Morgunblaðið - 20.01.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÍslenska landsliðið
sat eftir í Kalkútta / B1
Gústaf Bjarnason
settur út í kuldann / B1
4 SÍÐUR20 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær tillögur Matvæla-
ráðs og stjórnskipaðrar sóttvarna-
nefndar um aðgerðir gegn hugsan-
legri hættu á kúariðusmiti með
innfluttum matvælum og efnum til
matvælavinnslu. Tillögurnar voru
kynntar fyrir landbúnaðarráðherra,
umhverfisráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra á fimmtudag og lagði sá
fyrstnefndi málið fyrir ríkisstjórn í
gær.
Guðni Ágústsson sagði við Morg-
unblaðið, að fundi loknum í gær, að
meginniðurstaða vísindamanna okk-
ar væri sú að ekki væri þörf á bráða-
viðbrögðum. Hann sagði tillögurnar
hafa átt mikinn hljómgrunn í ríkis-
stjórninni. Allir væru sammála um
að treysta þyrfti þær varnir sem
hægt væri. Ákveðið var að leggja
rúmar þrjár milljónir króna í þessar
aðgerðir.
Ríkisstjórnin samþykkti þá tillögu
Matvælaráðs og sóttvarnanefndar-
innar að óháður aðili yrði fenginn til
að gera úttekt, byggða á fyrirliggj-
andi gögnum, á hugsanlegri hættu
sem neytendum stafar af neyslu á
vörum sem innihalda innflutt nauta-
kjöt eða nautakjötsafurðir.
Í þessari úttekt þarf í fyrsta lagi
að koma fram skipting ábyrgðar og
verkefna einstakra eftirlitsaðila og í
öðru lagi til hvaða stjórnsýsluað-
gerða má grípa, gerist þess þörf. Til
að framkvæma úttektina voru
fengnir Vilhjálmur Rafnsson, pró-
fessor í heilbrigðisfræði, og Ólafur
Oddgeirsson dýralæknir. Hafa þeir
frest til 15. febrúar til að skila sinni
vinnu.
Einnig samþykkti ríkisstjórnin að
óháður aðili yrði fenginn til að gera
úttekt á lögum, reglum og alþjóð-
legum skuldbindingum Íslands
gagnvart Alþjóðaviðskiptastofnun-
inni, WTO, og Evrópska efnahags-
svæðinu, EES, er snúa að innflutn-
ingi matvæla. Til þeirra verka hafa
verið fengnir Eiríkur Tómasson
lagaprófessor og Skúli Magnússon
lektor og eiga þeir að hafa lokið út-
tektinni í síðasta lagi fyrir 1. mars
næstkomandi.
Varðandi það hvort alþjóðasamn-
ingar gæfu svigrúm til að herða eft-
irlit með innflutningi minnti Guðni á
að EES-samningurinn hefði gefið
innflutning iðnaðarvara frjálsan. Þar
væri ákveðið lágmark, um 20% af
heildarinnflutningi, sett um kjötvöru
sem flutt er inn án þess að beðið sé
um heilbrigðis- og upprunavottorð.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær gilda strangari reglur
um eftirlit með innflutningi gælu-
dýrafóðurs en matvæla. Þegar hann
var spurður hvort þetta væri eðlileg-
ur munur sagði Guðni að samræmi
þyrfti að vera þarna á milli. Strangar
reglur þyrftu að gilda í báðum til-
vikum og benti ráðherra á að þetta
væri eitt af þeim atriðum sem rík-
isstjórnin hefur samþykkt að kanna
betur.
Ríkisstjórnin fjallaði um aðgerðir vegna innflutnings á matvælum
Óháðir aðilar geri úttekt
á eftirliti og reglum
SJÓMANNASAMTÖKIN gerðu út-
vegsmönnum tilboð á fundi viðsemj-
enda hjá ríkissáttasemjara í gær og
hafa útvegsmenn frest til þriðjudags
til að svara en næsti fundur verður
líklega haldinn um miðja næstu viku.
Lög um kjarasamningana runnu út
15. febrúar í fyrra en þetta var 11.
fundur viðsemjenda hjá ríkissátta-
semjara eftir það.
Aðilar sammæltust um að láta ekk-
ert eftir sér hafa að loknum klukku-
tímalöngum fundi í gær en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
gerðu sjómannasamtökin, þ.e. Sjó-
mannasamband Íslands, Farmanna-
og fiskimannasamband Íslands og
Vélstjórafélag Íslands, útvegsmönn-
um tilboð til eins árs frá og með ný-
liðnum áramótum. Í tilboðinu felst að
samið verði um sambærilegar kjara-
bætur og samið hefur verið um á al-
menna vinnumarkaðnum en árið
verði notað til að reyna að ná sam-
komulagi um helstu ágreiningsmál.
Sjómannasamtökin hafa lagt á það
áherslu í kjaraviðræðum að fá sömu
launabreytingar og samið hefur verið
um á almennum vinnumarkaði, þ.e.
hækkun á öllum launaliðum, s.s.
kauptryggingu. Kauptrygging háseta
er í dag 85 þúsund krónur á mánuði,
skipstjóra 127 þúsund krónur og um
130 þúsund krónur hjá yfirvélstjóra.
