Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 39
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 39 BBC/Life in numbers Fjórða víddin heillar suma stærðfræðinga. Ef hægt er að birta hana á myndum er hún þá til? Íslands. Ólöf Björg Steinþórsdóttir, sem er í doktorsnámi á sviði stærð- fræðimenntunar í Bandaríkjunum, fjallaði um hlutfallaskilning barna og hvort kynjamun væri að finna í lausnaleiðum þeirra þegar glímt er við hlutfallaþrautir. Anna Kristjánsdóttir kynnti og stjórnaði umræðum um möguleika á að halda norrænt námskeið sams konar námskeiðinu Heilabrot og hug- kvæmni, en það var alfarið kennt og kennurum veittur stuðningur við breytingar í kennslu á Netinu. Guð- rún Angantýsdóttir var með verk- stæði þar sem fjallað var um þema- vinnu í stærðfræði hjá byrjendum og voru þemun annars vegar Ísland áður fyrr og hið síðara sólkerfið. Rannveig Hjaltadóttir og Skúli Pétursson voru með verkstæði um stærðfræði í dag- legu lífi og sögðu frá fjölbreyttri vinnu unglinga á Dalvík þar sem áhersla var lögð á sjálfstæð vinnu- brögð og samstarf hópa. Hugo Ras- mus og Tómas Rasmus kynntu og sýndu stærðfræðivef sinn og sögðu frá nýtingu hans og möguleikum. Þeir nefndu efnið Stærðfræði á for- sendum nemenda. Kristjana Skúla- dóttir og Ólöf Björg Steinþórsdóttir voru með verkstæði um skilning barna á miðstigi á ræðum tölum og hlutföllum. Þær sögðu frá rannsókn- arverkefni Ólafar Bjargar en gögn- um var safnað í vinnu með nemend- um þeirra Kristjönu Skúladóttur og Maríu Sophusdóttur í Melaskóla. Útistærðfræði og fleiri dæmi Alls lögðu 43 þátttakendur ráð- stefnunnar fram efni og enn fleiri tóku þátt í sýningum sem teygðu sig um ganga og stofur skólans í Borg- arnesi. Margir eru einmitt þeirrar skoðunar að hæfilega stórar ráð- stefnur þar sem margir leggja fram og vanda til þeirrar vinnu skili betri árangri til lengri tíma litið en fjöl- mennar ráðstefnur þar sem allur þorri er aðeins hlustendur. Þetta sannaðist hér sem fyrr og tengsl sköpuðust víða. Meðal þess sem gestirnir fjölluðu um var einmitt „útistærðfræði“ en það er orðin nokkuð föst venja víða í Noregi að stærðfræðitíminn er einu sinni í viku utanhúss. Ekki bara syðst í Kristiansand, heldur líka norður í Bodø! Og annar Norðmaður talaði um sjávarföll og hvernig mætti nota þau sem viðfangsefni í stærðfræði fyrir mismunandi aldurshópa. Einn Finnanna sagði frá rannsókn í skól- um þar sem spurt var spurningarinn- ar: Eru stærðfræðibækurnar hjálp- artæki eða námskrá? Vandinn er kunnur víðar en á Íslandi þegar bók- um er ætlað hlutverk sem dauðir hlutir geta að sjálfsögðu ekki staðið undir. Munnleg próf í stærðfræði Einn Dananna sagði frá þróun á nýju prófakerfi þar sem stærðfræði- prófin fólu í sér miku meira en skrif- leg próf. Frá þessu mun ég greina nánar síðar. Samlandi hans talaði um mikilvægi þess að gera tilraunir og rannsaka í stærðfræði og tengdi það einum þætti TIMSS rannsóknarinn- ar, verklega prófinu. Því miður var sá þáttur ekki með í íslenska hluta rann- sóknarinnar. Og þriðji Daninn fjallaði um nýja gerð munnlegra prófa í stærðfræði. Hópar nemenda taka slíkt próf saman. Af slíku höfum við orðið dálitla reynslu hér á landi. Og sænskir þátttakendur voru með verk- stæði sem nefndist Spreytum okkur. Þar var fjallað um gildi þess að börn fengju að reyna á hugsun sína, prófa, ræða um, bregðast við, hugsa dýpra. Og jafnframt var rætt um leiðir til þess að efla hugsun og ályktunar- hæfni barna. Fjölmörg verkstæði gáfu kost á skemmtilegri vinnu með þökun, pinnabretti, pappírsbrot, talnaleiki og skemmtileg tölfræðiverkefni. Og fjársjóðaleitin sem farin var um um- hverfið vakti ánægju. Enn eitt dæmið um hve mikið er að sækja út fyrir skólastofurnar. Frásögnin af verk- fræðingnum sem valdi að verða kenn- ari verður að bíða þar til síðar. A G ra fí sk a vi n n u st o fa n - 89 6 37 02 www.alfa.is Biblíuskólinn vi› Holtaveg, S: 588-8899 Digraneskirkja, S: 554 1620 Fríkirkjan Vegurinn, S: 564-2355 Hafnarfjar›arkirkja, S: 869 6215 Hvítasunnukirkjan Fíladelfía, S: 552-1111 Íslenska Kristskirkjan, S: 567-8800 Kletturinn k.s. S: 565-3987 Keflavíkurkirkja, S: 421-4337 KFUM og K Akranesi S: 431 1745 Leikmannaskóli fijó›kirkjunnar S: 562 1525 Alfa- námskei› hefjast í janúar á eftirtöldum stö›um: Kynntu flér alfa námskei› á heimasí›u okkar, á Tilboð Smellurammar 40x50 cm á 300 50x60 cm á 400 Afsláttur 15% Innrömmun Speglar Tilb. rammar Afsláttur30% Plaggöt innrömmuð Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 533 3331• Fax 533 1633 Opið virka daga frá kl. 8-18 laugardaga frá kl. 10-16. Tilboð Álrammar Gull/silfur 24x30 cm á 700 30x40 cm á 900 40x50 cm á 1100 59x66 cm á 1600 24x30 svart á 400 Tilboð Trérammar Margar stærðir kr. 200-400 ÚTSALA 18.-27. janúar FÓLK Í FRÉTTUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.