Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 21 RÍKISSAKSÓKNARAR í Þýska- landi hafa staðfest að Trans-World samsteypan sé þungamiðjan í rann- sókn á peningaþvætti, sem kunni að snúast um milljarða Bandaríkjadala og ná aftur til ársins 1997, að því er fram kemur í frétt í The Wall Street Journal. Trans-World, sem er að draga úr starfsemi sinni, er með höfuðstöðvar í London og stundar viðskipti með málma. Fyrirtækið var stór þátttak- andi í útflutningi á áli frá Rússlandi á níunda áratugnum og var töluvert fjallað um fyrirtækið í fjölmiðlum vegna meintra tengsla þess við skipulagða glæpastarfsemi. Ofbeldi, deilur um eignarráð og ásakanir um glæpsamlegt athæfi hafa fylgt ál- framleiðslu frá falli Sovétríkjanna, að því er fram kemur í fyrrnefndri frétt. Fjármunirnir sem um ræðir runnu í gegnum nokkra af stærstu bönkum Þýskalands. Þeir munu þó ekki sjálfir vera í rannsókn, en yf- irvöld hafa sent þeim bréf þar sem þeir eru varaðir við að fólk og fyr- irtæki sem standi nærri Trans- World kunni að nota þá til að þvo peninga. Einn bankanna segist gera yfirvöldum viðvart nokkrum sinnum á dag um grunsamlega fjármagns- flutninga. Trans-World heldur fram sakleysi sínu Trans-World hefur alla tíð haldið því fram að það hafi einungis stund- að lögleg viðskipti með málma frá Rússlandi og í frétt The Wall Street Journal er haft eftir manni sem þekkir til starfsemi samsteypunnar að hún hafi ekki verið með neina bankareikninga í Þýskalandi, alls ekki tekið þátt í peningaþvætti og að alþjóðlega kunnir endurskoðendur fari yfir reikninga hennar. Í fréttinni segir að fram til þessa hafi saksóknarar ekki komist yfir sannanir um að það fé, sem geymt hefur verið á þýskum bankareikn- ingum en líklega ekki undir nafni Trans-World, sé illa fengið. Yfirvöld í Þýskalandi rannsaka peningaþvætti Morgunblaðið/Arnaldur Trans-World-samsteypan er þungamiðjan í rannsókn á peningaþvætti. Fyr- irtækið flutti út ál frá Rússlandi. CHIQUITA Brands International Inc. hefur tilkynnt að fyr- irtækið muni ekki geta staðið í skilum með afborganir af öllum lánum sínum, samkvæmt frétt í Evrópuútgáfu Wall Street Journal. Þar segir að fyrirtækið muni óska eftir skuldbreytingum á skuldabréfum að fjárhæð 862 milljónir Banda- ríkjadala, sem jafn- gildir um 73 milljörðum íslenskra króna. Í frétt WSJ kemur fram að þrátt fyrir greiðsluerfiðleika muni Chiq- uita fyrirtækið halda áfram baráttu fyrir breytingum á reglum Evrópu- sambandsins varðandi innflutning á banönum til Evrópu, sem staðið hef- ur í átta ár. Þetta skipti miklu máli fyrir fyrirtækið þar sem Evrópu- markaðurinn hafi mikið að segja um tekjustreymi fyrirtækisins. Innflutningur eins og fyrir 1993 Skuldir Chiquita fyrirtækisins jukust mikið á síðari hluta níunda áratugarins er fyrirtækið fjárfesti mikið í skipum og bananaekrum í Suður-Ameríku. WSJ segir að stjórnendur fyrirtækisins kenni reglum ESB um versnandi afkomu þess. ESB hafi breytt reglum um bananainnflutning, sem hafi komið illa niður á fyrirtækinu. Bandarísk stjórnvöld hafi sagt að reglur ESB um bananainnflutning til Evrópu séu ósanngjarnar gagnvart bandarískum