Atkvæðagreiðsla stendur yfir hjá
Sjómannasambandi Íslands, Vél-
stjórafélagi Íslands og Farmanna- og
fiskimannasambandinu um boðun
verkfalls 15. mars nk.
Sjómannafélag Reykjavíkur sam-
þykkti það fyrir sitt leyti með yfir-
gnæfandi meirihluta, eins og greint
var frá í blaðinu í gær, og mikill meiri-
hluti félagsmanna Sjómanna- og vél-
stjórafélags Grindavíkur hefur einnig
samþykkt í póstatkvæðagreiðslu að
boða verkfall 15. mars næstkomandi.
Alls greiddu 126 atkvæði í Grindavík,
þar af samþykktu 106 vinnustöðvun
og 19 sögðu nei.
Í fréttatilkynningu sem ríkissátta-
semjari sendi frá sér í gær kemur
fram að ekki var greint rétt frá í ein-
stökum efnisatriðum í fréttum fjöl-
miðla af sáttafundi í kjaradeilu út-
gerðarmanna og sjómanna í
gærmorgun. Lögð er áhersla á að
samkomulag sé milli viðsemjenda um
að innihald tillögunnar sé trúnaðar-
mál.
HUGMYND sem nýlega hefur verið
útfærð á vegum borgarverkfræð-
ings um að gerð verði ný austur-
vestur-flugbraut á uppfyllingu í
Skerjafirði er meðal þeirra fimm
tillagna sem fram hafa komið um
staðsetningu Reykjavíkurflug-
vallar. Samkvæmt þessari tillögu
yrði, auk flutnings austur-vestur-
brautarinnar, núverandi suður-
norðurbraut stytt en aðrar brautir
lagðar niður. Meginkosturinn við
þessa hugmynd er talinn sá að til
verður mun stærra svæði til nýt-
ingar á núverandi flugvallarsvæði í
Vatnsmýrinni eins og sjá má á með-
fylgjandi tölvumynd.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra telur þennan kost ekki meðal
hagkvæmustu leiðanna. Ráðgjafar
Flugmálastjórnar áætla að með
flutningi austur-vestur-braut-
arinnar mætti tvöfalda íbúafjöldann
á svæðinu en það er talsvert minni
nýting en embættismenn Reykja-
víkurborgar hafa gert ráð fyrir.
Bygging-
arsvæði í
Vatnsmýri
Sjómannasamtökin og útvegsmenn á fundi hjá ríkissáttasemjara
Sjómenn bjóða samning til
eins árs frá áramótum
LYFJAFYRIRTÆKIÐ Delta hf.
notar við lyfjaframleiðslu sína ge-
latín eða hlaupefni úr evrópskum
og bandarískum nautgripaafurð-
um, sem hafa fengið tilskilin vott-
orð stofnana lyfjamála í Evrópu.
Efnið er notað í lyf Delta í hylkja-
formi, samkvæmt upplýsingum
Stefáns Jökuls Sveinssonar, yfir-
manns skráningardeildar Delta hf.
Fylgja lögum
og reglum ESB
„Delta fylgir gildandi lögum og
reglum Evrópusambandsins um
notkun gelatíns úr nautgripaafurð-
um sem einnig eru í gildi hér á
landi og við fylgjumst náið með
breytingum sem á þeim kunna að
verða,“ segir hann. „Ef hætta er á
að hráefnin innihaldi smitefni er
notkun þeirra ekki leyfileg og við
vinnum samkvæmt reglum þar að
lútandi, sem gefnar eru út af Evr-
ópusambandinu,“ segir Stefán.
„Okkur er ekki heimilt að nota hrá-
efni sem unnin eru úr dýraafurðum
ef möguleiki er á að þau innihaldi
kúariðusmit.“
Aðspurður um hvort til greina
komi hjá Delta að hætta notkun
hlaupefnis úr erlendum nautgripa-
afurðum, segir Stefán að það verði
ekki gert nema tilskilin vottorð fá-
ist ekki og breyting verði á núver-
andi reglum. Hann segir fyrirtækið
byggja notkun sína á þessum efn-
um á vottorðum sem gefin eru út í
samræmi við evrópsk lög og evr-
ópsku lyfjaskrárnefndina, og því
eigi yfirvöldum og neytendum að
vera óhætt að gera slíkt hið sama.
Nautgripa-
afurðir
í lyfja-
hylkjum
Delta hf. treystir
vottorðum Evrópu-
sambandsins
VEÐUR var afspyrnuvont í Súða-
vík í stórviðrinu á Vestfjörðum um
miðja vikuna og gekk á með miklu
hvassviðri með úrkomu. Þrjú hús
fuku að hluta eða í heilu lagi en þar
var aðallega um að ræða byggingar
sem lítið hafa verið notaðar og ekki
er mikill skaði að, samkvæmt BB á
Ísafirði.
Um miðnætti á þriðjudag mæld-
ist vindhraði samkvæmt sjálfvirk-
um veðurvita í Súðavík í sterkustu
vindhviðunum um 40–42 m/sek.
Skemmdir í
stórviðri