust nú fyrr í vikunni en áður
höfðu menn tekið bóklega hluta
þess. Hákon kvaðst ánægður með
þátttökuna en á milli 40 og 50 manns
hefðu ýmist sótt þetta námskeið eða
boðað sig á þau námskeið sem í boði
verða á næstunni. Um 300 manns
eru í félaginu.
Í fremstu röð
„Hér verður miðstöð endur-
menntunar fyrir málmiðnaðarmenn
á Norðurlandi auk þess sem hús-
næðið stendur til boða þeim iðnað-
armönnum sem telja sig geta nýtt
þessa aðstöðu,“ sagði Hákon. Hann
sagði að aðstöðunni hefði verið kom-
ið upp í góðu samstarfi við atvinnu-
lífið á svæðinu og hefði félagið feng-
ið ýmsa styrki til að svo gæti verið,
m.a. frá Akureyrarbæ, iðnaðarráðu-
neyti, Íslandsbanka-FBA, starfs-
menntasjóði félagsmálaráðuneytis-
ins og fyrirtækjum á Akureyri en að
langmestu leyti hefði félagið þó
sjálft staðið straum af kostnaði við
að setja þessa miðstöð á laggirnar.
„Þessi miðstöð er framlag Félags
málmiðnaðarmanna til þess að okk-
ar félagsmenn geti sótt fram á við
og staðið í fremstu röð,“ sagði
Hákon.
Hröð þróun
Einar Þorgeirsson kennari hjá
Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins
hefur kennt á námskeiði því sem
staðið hefur yfir í húsakynnum
félagsins síðustu daga en hann sagði
að þróun í þessari starfsgrein væri
hröð, sífellt væru að koma til sög-
unnar nýir staðlar sem fara þyrfti
eftir og þá ætti greinin í mikilli al-
þjóðlegri samkeppni. „Endur-
menntun á þessu sviðið skiptir því
gríðarlega miklu máli,“ sagði hann.
„Hér er góð aðstaða og heimilislegt
andrúmsloft.“
Miðstöð endurmenntunar fyrir málmiðnaðarmenn
Endurmenntun mikilvæg í greininni
Morgunblaðið/Kristján
Einar Þorgeirsson, suðukennari hjá Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins, leiðbeinir Einari Eyfjörð Brynjarssyni
starfsmanni Véla- og stálsmiðjunnar varðandi svokallaða TIG-suðu.
JÓHANNA Friðfinnsdóttir hefur
sett á stofn handverksstofu í Borg-
arhlíð 7, kjallara, sem hún nefnir
Handverk Jóhönnu.
Jóhanna hefur fengist við mynd-
list, glerlist og leirlist síðastliðin 10
ár. Hún lauk námi frá Myndlistar-
skóla Arnar Inga á síðsta ári. Jó-
hanna segir að handverksstofa sín
sé fyrir allt venjulegt fólk sem hafi
áhuga fyrir að stunda listgreinar af
einhverju tagi, glerlist, myndlist
eða leirlist svo dæmi sé tekið.
Áhugasamir geta heimsótt Jóhönnu
og fengið þar aðstöðu til að sinna
listsköpun sinni, en á staðnum verð-
ur einnig boðið upp á allt efni. Tek-
ur Jóhanna sérstaklega fram að
fólk þurfi ekki endilega að hafa
stundað námskeið til að nýta sér
vinnuaðstöðuna.
Handverk Jóhönnu verður opið á
mánudögum, miðvikudögum,
fimmtudögum og föstudögum frá
kl. 13–23 á kvöldin. Á þriðjudögum
er opið frá kl. 13–19 og á laugar-
dögum frá kl. 10–17.
Handverk
fyrir þá sem
vilja stunda
listsköpun
Morgunblaðið/Kristján
Jóhanna Friðfinnsdóttir í vinnustofu sinni í Borgarhlíð á Akureyri.