bananafyrirtækjum en hliðhollar evrópskum fyrirtækjum. Ríkisstjórn Clintons og Chiquita fyrirtækið hafi þrýst á ESB að heimila bananafyr- irtækjum að flytja banana til Evrópu á grundvelli fyrri innflutnings. Lögð sé áhersla á að miða við viðskipti með banana eins og þau voru fyrir 1993, en Chiquita hafi þá verið með lang- stærstu markaðshlutdeildina á ban- anamarkaði í Evrópu. Dole ekki sammála Chiquita Í WSJ segir að stjórnendur hins bandaríska Dole Food fyrirtækis hafi beint því til bandarískra stjórn- valda að þau ljái ekki máls á því að snúið verði aftur til þess ástands í bananainnflutningi til Evrópu er var fyrir 1993, því markaðshlutdeild Dole Food í Evrópu hafi farið vax- andi. WSJ segir að Dole fyrirtækið vilji að bandarísk stjórnvöld samþykki tillögur ESB, sem ætlunin er að taki gildi í júlí næstkomandi. Þær gangi út á að fyrirtæki sem vilji flytja ban- ana inn til Evrópu keppi um innflutn- ingsréttindi. Það fyrirtæki sem lofi skemmstum afgreiðslutíma fái rétt- inn til innflutnings. WSJ segir óljóst hvaða afstöðu væntanleg ríkisstjórn Bandaríkjanna taki í þessu máli. Gengi hlutabréfa í Chiquita féll um 50% í vikunni, úr 3,0 Bandaríkjadöl- um á hlut í 1,50 dali. Chiquita í greiðslu- erfiðleikum Borgartúni 28 · Sími 561 6699 · tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is Tölvuskóli Reykjavíkur er prófamiðstöð fyrir TÖK próf og fá nemendur skólans afslátt af prófagjaldi. Ath! Skrá ning sten dur yfir Fyrirtækjaþjónusta Jóhanna þjónustufulltrúi sér um að koma til móts við óskir ykkar. Netfang: johanna@tolvuskoli.is Skrifstofutækni og bókhald Vegna forfalla eru laus sæti í Skrifstofutækni sem hefst mánudaginn 22. janúar BÓKHALDSNÁM Kennt frá 1300-1600 eða 1700-2000 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Alls 144 kennslustundir. Handfært yfir í tölvubókhald. Kennt er á Stólpa fyrir Windows. - Byrjar 29. janúar. • Bókfærsla - 20 stundir • Verslunarreikningur - 16 stundir • Almenn bókhaldsverkefni, víxlar og skuldabréf - 20 stundir • Launabókhald - 12 stundir • Lög og reglugerðir - 4 stundir • Virðisaukaskattur - 8 stundir • Verkefni, fylgiskjöl og afstemmingar - 12 stundir • Tölvubókhald - 36 stundir • Bókhald sem stjórntæki - 8 stundir SKRIFSTOFUTÆKNI Kennt frá 810-1210 Námið er ein önn - Alls 365 kennslustundir. Tölvu- og bókhaldsnám. Kennt er á Stólpa fyrir Windows. - Byrjar 22. janúar. • Almenn tölvufræði og Windows - 20 stundir • Word - 35 stundir • Excel - 35 stundir • Internetið - 10 stundir • PowerPoint - 10 stundir • Samantekt - 10 stundir • Vélritun - 10 stundir • Verslunarbréf - 20 stundir • Viðskiptaenska - 20 stundir • Tollskýrslugerð - 20 stundir • Atvinnuumsóknir - 5 stundir • Tjáning, hópvinna, framsögn - 5 stundir • Bókfærsla - 20 stundir • Verslunarreikningur - 20 stundir • Almenn bókhaldsverkefni, víxlar og skuldabréf - 20 stundir • Launabókhald - 15 stundir • Lög og reglugerðir - 5 stundir • Virðisaukaskattur - 10 stundir • Verkefni, fylgiskjöl og afstemmingar - 15 stundir • Tölvubókhald - 40 stundir • Bókhald sem stjórntæki - 20 stundir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.